Löndun á Nes í dag!
16.2.2008 | 05:36
Góðan daginn fallega fólk hér er allt gott að frétta, við verðum í landi um hádegi og hefst löndun þá um leið við erum annars bara með besta móti hér um borð, annars lítið að segja læt textahornið fylgja með og Golli Jó segir yfir og út
Texti dagsins" gott er að geta talað við einhvern sem að skilur þig .........................."
og botnið nú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Meiri afli og allir vinir!
15.2.2008 | 05:15
Jæja gott fólk við erum að tala um rétt tæp 500 tonn í lestinni og nó af afla til, Kallinn (Guðjón Captain) tók sig til og keyrði á miðinn í gær og kastaði litlu nótinni og fékk þetta fína kast þannig að við erum komnir með nægan afla til að fylla, þannig að þetta er bara gleði, en ekki verður gleðin mikil hjá okkur ef þessi sérfræðingar setja stop á loðnuveiðar en við vonum að þeir sjái að sér hætti við þessa vitleysu. En svo við snúum okkur að öðru þá var gríðarleg þáttaka í textahorninu og verður maður því að henda fram einum fyrripart annars segir Gollinn yfir og út.
Texti dagsins: "Farðu til fjandans og taktu þennan ..............................................."
Og botnið nú!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Empty with frames
14.2.2008 | 05:53
Já það er eins og við manninn mælt, þið eruð þarna elskurnar ég ætla að reyna að fræða ykkur örlítið um gang mála, Ingi Guð og Böddi settu á Empty with frames ( fyrir þá sem ekki vita þá er það afhríming á tækjunum) og allt mallar vel bullandi afköst og erum við komnir með rúmlega hálfermi og eigum afla fram að kvöldmat og þá er spurning hvort verður landað og gert klárt fyrir japansfrystingu en það fer að bresta á og verða menn að vera með tómt skip þegar það skellur á. Annars allt gott og allir við hest heilsu. Gollinn segir yfir og út.
Texti dagsins: "og síðan hittumst við aftur á ...........................
og botnið þið svo
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Loðna sagði hann heillinn!
11.2.2008 | 19:33
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Landstím.
4.2.2008 | 21:20
Jæja loksins er túrinn að verða búinn, hættum veiðum um kvöldmatarleitið í gær, þrátt fyrir gott útlit með veður og afla, og dóluðum okkur upp undir Færeyjarnar í gærkvöldi og nótt svo að betur fór um drengina í vinnslunni.
Sigruðum frystilestina um miðjan dag í dag og var þá sett á fulla ferð áleiðis til Neskaupstaðar. Áætlað að við verðum þar um hádegi á morgun, þriðjudag.
Gullkorn dagsins er:"Glataður tími finnst ekki, þó þú leitir lengi."
Múffi kveður, er á leið í fríið, yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Borðsalsfréttir.
3.2.2008 | 11:57
Jæja loksins loksins sér fyrir endann á þessu. Fengum í gær upp úr hádeginu rúm 100 T þannig að strákarnir gátu byrjað að frysta. Hífðum svo aftur eftir kvöldmat 300 T. Smá bræla í nótt en kastað aftur um vaktaskiptin í morgun og er útlitið bara nokkuð gott. Þessi afli á að duga til að fylla frystilestina og svo er bara að bæta á í gúanó.
Hef það eftir manni sem ég mætti á ganginum sem hafði það eftir þriðja aðila að hugsanlega yrði landað frosnu á miðvikudag. Þess ber samt að gæta að þessar fréttir eru algjörlega úr lausu lofti gripnar.
Gullkorn dagsins er: "Sérhvað á sér sína orsök."
Múffi kveður yfir og út.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Aftur á veiðar.
1.2.2008 | 22:15
Jæja sælt veri fólkið. Vorum síðustu nótt í vari utan við Fuglafjörð í Færeyjum og kláruðum að frysta upp það sem eftir var af aflanum. Komnir með um 500 T í frystinn.
Fórum upp úr hádegi inn að bryggju í Fuglafirði og tókum kost og toll. Frá Fuglafirði áleiðis á miðin suður af Færeyjum um kvöldmatarleytið. Nú er bara að vona að hann gefi sig áður en næsta bræla skellur á.
Gullkorn dagsins er: "Maður dáist ekki að stúlku fyrir það sem hún segir, heldur fyrir það sem hún hlustar á."
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Norðanbræla.
30.1.2008 | 21:42
Sælt veri fólkið. Erum nú nýbúnir að hífa u.þ.b. 100 T af kolmunna og þar áður um 70 T. Höfum getað haft stöðuga vinnslu þrátt fyrir að aflinn hafi verið rýr. Verðum væntanlega komnir með um 350 T í frystinn um miðnættið.
Veðurspáin er víst ekkert of góð fyrir næstu daga þannig að væntanlega verður farið í var við Færeyjar og aldrei að vita nema að gúanóinu verði landað í Fuglafirði.
Fréttir af göngunum eru þær að það sé allavega hálfur mánuður eftir af þessum túr. En geðheilsa manna er enn í fínu lagi.
Bloggaraskriftara hafa borist athugasemtir um att stavsedninkin sje ekki nógu góð og mun hann reyna að bæta úr tví.
Gullkorn dagsins er: "Oft er ljót vísa rituð á góðan pappír, en góð vísa á vondan pappír"
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kolmuni- Kolmuni - Kolmuni.......
28.1.2008 | 22:58
Jæja sælt veri fólkið. Köstuðum trollinu síðastliðna nótt, toguðum í einhverja 4-tíma og uppskárum 70 -80 t af kolmuna. Erum að keyra það í gegn um frystingu núna. Kastað aftur um kaffi-leytið og erum við komnir með 4-punga inn þegar þetta er ritað. Þannig að útlitið er gott og sennilega verður híft um miðnættið.
Gullkorn dagsins er:"Það sem við eigum ekki að vita, eigum við ekki að óska að vita."
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Suður um höfin
27.1.2008 | 23:22
Jæja loksins meira blogg.
Fórum frá Tvereyri á Suðurey upp úr hádeginu í dag. Fórum þangað inn vegna brælu á föstudaginn. Flestir okkar héldu bóndadaginn heilagann á föstudeginum og skoðuðum bæði kirkju og sjóminjasafn. Stór og falleg tvílyft kirkjubygging hér á Tvereyri.
Annars allt gott hjá okkur, ennþá bræla en það sér víst fyrir endan á henni og vonandi verður hægt að kasta trolli á morgun.
Gullkorn dagsins er: "Málugir, aðhafast minnst."
Múffi kveður yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)