Pési seigur

O já hann Pési kokkur stóð svo sannarlega fyrir sínu í dag haldið þið ekki að kallinn hafi boðið upp á LÓMARTJARNARLÆRI  (ekki af þeim systrum samt það hefði verið í marga mata) og var berness og allur pakkinn með, enda svaf maður sem ungabarn með fullan maga af góðgæti já við gefum Pésa Smile  fyrir lærið. En svo við snúum okkur að aflabrögðum þá fyllum við afturlestina í nótt og eigum við afla eitthvað fram á daginn, þannig að við erum að tala um að það vantar aðeins herslu munin. Það styttist í sunnudaginn og menn eru strax farnir að spyrja mig út í sunnudagshugvekjuna hvernig ég muni háta henni en það er ekkert gefið upp ég er búin að læra faðirvorið þannig að þetta lítur allt vel út. vonum að strakarnir hans Badda Böder standi sig í nótt og hafi tækin vel jöfn þegar við mætum á vakt í fyrramáli jæja best að fara og fá sér kók og prins eins og í kartöflunum í den. Yfir og út.

Bara vel

Já við segjum að hætti Dabba bara vel, við erum komnir með 370 tonn í lest og eigum nægan afla til að vinna, þannig að menn hafa séð það svartara. Það er rétt hjá þér Guðni að við verðum að vera góðir við kokkinn enda erum við það en það var nú alltaf sagt í kartöflunum í gamla daga að menn uppskera eins og þeir sá. Jú við verðum komnir með Alla í land tveim dögum fyrir ferðina þannig að það gengur upp hjá Húsavíkurtröllinu. Starfsmenn síðunar vilja svo vota vilta tryllta Villa samúð okkar vegna borgarstjórastólsins og gott fólk munið x-b og allir vegir færir. yfir og út.

Jæja Þá sagði hann og sagði svo ekki meira þann daginn

Já við verðum að henda inn nokkrum línum fyrir gesti og gangandi, það eru komin rétt rúm 3 lög í lestina þannig að í hálffermið styttist. Gaman að sjá hvað fólk er orðið virkt í athugasemdunum. Annars er lítið að frétta veðrið er að ganga niður þannig að þetta lítur allt vel út, að vísu lætur kokkurinn okkur heyra það hann er ekki sáttur við hvað sá brúni frá hóli (Guðni Rúnar) var farin að dekra við okkur.  Jæja hættum þessur rugli í bili og biðjum p.a. byggingarverktaka að vanda alla jarðvegsvinnu áður en haldið er af stað í blokkarbygginguna, olli farðu og náður í zetorinn á LÓMARTJÖRN og farðu að grafa, guð blessi ykkur öll og segjum saman yfir og út.

Nú er úti veður vont, verður allt að klessu

Já það má með sanni segja að veðrið hafi náð okkur núna, það er sannkallaður Siggi stormur leiðinda bræla með tilheyrandi skakstri, en við látum það ekki á okkur fá og erum komnir í annað gat í lestinni og erum að vinna þannig að allt rúllar þetta. Menn þyrftust út á dekk hér í kvöld til að reyna að sjá ljósið frá friðarsúlunni frægu en engin sá neitt nema Steinar hann sá glitta í ljósið enda maðurinn frelsaðurSideways . Annars eru við djöfull góðir og segjum yfir og út.

Lukkuriddarar

Góðan daginn gott fólk hér um borrð erum við glaðir enda komnir með rúm 100 tonn niður, við fengum líka þetta flotta hol í gærkveldi. Slúðrari síðunar náði tali af Björgvini B í gærkveldi og sagðist hann ekki muna eftir öðru slíku en hann hafði ekki mikin tíma til að tala við blaðamann því hann var að græja tilboð í Ray. En svo við svörum Runólfi þá er Geir Zoega á áskel og skipstjóri þar er Sveinn ´'isaksson. Starfsmenn síðunar senda svo ferðalöngunum sem fóru til íslands í gær sunnudag bestu kveðjur. En nú segjum við bara yfir og út skrifumst eftir sólahring.Whistling


Góðan daginn, það er Ingóflur Jóhannsson sem skrifar sunndagshugvekju!

Jesú hélt til Nasaret með hinum hirðunum, þeir fóru á báti Judasar og renndu fyrir fisk.  Þetta voru orð dagsins en þau passa hraustlega við okkur núna búið að landa og allt var fínt í Sortland. Það er búið að láta það fara þannig að við verðum byrjaðir að vinna fyrir kaffi í dagWizard . Þannig að þetta lítur allt vel út  , vonum að Geir Z fara að finna síldina heima, annars biðjum við heilsa og bara svo þið vitið það þá er maður að fara borða hjá Borta og biður hann upp á   læri með bernes og öllu tilheyrandi munið allt fyrir ástinaInLove og koma svo yfir út.


Yfir hafið og heim

Jæja þá eru það nýjustu tölur af utankjörfundaratkvæðum og staðan er þannig að 570 tonn í lest þannig að við erum að tala um rétt um sólahring eftir í vinnsluWink. Sá Brúni frá Hóli þ.e. kokkurinn er í óða önn að gera fínt áður en sá gamli kemur (pétur) því sá maður finnur skítinn ef hann er til staðar, annars er lítið að frétta auðvitað komin stemmning í leigggarana sem eru að fara heim og eru þeir farnir að skarta svokölluðu sólheimabrosiGrin. Jæja förum að leggja okkur góða nótt og að ógleymdu yfir og út.


Lengi lifir í gömlum glæðum!

Já það er óhætt að segja að lengi lifi í gömlum glæðum, haldið þið ekki að þeir félagar í brúnni hafa strandað svona í síldinni og tóku þeir vel af afla þannig að það er bullandi vinnsla í gangi og nóg til. staðan í lestinni er þannig að sirka 450 tonn komin niður og ákveðið hefur verið að landa á laugardagsmorgun þannig að Dabbi og Pési geta farið að bryðja flugveikistöflur fyrir laugardaginn. En athugasemdin frá kjartani um hvort Doddi talaði ekki gamel dansk þá hefur Doddi aldrein náð því hann hefur einungis náð að finna á sér af því. En jæja það er best að koma með orðin góðu og segja YFIR OG ÚT.

Bræla

Já það er bræla á miðunum núna og engin vinnsla í gangi komin 400 tonns í lest og vonum að nóttin verði okkur hagstæð. Nú þegar talað er um að landa i norge þá skilur maður ekki ef Ingi útgerðarmaður sendir ekki Dodda Kokk með bara sem fararstjóra því þessi maður er búin að ferðast um öll lönd og jafnvígur á gamel norsk og spænsku ofl tungumál jafnvel tungumál ástarinnarInLove . Hann væri flottur að arisera fyrir hópinn og vera svokallaður fararstjóri. Það er gaman að sjá að miðadreifarinn í Englandi er á lífi og vantar hann sárlega í gufugengiðWhistling , Balli biðjum að heilsa og mundu x-b þá eru allir vegir færir. En jæja nóg af rugli í bili við segjum að stýrimannshætti yfir og út.

Hálfir

Þá eru kallarnir búnir að berja í hálfan bát og eru bara nokkuð glaðir með það vinnsla í gangi en eitthvað farið að þynnast í lestunum vonum að Addi Benitez aðdáandi reddi þessu í nótt. Annars er lítið að frétta við þökkum Einsa Yngri og Marra fyrir athugasemdirnar jæja ég hef engan tíma í þetta er að fara að taka Inga Hill í gegn í fótboltaleiknum góða . ´'Afram ''Island yfir og út.Cool

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband