Góð byrjun á nýju ári.

Sælt veri fólkið! Héldum til veiða 2.jan stundvíslega kl 19:30 og vorum mættir í Grundarfjörðinn að morgni þess þriðja. Guðjón kallinn var ekkert að láta okkur bíða eftir síldinni heldur setti í 350t og var vinnslan komin í gang um kaffileitið. Það hefur gengið á ýmsu í vinnslunni og ber hæst mikið tjakkstangarfár á innmötunarlyftu bakborðs frystitækis. En allt fár tekur enda. Í vinnslustoppi í gær, meðan verið var að kasta nótinni, var lagst yfir úrbætur og stillingar á lyftunni og hefur hún verið til friðs síðan. (7, 9, 13) Fengum uþb. 400t í gærdag af fallegri síld þó ekki á Grundarfirðinum heldur inn undir Stykkishólmi.  Það má segja að þessi síldarvertíð hafi verið með ólíkindum, allur kvótinn tekinn hér vestanlands. Annars erum við búnir að hækka um gat í frystinum þannig að það er bara gangur í þessu hjá okkur. Áhöfnin þakkar innlitin á síðuna sl. ár. Gangið á guðs vegum og Mari segir yfir og út.

Jólahittingur laugardaginn 29 des

Jæja gott fólk nú er komið að því að hittast og gleðjast saman á veitingastaðnum Strikinu þann 29. desember. Mæting er kl. 20:00 og kostnaður per kjaft er 2800 kr. Og svo er svokallaður fordrykkur hjá captein Björgvini B, ef einhverjar spurningar vakna þa er bara að bjalla á þann ágæta mann Guðna Rúnar í síma 848-7525. Gollinn biður að heilsa og segir gleðileg jól til allra nær og fjær yfir og út.


Gleðileg Jól!!!

Jæja þá eru kallar komnir í land, við óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári yfir og út

Hvað er málið......

Héðan er allt gott að frétta. Góður gangur í vinnslunni og fært upp í efsta gat í morgun. Engin ábót á síldina hjá okkur, hvorki í gær eða í dag. Verðum búnir að vinna það sem til er um borð um hádegisbil á morgun. Annars er heitasta málið hér um borð hvenær við verðum í landi fyrir jól. Hvort það verði föstudagurinn eða laugardagurinn, það er vandi um slíkt að spá. Hvað er eiginlega málið með að ekki skuli vera hægt að gefa það út? Það skiptir ekki máli hvor dagurinn er og sama hvort við verðum ekki inni fyrr en á þorlák.  Ef bara væri hægt að ákveða það.   Að þeim orðum skrifuðum segir mari, yfir og út.


Bráðum koma........

Af okkur hér á Hákoni er það hels að frétt að eftir löndun í Rvík sl. miðvikudag þá urðum við veðurtepptir. Komumst ekki frá bryggju í borg vindanna fyrr en tíu tímum eftir að löndun lauk. Þá var strikið tekið í Grundarfjörðinn og vorum við komnir þangað á fimmtudagskvöldi kl 1900 þar beið okkar aflaskipið Áskell, með uþb. 600t í lestunum.  Lögðumst við utaná hann í höfninni á staðnum og tók það framm undir hádegi á föstudag að dæla þessum pöddum um borð til okkar. Það mætti nú kanski bæta dæluafköstin í honum Áskeli, time is money.  Aftakaveður var á Grundarfirði meðan á þessu stóð og framm eftir degi. Vorum komnir útá í vinnslu upp úr hádegi föstud. og hefur vinnslan gengið nokkuð vel. Fengum svo ábót frá Kelanum í gær um 200t og svo aftur í dag uþb. 350tonn. (allar aflatölur eru birtar án ábyrgðar og eru í flestum tilfellum hafðar eftir þriðja aðila).  Þeir á Áskeli eru á leið í jóla fríið, um leið og við óskum áhöfninni góðrar heimkomu og gleðilegra jóla viljum við þakka fyrir okkur. Hækkað var upp í  miðgatið eftir hádegi í dag svo kallar eru bara í góðum gír. Má til með að hafa orð á matseðli dagsins og sló Eyfjörðinn ekki af sér við hann frekar en fyrri daginn. Egg og baikon í mm, nautalundir með bernais og tilheyrandi í hádeginu og svo Arsenalborgarar í kvöldmat. Jæja komið nóg að sinni og Mari segir yfir og út.

Löndun í dag

Jæja þá er þessi túr að verða búinn. Verðum búnir að vinna allt hráefni um tíuleitið og verðum komnir inn til löndunar í borg óttans á hádegi. Náum ekki að fylla frystinn eins og vonir stóðu til, kemur til með að vanta uþb. 60 tonn. Nokkuð margir að fara í frí núna og viljum við sem verðum áfram óska þeim gleðilegra jóla og bjóða afleysingamenn velkomna um borð. Þá er bara eftir að segja yfir og út. 

Allt morandi í síld.....

Af okkur er það helst að þegar þetta er ritað þá erum við í Hvalfirðinum og vinnsla í fullum gangi. Fengum þetta fína kast eftir hádegi í Grundarfirðinum og fylltum á allar lestar og gáfum svo Margrétinni eitthvað vel á annað hundrað tonn. Flott hjá kapt. Bjögga.  Í gærmorgun var farið innundir Stykkishólm,  en þar fréttist af síld inn á milli skerja, mælingar hafró segja að þar séu 350 þúsund tonn. Ekki talið ráðlegt að fara á svo stóru skipi sem Hákon er þarna inn á milli. Allavega ekki í vaxandi vindi eins og var í gær.Var því snúið frá, held að það hafi verið góð ákvörðun.  Verðum hér á meltunni í Hvalfirðinum næstu sólarhringa og standa vonir til að hráefnið nægi til að fylla á frystinn eða allavega langleiðina. Fært var upp í efsta gat eftir miðnætti.  Bestu kveðjur frá öllum á Hákoni EA og yfir og út.

Búið að skreyta aftur........

Sæl öll! Ætlaði að skrifa um jólaskreytingar um borð í síðasta bloggi en það fórst fyrir.  En jólabarnið Pétur Eyfjörð er búinn að vera sveittur við að hengja upp seríur undanfarna daga í borðsal og setustofu. Þetta er bara orðið heilmilislegt hjá okkur. En af veiðum og vinnslu er það helst að við urðum uppiskroppa með hráefni sl. nótt. Köstuðum í morgun og fengum uþb. 80 tonn og fengum svo hjá Kelanum ca. 400 og á annað hundrað frá Jónu Eðvalds. Horfur á að þriðja lagið sigrist um miðnætti eða fljótlega eftir það.  Segjum þetta gott og segjum yfir og út.

Búið að skreyta..........

Nú þegar þetta er skrifað að kvöldi 6 des, erum við á leið frá Bolungavík eftir að hafa landað þar rúmum 260 tonnum af síldarfrákasti og afskurð. Við komum til Bolungavíkur kl. 9 í morgun og vorum farnir kl 16. Stefnan tekin á síldarmiðin í Grundarfirði með smá krók út í kolluál þar sem frést hafði af síldartorfum í gær fyrir utan 12 mílurnar. En það var svo ekkert að sjá núna í kvöld þannig að við stefnum bara á Grundarfjörðinn. Af veiðum og vinnslu er það helst að frétta að við köstuðum í gærmorgunn og kallinn krækti í á fjórða hundrað tonn og svo gaf Guðmundur VE okkur tæp hundrað. Vonumst til að annað lagið sigrist fyrir hádegi á morgun (7des). Nokkrar frátafir hafa verið frá vinnslunni. Hún lá niðri meðan við vorum inni á Grundarfirði við nótaveiðar í gær og svo svona mekanískar truflanir, færiband hér og tjakkur þar, en það er kominn þokkalegur gangur í þetta núna. Segjum gott í bili og Marri segir yfir, fór ekki, yfir og út.

Betra seint en aldrei....

Jæja komið að blogg færslu, búið að vera frekar dauft yfir bloggfærslum hjá okkur undanfarið en það stendur til bóta. Lönduðum fullfermi í Rvík. 1 og 2 des og vorum komnir á miðin, eftir nótatöku í Helguvík, seinnipart mánudags. Áhöfnin á Kelanum stóð fyrir sínu og voru klárir með rúm 100t þegar við komum á staðinn. Og einnig fengum við síld hjá þeim í gær. Vorum búnir að sigra fyrsta lagið um miðnættið og stefnir í afla þurrð nú um kaffileitið (09:00). Annars engar stórfréttir af okkur hér á Hákoni svo við segjum bara yfir og út. 

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband