Bræla bræla bræla.....

Sælt veri fólkið, nú er komin bræla á miðunum sunnan við Færeyjar og erum við karlarnir komnir í var við Suðurey í Færeyja-klasanum.  En til Suðureyjar eiga þeir einmitt  ættir að rekja okkar ástsælu vaktformenn þeir  Flovent og Einar Möller.

Útlit er fyrir að þessi bræla standi yfir framm á laugardag og ekki fer nú illa um okkur í vari við Suðurey. Aldrei að vita nema að karlinn ákveði að fara upp að bryggju og leyfi vaktformönnunum að líta yfir æskustöðvarnar og okkur hinum að fylgjast með.

Annars fengum við u.þ.b. 100m3 af kolmuna í síðasta holinu áður en lagt var af stað í var við Suðurey  og er búið að keyra það í gegn um vinnsluna þegar þetta er skrifað.

Gullkorn dagsins er ekki fyrir viðkvæmar sálir:

"Þegar slökkt hefur verið á kertum, eru allar konur fagrar."

Múffi kveður yfir og út.


Betra lítið en ekki neitt.....

Jæja gott fólk komum loksins á miðin suður af Færeyjum snemma í morgun eftir sólahrings brælu á leiðinni. Köstuðum trollinu eftir morgun-vaktaskiptin og drógum það framm yfir hádegi. Þá var híft og voru ekki nema 30-40 t í.  Það nægir  svona rétt til að stilla vinnsuna.  Vonandi verður meira í næst þegar híft verður, annars allt í góðu og við byrjaðir að frysta kolmunann.

Gullkorn dagsins er:

"Vitur maður er betri en sterkur og fróður maður betri en aflmikill"

Múffi kveður yfir og út.


Góðri síldarvertíð lokið.

IMG_0246IMG_0246Jæja nú er góðri síldarvertíð lokið. Nær öll síldin fékkst inni á Grundarfirði þessa vertíðina.  Læt hér fylgja með mynd af góðu kasti úr síðasta túrnum.

Lönduðum í vinnslu hjá SVN á aðfaranótt sunnudags,  í gúanó á sunnudaginn og frostnu lönduðum víð í gærkvöldi og nótt. Fórum  frá Neskaupstað  um kl. 08:30   inn á Eskifjörð og tókum þar veiðarfæri um borð. Erum nú á leið á kolmunamiðin austur af Færeyjum. Frést hefur af góðri kolmunaveiði þar frá vinum okkar á Alla Ríka.

Gullkorn dagsins er:"Líf okkar er orrusta,  þar sem sigurkransinn er settur á höfuð þess, er sigrar sjálfan sig.

Múffi kveður yfir og út.


Allt tekur enda....

Jæja gott fólk þá er nú farið að sjá fyrir endann á þessum túr. Verðum væntanlega búnir að fylla frystinn um kaffileitið.  Þá verður væntanlega landað restinni af síldinni í vinnslu hér í Nesk og í framhaldi af því afskurði og frákasti í bræðslu. Frystilöndun er svo ákveðin á sunnudagsmorgni,  eldsnemma. Ekki er vitað hvað verður gert í framhaldinu. Engin loðnuveiði er í augnablikinu en það getur breyst á einni nóttu. Gangafréttirnar eru sjaldan sannar en fara oft nærri sannleikanum og þar hefur heyrst mynnst á Kolmunna. En þetta kemur allt í ljós.  Jæja þetta er síðasta bloggið mitt í bili, kallinn er að fara í frí.  Vonandi tekur nú einhver við af mér svo ég geti séð hvað um er að vera um borð meðan ég er í landi. En nú segir Mari yfir og út.

Kornið:Þar sem vínið fer inn, sleppur skynsemin út.Bolungavík í des 


Ekki er á vísan að róa til sjós.......

Vorum lagðir af stað til Bolungavíkur til bræðslulöndunar í fyrradag en snúið við vegna slæmrar veðurspár enda eins gott. Komum á Grundarfjörðinn í gærmorgun og nótinni kastað í þann mund sem við vorum að klára að vinna upp síldina. Fengum þetta fína kast og gátum fyllt á þá tómu tanka sem við áttum og gátum meira að segja gefið frá okkur til Vilhelms og Andeyjar. Nú erum við steinhættir við að fara til Bolungavíkur en erum þess í stað á leiðinni austur á land til löndunar. Já Neskaupstaðurinn er markmiðið. Við erum með nægan afla um borð til að fylla frystilestina og svo erum við með slatta af afskurði í bræðslu. Færðum upp í efsta gat í gærmorgun og vantaði þá um 300 tonn í frystinn. Nánari fréttir af inniveru á morgun eða hinn og segjum yfir og út.

Korn dagsins:Menn eru gerðir hver fyrir annan. Kennið því öðrum mönnum eða umberið þá.


Í öðru sæti......

Samkvæmt skip.is er Hákon EA með næst mesta aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa á árinu 2007 með 1190 miljónir í aflaverðmæti (fob). Töpuðum þar með fyrsta sætinu til Vilhelms sem var með 1430 milj., til hamingju Vilhelms menn. Þetta er eigi að síðu mjög góður árangur hjá okkur mtt. að við vorum 7 vikur í slipp á síðasta ári. Þetta eru að vísu fyrstu tölur og vænti ég að bæði skipin eigi eitthvað af afurðum eftir óselt. Þannig að þetta á eftir að breytast eitthvað en þó ekki mikið.   En af okkur er það helst að þriðja lagið er sigrað og gengur bara ágætlega í vinnslunni. Stefnir í bræðslulöndun í Bolungavík í vikunni á síld og afskurði.  Skipstjóraskipti voru í gær hjá okkur en Guðjón kallin var búinn að vera með flensu frá áramótum. Vonum að kallinn nái sér nú upp úr þessu helv. Og með þeim orðum segjum við yfir og út.

Spakmæli dagsins: Fyrnist sorg þá frá líður.

 


Silfur hafsins........

Lítið að frétta. Fengum gefins í gær rúm 200 tonn og þá nánast allt fullt af hráefni aftur:) Hækkuðum upp um gat í gærkvöldi þannig að það gengur bara ágætlega í vinnslunni. Og að venju segjum við yfir og út. 

Spakmæli dagsins: Lýgin kemst oft inn um smugu í veggnum, en sannleikurinn venjulega ekki inn um opnar dyr.


Gott kast á síðunni.......

jan2008 005jan2008 007jan2008 006

 

 

 

 

 

Lönduðum 550 tonnum í Rvík. á fimmtudag. Mannskapurinn notar inniverur vel í höfuðborginni. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu heilsa upp á fjölskyldu og vini en þeir sem koma af landsbyggðinni skiptast í þrjá hópa. Hópur nr. 1 fer í bílaumboðin og prufukeyra alla helstu lúxusbílana. Hópur nr. 2 gerír stórinnkaup í heimilistækjaverslunum og þriðji hópurinn fer í Kringluna á kaffihús og horfa í kringum sig!!! En þá að yfirstandandi veiðiferð. Vorum komnir á Grundarfjörðinn á föstudagsmorgni og köstuðum nýviðgerðri nótinni kl 10:30. Og það varð ekkert smákast! Náðum að fylla allar lestar en þá voru eitthvað um 50-100 tonn eftir í nótinn. Þar sem bannað er að henda fisk þá brá Guðjón skipstjóri á það ráð að bakka út á dýpra vatn svo hægt væri að hefja vinnslu og unnum við framm yfir miðnætti beint úr nótinni.  Þakka þórólfi fyrir athugasemdina og eru bestu kveðjur frá öllum um borð til hans með von um góðan bata. Segjum gott í bili og Mari segir yfir og út.


Viðgerð á nót og löndun......

Í dag stendur til að setja nótina í land til viðgerðar í Helguvík.  Við eigum síld til vinnslu í næstu þrjár vaktir eða framm undir miðnætti. Svo stendur til að landa í fyrramálið í Rvík. eitthvað um 550 tonnum af afurðum. Ekki er annað vitað en að við förum á síld aftur en við eigum kvóta fyrir öðrum eins skamti af afurðum. Vonum að blessuð loðnan verði búin að stækka eitthvað meðan við erum á síldveiðum svo hún geti sómt sér á hvaða disk sem er austurfrá. Og með því segjum við yfir og út.

Allir í góðum gír.

Allt gott héðan af sjónum:) Bættum á okkur í gær sem nemur tveggja sólarhringa vinnslu og komnir með hátt á fjórða hundraðið í frystinn. Urðum fyrir því óláni í gær að rífa nótina frekar illa og liggur fyrir að fara í land með hana til viðgerðar. Jafnvel stendur til að létta á okkur á meðan viðgerð stendur en það kemur í ljós í dag. En segum þetta gott í dag og segjum yfir og út.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband