Bræla, bræla,bræla, bræla
25.10.2007 | 23:17
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Góða gesti ber að garði
24.10.2007 | 19:20
Lögðumst að bryggju í Bolungavík um klukkan sex í morgun og var þegar hafist handa við löndun. Gekk nú bara bærilega að dæla gúanóinu í land og kom ekkert nýtt uppá í þeirri framkvæmd. En það bar til tíðinda seinna um morguninn þegar 6 bekkur grunnskóla Bolungavíkur kom í heimsókn. Krakkarnir ásamt kennara skoðuðu skipið hátt og lágt, birjuðu í vélarrúminu og enduðu í brúnni hjá Guðjóni (kallinum), það mátti greina bæði undrun og ánægju í svip þeirra. Takk fyrir komuna krakkar ánægjan var líka okkar að fá ykkur í heimsókn. Landfestar leystar á síðdegisflóðinu og sigldum við út frá Bolungavík á slaginu 17:00. Gott í bili, yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Enginn má við veðurguðunum......
23.10.2007 | 19:12

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Búnir að færa upp um gat!
22.10.2007 | 23:55
Sælir landsmenn nær og fjær! Nú er að komast skriður á þetta hjá okkur færðum upp um gat í kvöld og lag númer tvö sigrað. En það er smá babb í bátinn, aflinn er að klárast. En við höfum fulla trú á kallinum og að hann verði búinn að ná nokkrum síldum áður en dagurinn verður hálfnaður. Golli takk fyrir athugasemdina, það er gaman að fá smá svörun ef hún er á jákvæðu nótunum annars bara að sleppa því. Mér finnst að það ætti að vekja upp vaktaríginn, það er ekkert fútt að verða í þessu, en hin vaktin finnst mér vera sjónarmun slakari og mættu taka sig á.
Set hérna inn til gamans mynd sem er tekinn austanlands og er frá Neskaupstað sem má segja að sé önnur heimahöfn Hákons EA. Þar er einmuna veðurblíða flesta daga ársins og ekki að furða að við sækjum þangað. En nú er komið að lokum og Marri segir yfir og út.
Þar sem lognið hlær svo dátt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnud til sælu!
21.10.2007 | 23:56
Búnir að sigra fyrsta lagið í lestinni. Fengum gefins uþb. 150 tonn hjá Krosseynni í dag og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Annars er hver dagur öðrum líkur til sjós með einni undantekningu og er það sunnudagurinn. Þá er ég að tala um viðgjörning í mat. Dagurinn birjaði með eggjum og baiconi í morgunmat, lambahrygg með bairnes og tilheyrandi í hádeginu, pönnsur með sultu og rjóma í kaffitímunum og svo fajhitas í kvöldmat. Viljum við þakka matsveininum honum Pétri fyrir okkur, blessaður kallinn.
Kokkurinn á góðri stund!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er vindur þegar hann blæs
20.10.2007 | 23:59

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sjaldan er ein báran stök...........
20.10.2007 | 00:10
Vill birtja á að þakka Golla að sýna mér þann heiður að taka við blogginu í fjarveru hanns, njóttu frísins Golli minn. Fórum frá Eskif. í gærkvöldi eftir vírastrekkingu, sem gekk bara vel, skipt um troll og nótin tekin um borð. Ætla hafa sem fæst orð um trolltökuna en eitthvað var það snúið þegar átti að fara að kasta því í kvöld, allur vindur úr kallinum eftir þær æfingar. Tvö ný andlit komu um borð síðast og eru það sannkallaðir þungaviktarmenn og væntir áhöfnin mikils af þeim í framtíðinni. Ekkert nýtt í eldhúsinu, alltaf sami dugnaðurinn þar á bæ bæði á sjó og í landi. Marri þakkar fyrir, yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í landi verðum í bandi
16.10.2007 | 22:20
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fullir já ég sagði fullir
15.10.2007 | 11:40
Halelúja já það hafðist að berja í dallinn og eru við með yfir 700 tonn af fallegum ferskum síldarafurðum sem menn berjast um að kaupa þessa dagana. Þannig að nú standa yfir þrif að hætti Möllersins og þeir sem þekkja til þá eru það engin leigaraþrif. Við verðum á nobbaranum á aðfaranótt miðvikudags og gerum svo klárt fyrir heimasíldina með því að taka svörtu drussluna um borð þ.e. nótina en jæja Möllerinn nappaði mig við að skrifa best að halda áfram að þrífa bið að heilsa og koma með yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Ingólfur Jóhannsson skrifar sunnudagshugvekju
14.10.2007 | 09:22
Ef spámaður eða draumamaður rís upp meðal yðar og boðar þér tákn eða undur og táknið eða undrið rætist, það er hann hafði boðað þér og sagt um leið: vér skulum snúa oss til annarra guða (þeirra er þú hefir eigi þekkt), og vér skulum dýrka þá. Dýrkaðu Drottinn guð frelsara yðar og varðveitu í hjarta þínu.
Þetta var sunnudagshugvekjan og er hún að festa sig í sessi hér á síðunni, menn virðast finna þennan umtalaða innri frið. En annars er það að frétta að við erum komnir með í dallinn og erum umþabil hérumbil marsibil að leggja af stað og gætum verið á Norðfirði seint á þriðjudag ef allt heppnast og veðrið verði í lagi. Annars er lítið að frétta Pési var með beikon og egg í morgunmat og tóku menn hraustlega á því alla vega sumir hverjir. En við segjum guð verði með þér og leggjum áherslu á yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)