Traustur vinur getur gert kraftaverk!
28.11.2007 | 16:53
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja Gollinn er á lífi
27.11.2007 | 13:10
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Meira blogg.....
16.11.2007 | 11:53
Jæja aðeins meira blogg. Lönduðum tæpum 200 T af gúanói á Bolungarvík í nótt og gekk það allt að óskum.
Erum núna komnir inn á Grundarfjörð og erum að skanna fjörðinn.
Erum komnir með um 200 T í frystinn og hefur vinnslan gengið alveg með ágætum.
Múffi Ö kveður yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Aflafréttir!!!
14.11.2007 | 15:34
Jæja komið að smá fréttum af okkur....Múffi Ö virðist vera slakna í blogginu mikið að gera í vélini....
En það er helst að frétta f okkur að við erum með risakast á síðuni....búnir að taka það sem við þurfum í okkur, eða um 400tonn! og ætlum að láta þá á Krossey fá rest. Eru þeir á leið til okkar til að snapa hjá okkur.
Erum að byrja nýjan túr eftir löndun í borg óttans á þriðjudag, var landað fullfermi þar., og vonast menn til að þessi túr gangi jafn vel og sá síðasti!
Þangað til næst....hvernig var það....yfir og út??
Kv
H.F.Ó
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Loksins meira blogg...
12.11.2007 | 00:25
Jæja þá koma loksins fleiri fréttir, ástæðan fyrir þögninni er að netið er búið að vera í einhverju lamasessi en vonum við nú að það sé komið til að vera.
Annars er það helst að frétta að við fengum góðan slatta gefins frá frá "litla bróðir" við mikinn "fögnuð" sumra á miðunum í fyrradag. Við þökkum þeim á Áskel kærlega fyrir þessa höfðinlegu gjöf.
Zoega virðist halda uppi góðum aga á dekkinu á Áskel og fumlaus stjórntækni hans skilar sér greinilega skýrt og skorinort til hans undirmanna!!!
Í gær fengum við svo annan slatta gefins frá Krossey og þökkum við þeim kærlega fyrir. Ættum við því að vera komnir með nóg til að fylla frystinn hjá okkur og ætti það að klárast á þriðjudag.
Múffi Ö kveður yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Loksins loksins loksins......
8.11.2007 | 13:58
Loksins er komið að bloggfærslu. Ástæðan fyrir þögninni er sú að aðalbloggarar áhafnarinnar eru í fríi, Golli og Marri.
En helstu fréttir eru þær að við lönduðum frosnum afurðum í höfuðborg íslenska lýðveldisins þ.31-10 og gúanói lönduðum við svo í Vestmannnaeyjum þ. 04-11. u.þ.b. 630 t. Í millitíðinni höfðum við náð afla í Selvoginum og úr því fengum við u.þ.b. 120t í frystinn og slatta í gúanó.
Í gær fengum við svo góð 600t í nótina inni á Grundarfirði og liggjum nú á meltunni inni á Breiðafirði.
Múffi Ö kveður yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Löndun á morgun
30.10.2007 | 08:14
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þangað leitar..............
28.10.2007 | 23:51
Verðum væntanlega komnir með frystinn hálfann núna um miðnættið og nóg úr að moða. Þeir á Faxanum voru svo höfðinglegir að gefa okkur uþb. 300 tonn í dag og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. þá vantar nú ekki mikið af síld um borð svo við eigum fyrir fullfermi en samt eitthvað. Vinnslan gengur bara bærilega en lentum í því í kvöld að úrsláttar pressan braut sig og þíddi um 90 mínutna töf meðan verið var að sjóða hana saman. Ef fer sem horfir þá má búast við að við verðum búnir að fylla á fimmtudag. Ekki er búið að ákveða löndunarhöfn ennþá en kemur í ljós væntanlega nógu snemma. Kveðjur frá öllum á Hákoni, yfir og út.
Faxi að dæla síld í okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins, loksins!
28.10.2007 | 07:46
Fengum góðan afla í gær. Köstuðum nótinni um kaffileitið í gærmorgun og fengum eitthvað rúm 100 tonn og köstuðum svo aftur eftir hádegi og þá setti kallinn í´ana. Seinna kastið skilaði okkur rúmum 500 tonnum þannig að létta lundin hefur skilað sér aftur eftir gjæftaleysi sl. daga. Vinnslan komin í fulla drift tvær flökunarvélar á flöpsum og tvær á roðlausu. Vélstjórarnir komnir með vasaútgáfu af síldarverkun og eru að gera tilraunir með jólasíldina. Læt hér fylgja nokkrar myndir frá fyrra kastinu í gær, yfir og út.
Kallinn í brúnni. Ingi hill og Jónsi
Gísli klár í næsta hring. Eddi og þórólfur kláir í korknum. Helgi einbeittur á svip.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Brælubras
27.10.2007 | 08:57
Góðan dag! Fórum út á Hala eftir að hafa verið inn á djúpi í fyrrinótt. Það hafði lítið sem ekkert lægt frá því við fórum í land. Það vill nú oft brenna við að það sé betra veður í myrkrinu en í dagsbirtunni. Köstuðum trollinu seinnipartinn í gær og drógu frekar skamman tíma enda lítið lóð og bræla. Þegar híft var bilaði vírastýri á annari togvindunni en með samvinnu og samstilltu átaki áhafnar tók tiltölulega skamman tíma að kippa því í liðinn. Erum nú komnir á síldarslóðir skammt undan Grundarfirði og vonumst við til að það fari að fiskast, höfum ekki fengið bein úr sjó síðan á miðvikud. sl.
Golli það eru smá skilaboð frá Inga Hill, að þú eigir að fara að vara þig. Nýji fifa leikurinn er og verður "Heimavöllur" Hillarans. Heyrst hefur á göngunum að Guðjón skipstjóri hafi haft þau orð um Gollann að hann vilji ekki sjá hann um borð. Allavega ekki meðan hann er með bátinn. Þannig er það nú Golli minn, en eins og þú veist eru allar gangafréttir sannar. Marri vonar að allir gangi á guðs vegum og eigi góðan dag og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)