Ja, sjalftakk.....

Góðan dag! Þetta byrjar bara ágætlega hjá okkur hérna. Fengum u.þ.b. 80t í fyrsta holi, það var stutt dregið og svona til að starta vinnslunni. Köstuðum svo aftur seinnipartinn í gær og hífuðum 200 tonn um miðnættið. Slatti af gulllax í því holi. Verðum búnir að frysta fyrsta lag (100t) seinnipartinn þannig að það er bara ágætis gangur í þessu. Segjum þetta gott í bili og Marri segir yfir og út.

Spakmælið: Ef maður ætti að lesa öll lögin, væri enginn tími til að brjóta þau.


Loksins byrjaðir að toga

Góðan dag gott fólk!  Þessi löndunar innivera var ekkert nema vesenið. Byrjuðum á að landa Kolmunna í bræðslu á Seyðis en það tók eina 16 tíma að landa rúmum 900t. En það er um helmingi lengri tími en venjulega, ýmsar ástæður eru fyrir þessu en þó helst sú að kolmunninn er svo horaður núna og rennur illa í lestunum. Ljósi punkturinn er frystilöndunin þar sem starfsmenn Tandrabergs bregðast ekki og kippa 700 tonnum úr frystinum á 12 tímum sléttum eins og venjulega:). Og svo kemur skandallinn!!!! Engar umbúðir tilbúnar á staðnum til að hafa með í næsta túr!!!!!! Seinkaði brottför að þeim sökum um rúma 20 tíma við lítinn fögnuð áhafnarmeðlima. 

 Köstuðum upp úr átta í morgun en ekkert sérstakt útlit í augnablikinu. Vonum að það lagist. Og með þeim orðum segir Marri yfir og út.

Spakmæli dagsins:Ef þú hlustar á of margar ráðleggingar, endar það með því að þú ferð að endurtaka mistök annara.


Daga villa......

Það gefur áGóðan dag á þessum drottins degi! Verð að byrja á því að leiðrétta mig með inniverudag. Er eitthvað dagavilltur þessa dagana. En til að taka af öll tvímæli þá verðum við inni um miðnætti í kvöld og biðst ég afsökunar ef þessi dagavilla hefur valdið einhverjum óþægindum.  Annars allt gott af okkur, lægði töluvert eftir því sem norðar dró og fer bara ágætlega um okkur.  Almennur áhugi var hér um borð fyrir söngvakeppni framhaldsskólanna og sýndist sitt hverjum um ágæti keppenda en það var þokkaleg sátt um sigurvegarann.  Og að því sögðu segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Hamingjan er eins og ilmvatn, sem þú getur ekki sett á aðra án þess að nokkrir dropar loði við þig.


Haldið af stað í land......

Pokinn á síðunniSlitinn sterturGóðan dag gott fólk! Vill birja á því að þakka Múffa fyrir frábærar blogg færslur sl. mánuð. En nú er að styttast í frí hjá kallinum og hefur hann eftirlátið mér bloggið:).

Það helsta í fréttum af okkur er að við hífðum í morgun c.a. 150 tonn eftir 15 tíma og ákveðið að snúa rassinum í þetta veiðisvæði og halda áleyðis í land. Fylltum frystinn upp úr miðnætti og erum með eitthvað um 1000 tonn í bræðslu. Læt hér fylgja eina bras mynd. þurftum að sækja stertinn á léttabátnum um daginn þegar festing fyrir hann slitnaði af pokanum. Strákarnir voru ekki lengi að því en það er eins og með allt bras að sumum brestur þolinmæðin meðan á því stendur. Annars allt gott af okkur væntanleg heimkoma, ef við rekumst ekki á kolmunna, verður væntanlega aðfara nótt þriðjud. Kem til með að gefa nákvæmari tíma þegar nær dregur. Og með þessum orðum segir Marri yfir og út.

Spakmæli dagsins: Það að nema staðar andartak stöku sinnum er oft eina leiðin til þess að vera fær um að halda áfram.


Rockall

Jæja sælt veri fólkið.

Fengum í dag um 200 T  eftir 12 tíma tog, eitthvað farið að tregast hjá körlunum. Erum komnir með um 560 T í frystilestina.

Bloggritari þakkar allar athugasemdir og "Poolararnir" samir við sig með sínar fátæku athugasemdir. Segir eiginlega allt sem segja þarf um þá!!!

Annars er gullkornið eftirfarandi:" Ríkar stúlkur líkjast gullúrum,- kassinn er bestur."

Og síðasta erindið í þroskasögunni er:

Eftir þennan tíma er löngun best að leyna
og láta ekki glepjast þó konan vilji reyna.
í átökunum getur sálin gengið öll úr lagi
þú gætir orðið bráðkvaddur úr ellireiðarslagi.

Múffi kveður og segir yfir og út.


Fréttir af Rockall..

Jæja sælt veri fólkið.

Fengum í morgun u.þ.b.240 T og ættum að vera komnir með um 470 T í frystinn núna um miðnættið.

Nú þurfa þeir mágarnir Gaui og Addi í brúnni að fara að setja í gúanó-gírinn og stefna á að landa á Neskaupsstað strax eftir helgi.

Annars er það helst að frétta að Arsenal-karlarnir eru frekar framlágir þessa dagana Errm, Liverpool-karlarnir eru gjörsamlega óþolandi W00t, Man United karlarnir náttúrulega alveg sér í sínum heimi, aleinir.Alien

Við Chelsea karlarnir virðumst vera einu karlarnir sem eru niðri á jörðinni.Smile

Gullkornið er: "Þeir sem halda þrumandi ræðu, gæta þess ekki ætíð, hvar eldingunni slær niður."

Níunda erindið í þroskasögunni er:

Um áttrætt virðist sjálfsagt að hafa hug á konum
í hjartanu er ylur og löngunin að vonum
þér finnst það skipta máli hjá meyjunum að vera
en manst þó stundum ekki hvað þú ætlaðir að gera.

Múffi segir yfir og út.


Rífandi gangur.

Sælt veri fólkið.

Fengum í dag u.þ.b. 170 T og liggjum nú á meltunni og frystum og frystum. Erum komnir með um 240 T í frystilestina. Rífandi gangur í þessu hjá okkur.

Gullkornið er: "Hóflega drukkin kona gleður mannsins hjarta."

Áttunda  erindið í þroskasögunni er:

Um sjötugsaldri finnst þér aftur fjörið vera að lægja
þú ferð nú yfirleitt að láta gömlu brýnin nægja .
Það miðar hægt ef vindurinn stendur beint á stefnið
þú stundar þetta bara til að halda þér við efnið.

Múffi kveður og segir yfir og út.


Smáfréttir......

Jæja sælt veri fólkið.

Fengum í gærkvöldi u.þ.b. 150 T  og rúm 100 T núna í kvöld. Komnir með rúm 100 T í frystinn.

Kveðjur til allra Man United aðdáenda - erfiðir leikir framundan!!

Gullkorn dagsins er: "Svo er hver ferð sem henni líkur".

Sjöunda erindið í þroskasögunni er: 

Þessi löngun fylgir þér fram á sextugsaldur
þér finnst þú vera töffari og svakalega kaldur.
Um sextugt fer að hrella þig viðsjáll vöðvaslaki
þú verður oftar þreyttur og tollir illa á baki.

Múffi kveður og segir yfir og út.


Landlegu lokið, annar túr hafinn.

Jæja gott fólk. Nú erum við lagðir af stað í enn annann kolmunnatúr á miðin norðvestur af Írlandi.

Fórum frá Neskaupsstað um kl. 03:00 aðfaranótt föstudags eftir að hafa landað 1270 T í gúanó og 700 T af heilfrystum kolmunna. Ættum að vera komnir á miðin um hádegið í dag.  Engar sérstakar aflafréttir af miðunum en samt er eitthvað að nuddast upp hjá skipunum.

Gullkornið er: "Þroski er hæfileikinn að lifa í heimi annarra."

Sjötta erindið í þroskasögunni er:

Síðan næsta tímabil fram að fimmtugsaldri

finnst þér alveg sjálsagt að beita nýjum galdri

kroppurinn er fullur af fiðringi og vonum

þú ferð að vilja sofa hjá miklu yngri konum.

Múffi kveður og segir yfir og út.


Annar apríl

Jæja gott fólk.

Bloggritari biðst velvirðingar á því að hafa vísvitandi farið með rangt mál í gær þegar tiltekin var löndunarhöfn og að ekki yrði um áhafnarskipti að ræða. Einhverjir létu þó blekkjast t.d. fréttist af tveimur skipsfélögum okkar sem væntanlegir eru um borð næst að vera að hringja í útgerðarmanninn og spyrja hann út í þetta. Þeir hafa væntanlega séð fram á að eiga lengra frí í vændum. Einnig fréttist af félaga okkar á Margrét EA sem var að furða sig á hvað við værum eiginlega að gera til Færeyja.  Einhverjar eiginkonur hringdu einnig um borð og voru heldur óhressar með að karlarnir kæmu ekki heim í frí.  Þannig að þetta aprílgabb telst hafa heppnast nokkuð vel.

Við verðum í landi á Neskaupstað um kl 22:00 í kvöld.

Gullkornið er:" Að umgangast eðlilegt og dugmikið fólk er lækning í sjálfu sér".

Fimmta erindið í þroskasögunni er:

Frá þrítugu til fertugs eru gjarnan góðar stundir
geysilegur vilji og margir ástarfundir.
Af talsvert meiri nákvæmni þú tilfinningar metur
þú treinir þetta lengur, þú gerir þetta betur.

Múffi kveður og segir yfir og út.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband