Sandur af seðlum !!!
27.5.2008 | 22:57
Jæja gott fólk, nú er farið að sjá fyrir endan á þessum túr hjá okkur. Frystilestin ætti að fyllist um miðnættið.
Við komum til með að landa afskurðinum í bræðslu á Seyðisfirði í fyrramálið. Síðan verður haldið yfir á Norðfjörð og landað rúmum 700 tonnum af frosnum síldarflökum á fimmtudaginn.
Aflaveðmætið ætti að vera nálægt 70 kúlum eftir aðeins níu daga veiðiferð, þar af fóru tveir dagar í að leita af henni blessaðri. Ekki ónýtt það hjá strákunum og ættu þeir að geta haldið sjómannadaginn hátíðlegann þetta árið með bros á vör.
Læt hér fylgja með fallega mynd af sólarlaginu hjá okkur, ætti að sýna birtuna í hjörtum okkar!
Þórður bryti á gátu dagsins: "Hvernig bakkar maður á sjálfan sig?"
Gullkornið er: "Við berum ábyrgð, ekki aðeins á því sem við gerum, heldur líka það sem við gerum ekki."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Evrovision - gleði og sorg!
25.5.2008 | 20:42
Jæja gott fólk nú eru úrslitin úr evrovision-söngvakeppninni ráðinn og og sá aðili sem giskaði á í hvaða sæti Ísland mundi lenda er 30000 kr. ríkari í dag en hann var í gær.
Böddi VMK-maður var sá getspaki og getur hann greinilega ekki leynt gleði sinni.
Sumir aðrir gátu ekki leynt vonbrigðum sínum yfir úrslitunum, 7-sæti "com on"
Okkar helsti sérfræðingur í evrovision sönglagakeppnum var einnig nokkuð getspakur en hann giskaði á að Ísland mundi lenda í 15. sæti. Var hann reyndar langhrifnastur af Úkraínska laginu einhverra hluta vegna.
Annars er það helst af okkur að frétta að við hífðum í morgun rúm 200 T og reiknum með að sigra 500 T múrinn í frystilestinni núna um miðnættið.
Síldinni dælt upp á skiljarann. Gísli Árna uppi á skiljaranum
Annars allt gott af okkur að frétta.
Gullkornið er: "Gjörðu hið góða vegna hins góða, án tillits til þess, hvað af því leiðir."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
"Svartur sjór af síld"
23.5.2008 | 23:36
Jæja gott fólk smá blogg hérna.
Bloggritari hefur verið dálítið langt niðri síðan að úrslitin urðu ljós í meistaradeildinni en góð síldveiði er að bæta það upp.
Við óskum Man. United aðdáendum til hamingju með bikarinn, þeir eru vel að honum komnir.
Ættum að vera komnir með góð 300 T í frystinn um miðnættið. Vinnsla og frysting hefur gengið nánast áfallalaust fyrir sig. Reynt er að láta veiðina ráðast af vinnslugetunni þannig að ávallt er verið að vinna ferska síld.
Nú er hafið hér um borð veðmál um það i hvaða sæti Ísland lendir í í Evrovision söngvakeppninni. Hver þátttakandi leggur undir 1500 kr og sá sem sigrar fær þá pottinn.
Sumum hér um borð finnst þessi keppni vera algjör lágkúra og kalla hana jafnvel hinum verstu nöfnum. T.d. hefur "Norðlensk hommasöngvakeppni" heyrst á göngunum.
Annars er gullkorn dagsins eftirfarandi: "Sá þarf mikið að sjóða, sem mörgum vill bjóða."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Síldarævintýrið hafið.
21.5.2008 | 10:41
Jæja gott fólk, loksins er íslensk-norska síldin farin að veiðast. Köstuðum trolli um 140 sm norðaustur af Langanesi um tíuleitið í gærkvöldi. Hífðum svo aftur um miðnættið u.þ.b. 170 m3.
Síðan var aftur dregið í um tvo tíma í nótt og híft á glasi í morgun u.þ.b. 220 m3.
Vinnsla og frysting er hafin á fullu og fór það nokkuð vel af stað. Síldin er frekar horuð og töluvert af átu í henni. Meðalvigtin er um 330 g.
Liggjum nú á meltunni og flökum og frystum á fullu og vonandi verður hægt að kasta aftur með kvöldinu.
Síldin í flökunarvélinni. Síldin flökuð.
Gullkorn dagsins er: "Sitt upphaf velur enginn."
Jæja gott fólk nóg komið í bili Múffi kveður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Til síldveiða höldum nú.....
19.5.2008 | 15:17
Jæja jæja jæja. Sælt veri fólkið.
Smá hlé hefur verið á bloggskrifum upp á síðkastið en það atvikast af því að helstu bloggritarar hafa verið í frí á sama tíma.
Af okkur er það helst að frétta að eftir löndun þann 14. maí var haldið aftur til kolmunnaveiða suðvestur af Færeyjum og urðu aflabrögð frekar lítil. Komum til baka úr þeirri veiðiferð til Neskaupsstaðar þann 18 maí með öngulinn í rassinum. Landað var 70-80 T af heilfrystum kolmunna, kolmunninn kvaddur og gert klárt á síldveiðar á íslenskri-norskri síld.
Farið var frá Neskaupsstað kl.21:30 þann 18. maí í síldarleit.
Gullkorn dagsins er: "Fljúg ei svo hátt þú fallir"
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fullur frystir!
12.5.2008 | 06:19


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Boltinn fer að rúlla!
10.5.2008 | 05:06



Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Góðan dag gott fólk
8.5.2008 | 17:19
Jú daginn gollinn hérna hinumeginn hér er bara bullandi gleði komin um 270 tonns í lestina og nóg af hráefni til að vinna, þannig að við tölum um það að gleðin sé mikil og bæirnir allt í kring. Veðrið leikur við okkur hér við færeyskasjónum 15 stiga hiti, logn og sól og tala menn um að hitinn á millidekkinu kalli bara á svima svima svitabað svima svima bað já svo mörg voru þau orð, Gollinn segir had di bra og kveður með yfir og út.
Heimildamaður með hitastig: Sigurður Þorláksson
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Byrjar aftur þessi.....
7.5.2008 | 06:47
Óllísanlegi kraftur, brátt fylgja mjðmirnar ögrandi með, eins og Páll Óskar söng hér forðum, af okkur er bara vel að frétta, takið eftir því bara vel jú Dabbi er mættur hér er mynd af kappanum með man utd gleraugun sín. En við fengum einhver 260 tonn í gær og erum að sigra fyrsta lag í lestinni þannig að þetta mallar fínt. erum að draga og vonum að Jón Þór nái að lokka einhverja svartkjafta í pokann.
Slúður dagsins: Jú slúðrið Áskell ea er mættur á svæðið og heyrðist það á göngunum að Geir Haraldur Hinrik Zoega hafi fengið óútfyllta ávísun hjá Inga útgerðarmanni áður en lagt var af stað og á Geiri að nota hana til að kaupa afla af okkur á miðunum sel það ekki dýrara en ég keypti það Gollinn segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Á landleið.
3.5.2008 | 11:03
Góðan dag! Það fór svo að það var sett á ferð í land eftir holið í gær. Fengum þá uþb. 200 tonn eftir 12 tímana. Verðum í landi í Neskaupstað kl. 22:00 og verður strax hafist handa með bræðslulöndun. Frosnum afurðum verður svo landað á sunnud. Nú kveð ég að sinni, frí framundan, og um leið og ég þakka fyrir mig segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Mannjöfnuður er hvimleiður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)