Fer að sjá fyrir endann.....
2.5.2008 | 08:26
Góðan dag! Verðum búnir að fylla frystinn um miðnættið en það fer ekki eins góðum sögum af bræðslufiski. Fengum eitthvað um 200 tonn í gærkvöldi eftir gærdaginn. Erum komnir með ca 300 tonn í gúanó en betur má ef duga skal. Ekki er komið á hreint hvort við leggjum af stað í land í kvöld eða laugardagskvöld. En hvað sem því líður þá segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Vaninn er ýmist besti þjónninn eða versti húsbóndinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hæ hæ hæ, hæ þú, hæ þú.........
1.5.2008 | 07:40
Góðan dag! Vinnslan gengur bara vel og erum við komnir með tæp 500 tonn í frystinn. Veiðarnar hafa aftur á móti verið með tregasta mót þó að vel hafist undan að fiska í vinnsluna. Fengum eitthvað um 150 tonn eftir ellefu tíma tog í gærkvöldi sem þykir ekkert sérstakt eftir svo langan tíma. Það var kippt eitthvað austar í nótt og verið að láta það fara núna í þessum skrifuðu orðum. Nú þarf að fara að fiskast betur því nú er komið að því að við þurfum að fara að salla á okkur í bræðsluna. Við erum að gæla við að verða um helgina í landi með fullt skip og vonandi gengur það eftir. Þeir á Bjarna Ólafssyni voru að koma á miðin í gær eftir löndun og færðu okkur smá pakka úr landi. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Og þá segir Marri yfir og út.
Spakmælið:Skemmtanir eru hamingja þeirra, sem hugsa ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í góðum málum.
29.4.2008 | 07:06
Góðan dag! Höfum þetta stutt og laggott í dag. Erum komnir með rúm 200 í frystinn og er bara góður gangur á þessu. Hífuðum seint í nótt og reyndust vera ca. 200 tonn í sekknum, þannig að við erum vel settir næsta sólarhringinn. Einhver bræluspá er í kortunum en við vonum nú að það verði ekki til þess að við þurfum að fara að halda uppí. Og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Verkin sýna merkin.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kokkurinn inni...
28.4.2008 | 07:13
Sælt veri fólkið! Jæja þá er kokkurinn kominn inn úr kuldanum, það er nú ekki hægt annað eftir kræsingar gærdagsins. En þá að veiðum og vinnslu. Köstuðum snemma í gærmorgun og dældum uþb. 130 tonnum um tíuleitið. Fínasti gangur í vinnslunni og eru þeir að sigra fyrsta lagið í frystinum. Ekki meira að sinni og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Hafðu augun á hugsjónum þínum og fæturna á jörðinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðilegt sumar.
26.4.2008 | 09:22
Góðan dag og gleðilegt sumar! Verðum á kolmunnamiðum upp úr hádegi í dag og vonumst við til að þessi túr gangi eins vel og sá síðasti. Herfuglinum okkar var sleppt lausum þegar komið var til Neskaupstaðar og var frelsinu feginn. Hann var víst á baksíðu Moggans í gær. Einhvern langaði að vita hvar við vorum staddir þegar fuglinn kom um borð. Eftir því sem kemst næst vorum við rétt sloppnir inn í ísl. lögsögu. Það komu hér ungar stelpur í heimsókn og fengu far með okkur frá bæjarbryggjunni í Nes inn að löndunarbryggju, rosa gaman hjá þeim. Marri segir yfir og út.
Spakmælið:Það ætti að taka á móti hugmyndum sem gestum, vingjarnlega, en ekki láta þær ríkja yfir þér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kokkurinn látinn fjúka.......
23.4.2008 | 07:45
Góðan dag! Verð nú að byrja á að skýra út fyrirsögnina. Það stóð til að kokkurinn yrði aðalmyndefni dagsins en það kom miklu áhugaverðari gestur til okkar hér í gærkvöldi:). Þetta grey sem myndin er af fannst hér úti á dekki. Menn rak í vörðurnar með hvað þessi fugl hét og hver hans aðal heimkynni eru. Þökk sé netinu þá komumst við að því að hann heitir Hoopoe (lat;Upupa epops). Siggi Þorláks bætti svo um betur og kom með ísl. heitið sem er Herfugl.
Annars allt gott af okkur, lögðum af stað í land seinnipartinn í gær og verðum við norðfjarðarhorn um sexleitið í dag. Fullur frystir og um 1200 tonn í bræðslu. Hoopoe og Marri segja yfir og út.
Spakmælið: Þegar um peninga er að ræða þá hafa allir sömu trúna.
Heimildir:http://en.wikipedia.org/wiki/Upupa_epops
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Og enn styttist.....
22.4.2008 | 08:37
Góðan dag! Jæja þá fer þessum túr nú að ljúka. Erum komnir með tæp 600 tonn í frystinn og eitthvað um 1000 tonn í bræðslu. Erum rétt í þessu að dæla restinni úr pokanum sem myndin er af. (300+). Stýrimaðurinn ánægður með afrakstur næturinnar enda má hann vera það. Tókum eitthvað svipað fyrir miðnætti í gærkvöldi. Veit ekki hvort það verður tekið eitt hol í viðbót seinnipartinn þegar við verðu búnir að vinna aðeins niður úr tvö lestunum. En hvað sem því líður þá segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Enginn er eins góður og hann heldur sig vera, - enginn eins illur og aðrir halda hann vera.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Styttist í landstým.
21.4.2008 | 10:08
Sælt veri fólkið! Vorum komnir með rúm 400 tonn í frystinn um síðasta miðnætti og eru kallar nú byrjaðir að stafla upp í loft í aftari frystilestinni. Vorum að enda við að hífa ca. 250 tonn. Ganga fréttir segja að við höldum af stað í land annað kvöld. Ef þær fréttir eru réttar verðum við í landi miðvikud. eða fimmtud., sýnist mér að það ætti að geta staðist. Á myndunum sem ég læt fylgja þessum pistli má sjá rjómann af útimönnunum, þeir á hinni vaktinni kannski ekki sammála, en ég stend við þessi orð
. Og m eð því segi Marri yfir og út.
Spakmælið: Eitthvað mistekst þá margt er haft í takinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Afmælisbörn......
20.4.2008 | 13:13
Sælt veri fólkið. Rjúkandi gangur á veiðum og vinnslu. Erum komnir Með rúm 300 í frystinn og verður væntanlega fært upp í efsta gat um miðnættið. Fengum eitthvað um 400 tonn af kolmunna í gærkvöldi, svona aðeins til að salla í gúanóið. Og þá eru það afmælisbörn dagsins í boði Sævars Lárus (saevar79) en þau eru, í sömu röð og hann nefndi þau, Hitler, Dísa og Halldór bróðir. Veit ekki hvort það verði boðið upp á þennan lið í hverju bloggi, en sjáum til með það. Já og meðan ég man, til hamingju með daginn afmælisbörn, allavega þeir sem hafa tök á að lesa bloggið. Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Lífið - mannsaldur hinum auma, andartak hinum hamingjusama.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Allt í þessu fína.
19.4.2008 | 07:55
Góðan dag! Hífðum tæp 200 tonn um miðnættið í gær og lögðumst svo á meltuna. Erum komnir með um 200 i frystinn, núna þegar þetta er skrifað, og eitthvað á annað hundrað í gúanó. Þar munar mikið um gulllaxinn sem við fengum. Það má nú segja að það hafi verið haldið upp á afmælið hjá VMK manninum í kyrrþey. Enda maðurinn kominn á þann aldur að menn standa nú ekki á torgum og úthrópa sig um hann. En til hamingju með daginn í gær Andri. Og að því sögðu segir Marri yfir og út.
Spakmælið:Merki þess að einhver maður er fæddur með miklum hæfileikum, er að hann er ekki öfundsjúkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)