Karlarnir á landleið.
1.4.2008 | 10:25
Jæja gott fólk þá er enn eitt landstímið hafið. Hífðum í gærkvöldi u.þ.b. 300 T og lögðum af stað í land um kl 23:00. Frystilestin full 700T og u.þ.b. 1200 T af gúanói.
Ættum að vera komnir í land í Fuglafirði í Færeyjum á miðvikudagskvöldið, gúanólöndun aðfaranótt fimmtudags og frystilöndun samfara því út aftur í annan túr seinni part fimmtudags.
Heyrst hefur á göngunum að áhafnarskiptum verði frestað þar til eftir næsta túr.
Gullkorn dagsins er: "Þakklætið er mál hjartans"
Fjórða erindi í þroskasögu karla er:
Frá tvítugu til þrítugs blómstrar lífsins leikur
löngunin er stöðug og andi holdsins veikur.
Þú lætur eins og knapi á ljónfjörugum hesti
þig langar til að gera það á klukkutíma fresti.
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Rússaraunir...
30.3.2008 | 22:53
Sælt veri fólkið.
Fengum rúm 300T í morgun sem er nægt hráefni til að klára frystinguna. Ættum að sigra frystilestina seinni partinn á morgun. Mættum Rússatogara á togi í dag sem kom full nálægt okkur og varð það til þess að trollið rifnaði hjá okkur. Ekki var eins mikið í og efni stóðu til ca 100 T. Dekkkarlarnir okkar voru snöggir að græja vara-trollið og koma því svo í sjóinn.
Gullkorn dagsins er: "Vertu dyggðugur og þú verður hamingjusamur".
Þriðja erindið í þroskasögu karla er:
Fram að tvítugsaldri er talsvert um að vera
taumleysið er algert og mikið oft að gera.
Því núna er það fjöldinn sem mestu máli skiptir
og mörgu Grettistaki um næturnar þú lyftir.
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Karlarnir að fiska......
29.3.2008 | 21:58
Jæja sælt veri fólkið. Erum aðeins búnir að bæta á okkur í dag, fengum 320 T í morgun og svo annað eins í kvöld. Ættum að geta orðið í landi á miðvikudag eða fimmtudag.
Bloggritari þakkar Sævari Sigmars hlýjar kveðjur og vonandi reynist BMW honum vel."Baader Meinhoff escape car"
Gullkorn dagsins er: "Eftir góða máltíð getum við fyrirgefið öllum - meira að seigja ættingjum"
Annað erindi í þroskasögu karla er:
Svo í kringum fermingu þá fá menn bassaróminn
og finnast þeir vera tilbúnir til að kanna leyndardóminn.
En þetta er oftast klúður og klaufalegir fundir
því kynlífið á líka sínar raunalegu stundir.
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hákons-fréttir.
28.3.2008 | 21:08
Sælt veri fólkið.
Fengum 200 T í gær og ættum að verða búnir að frysta það í nótt. Reiknum með að verða komnir með um 460 T í frystilestina núna um miðnættið. Höfum bara verið að láta reka á meðan að vinnslan er í gangi. Búið að vera hálfgerð bræla í dag. Eigum þá eftir að frysta 250 T og veiða 1300 T í bræðslu.
Annars er allt gott að frétta af okkur, við erum vel haldnir og aldir, nýi matsveinninn sér fyrir því. Veisla á hverjum degi, fengum t.d. áðan nautasteik með bernis og bökuðum kartöflum.
Gullkornið er: " Allir gjörum vér meira illt og minna gott heldur en í raun og veru ásetningur vor er"
Læt hér fylgja með fyrsta erindið í þroskasögu karla:
Barnaskólaárin eru mörgum fersk í minni
því miklar verða breytingarnar á líkamsstarfseminni.
Mörgum fer þá bráðlega að leiðast lestrarstritið
þá læðist gjarnan inn í kroppinn fyrsta hvolpavitið.
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fengum afla strax.
26.3.2008 | 12:24
Sælt veri fólkið.
Köstuðum rétt fyrir hádegið í gær og hífðum um tvöleitið u.þ.b.150 T. Frysting komin á fullt skrið og u.þ.b. 100 T komin í frystinn nú þegar þetta er skrifað.
Fréttum af því að fyrrum skipsfélagi okkar Geir Haraldur Fannar Hilmar Zoega sé hér á miðunum með okkur sem yfirstýrimaður á aflaskipinu Margrét EA. Sendum við honum okkar bestu kveðjur og óskir um góða veiði.
Gullkorn dagsins er: "Þeir eru til, sem finna ævinlega hár í súpudiskinum sínum af þeirri einföldu ástæðu, að þegar þeir setjast við diskinn hrista þeir höfuðið þangað til hár dettur ofan í."
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Annar kolmunnatúr.
25.3.2008 | 09:34
Sælt veri fólkið.
Við eru lagðir af stað í annan kolmunnatúr á miðin vestur af Írlandi. Fórum frá Neskaupsstað um hálfsjöleitið á páskadagskvöld eftir að hafa landað í bræðslu á laugardeginum, 1330 T og frosnu á páskadag, 700 T. Reiknum með að verða komnir á miðin um miðjan dag í dag.
Út í túrinn komu með okkur tveir nýir áhafnarmeðlimir sem ekki hafa verið hér áður. Annar fór í eldhúsið ,Friðrik, og hinn fór á dekkið, Jói T II. Bjóðum við þá hjartanlega velkomna og vonandi fiskast vel á þá.
Gullkorn dagsins er: "Lífið er árekstur milli ráðagerðar og raunveruleikans".
Múffi kveður , yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagg og velta
21.3.2008 | 10:09
Jæja jæja-sælt veri fólkið.
Af okkur er það helst að frétta að við stútfylltum bátinn af gúanói seint á miðvikudagskvöldið og lögðum strax af stað til Neskaupsstaðar. Miðað var við að við yrðum þar á laugardagsmorgun en veðurguðirnir hafa sett strik í reikninginn hjá okkur og er útlit fyrir að okkur seinki eitthvað. Kl 09:00 voru 320 sm eftir og gekk skipið á því augnabliki 8 sm. Gert er ráð fyrir að veðurguðirnir fari mildari höndum um okkur þegar líða fer á daginn og vonir standa til að við náum á áfangastað upp úr hádegi á laugardag. Menn hafa lítið gert annað en að halda sér og reyna að skorða sig í kojunum.
Gullkorn dagsins er: "Sonur mun efast tvisvar um vitsmuni föður síns áður en hann efast einu sinni um hjartarlag móður sinnar".
Múffi kveður yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Löndun á laugardag fyrir páska á Neskaupsstað.
19.3.2008 | 11:54
Sælt veri fólkið.
Af okkur er það helst að frétta að síminn komst í lag í gær með góðri aðstoð manna í landi. Sumir sögðu nú reyndar að nú væri friðurinn úti. Það á nú reyndar ekki við um Dodda kokk því hann er búinn að vera í símanum síðan hann kom inn. Er reyndar að leita af kokki til að leysa sig af og er þessari auglýsingu hérmeð komið á framfæri.
Sigruðum frystilestin núna í morgun og núna vantar okkur aðeins 150T + í bræðslu.
Fyrir hugað er að landa á Neskaupsstað á laugardaginn.
Gullkorn dagsins er: "Það verður sumum mönnum til óhamingju, að hamingjan hefur verið þeim of fylgisspök"
Múffi kveður og segir yfir og út.
P.S. Hvetjum fólk endilega til að kvitta fyrir í gestabókina ef það lítur inn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Löndun í Brest - Frakklandi?
17.3.2008 | 10:26
Jæja sælt veri fólkið. Lítið að frétta af okkur, erum komnir með ca 450 T í frystinn. Fengum 130T í nótt en nú virðist botninn að vera dottinn úr þessu, ekkert að sjá á svæðinu núna þannig að við erum að færa okkur sunnar í einhverjar aflafréttir.
Væntanlega verðum við komnir svo sunnarlega að það verður styttra að landa í Brest í Frakklandi heldur en að sigla með aflann til Íslands. En þetta er nú kannski bara óskhyggja!
Gullkorn dagsins er: "Þrennt skaltu lifa í sáttum við: Konu þína, maga þinn og samvisku þína."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Frysting komin á fullt.
14.3.2008 | 20:19
Jæja sælt veri fólkið.
Fengum ágætis kolmunnahol í nótt, ca 150 T. Frystingin kominn á fullt og við búnir að liggja á meltunni í dag. Trollinu sennilega kastað aftur þegar fer að kvölda. Erum komnir með ca 130 T í frystinn.
Mottukeppnin tók smákipp þegar að það fréttist að Doddi kokkur ætlaði að leggja framm auka páskaegg í vinning. ( Hann er nú nokkuð sigurstranglegur sjálfur)!
Gullkorn dagsins er: "Það er verst með hyggindin, sem maður öðlast með aldrinum, hvað lítill tími er til að nota þau."
Múffi kveður yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)