Fer að sjá fyrir endann.......
20.6.2008 | 07:51
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Búnir að finna hana.
19.6.2008 | 08:18
Góðan dag! Eftir nokkurt reyðuleysi í gær og síldarleit var kastað í gærkvöldi. Hífðum 200t í nótt af vænni síld, meðalvigtin 330gr sem er mjög gott. Gaman að heyra að það er að fjölga skipum á miðunum, Kap og Sighvatur lögðu af stað í gær. Læt hér filgja með mynd af Múkka (Fíl) sem er ekki tekin á pollinum á Akureyri heldur hér á miðunum um daginn. Þá var eins og að sigla á heiðartjörn, alveg spegilsléttur sjór. Kveðjur frá okkur og marri segir yfir og út.
Spakmælið: Margur kyssir barnið, en er ástfangið af barnfóstrunni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nóg síld í sjónum
18.6.2008 | 10:42
Góðan dag gott fólk! Erum búnir að hækka í efsta gat en það er einn galli, það vantar síld um borð. Erum að leita ásamt Guðmundi VE og eru þá upptalin þau íslensku skip sem eru á svæðinu. Aðrir fylgjast með úr fjarska. Það er nóg af síld í sjónum, það er bara að finna hana. Það væri nú gott ef fleiri skip sæju sér fært að taka þátt í leit. Með von í hjarta segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Sannleikurinn bíður ekki tjón við það að vera sleginn í andlitið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hey hó jibbí jeey, jibbíííí jey, það er kominn 17. júní.
17.6.2008 | 09:02
Gleðilegan þjóðhátíðadag! Það er greinilega gott að vera mátulega svartsýnn svona annað slagið. Það er búið að vera þetta fína fiskirí síðustu sólarhringa. Kláruðum þriðja lagið uppúr miðnætti og allir glaðir. Nú eins og endranær sannast hið fornkveðna að þeir fiska sem róa. Annars allt gott af öllum nema vinnslustjóranum okkar, hann liggur nú fyrir illa haldinn af flensu, vonumst við til að hann nái skjótum bata. Og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Karl og kona voru sköpuð til að fullkomna hvort annað, ekki til að verða eins.
Bloggar | Breytt 18.6.2008 kl. 09:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins loksins.
15.6.2008 | 19:21
Gott kvöld gott fólk! Loksins kemur blogg frá okkur hér á Hákoni. Ekki vegna þess að það sé ærin ástæða til aflalega séð heldur svona meira til að láta vita af okkur. Það er ekki saman að jafna þessu túr og þeim síðasta. Fórum frá Neskaupstað eftir löndun sl. miðvikudag til síldveiða og enduðum hér norður í Jan Mayen lögsögunni. Byrjuðum á ágætis holi eða um 150 tonnum og lofaði það bara góðu. En holin þar á eftir voru hvert öðru minna sem endaði með uppihaldi í vinnslu í tæpan sólarhring. Í dag er búið að vera eitthvað kropp. Erum byrjaðir að roðfletta síldarflökin en að sögn eru góð verð í gangi á þeim. Erum búnir að sarga upp afla í rúmt fyrsta laq í frystinn. Í kvöld var brotin upp áralöng hefð hér um borð fyrir hamborgurum í sunnudagskvöldmat. Við fengum þennan fína ofnbakaða lax, sem kom í trollið hjá okkur, og ýsu fyrir gikkina. Takk fyrir tilbreytinguna Brúnn. Með þessum orðum segir Marri yfir og út.
Spakmælið:Það er verst með hyggindin, sem maður öðlast með aldrinum, hvað lítill tími er til að nota þau.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Landstím
9.6.2008 | 07:49
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kippur í lengra lagi.
8.6.2008 | 10:17
Sælt veri fólkið! Hífuðum lítið í morgun og var búið að toga síðan í gærlvöldi. Höfum afla til að fylla afturlestina og ekkert að sjá í augnablikinu. Fréttir af góðum torfum 140 mílur norðaustur af okkur og er stefnan sett á þá veiðislóð í augnablikinu. Annars er allt gott að frétta og allir við góða heilsu. Kokkurinn okkar hann Brúnn frá hóli dregur hverja stórveisluna framm úr erminni, algjör snillingur maðurinni. Kanski finnst manni hann enginn snilli þegar maður stígur á vigtina. Og með því kveður Marri í bili.
Spakmælið: Vendu þig á vandvirkni, tuttugu störf hálfgerð eru ekki jafnmikils virði og eitt fullgert.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fjölgar á bleiðuni
6.6.2008 | 12:04
Góðan dag! Bættum á okkur tæpum 200 tonnum í gærkvöldi svo það er nægt hráefni fyrir vinnslu framm undir miðnætti. Það er að nálgast 300 tonn í frystinum þannig að það er allt í sómanum hér. Skipunum fjölgar nú á bleiðuni, eru þeir komnir hingað Vilhelm Þorsteinsson og Ásgrímur Halldórsson og fréttir af fleirum á leiðinni. Bkv. Marri
Spakmælið: Af gnægð hjartans mælir munnurinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allt í fínu standi.........
5.6.2008 | 10:00
Jæja gott fólk, aðeins meira blogg.
Hífðum í morgun u.þ.b. 150 T af jafnri og góðri síld, 300 - 310 g meðalvigt.
Vorum búnir að frysta um 120 T síðast á miðnætti. Erum nú staddir inni í Jan Mayen lögsugunni rétt norðan við miðlínuna. Aðeins tvö íslensk skip eru nú stödd á miðunum hér Hákon EA og Guðmundur VE. Einnig er einn Færeyingur á svæðinu.
Annars allt fínt af okkur að frétta, veðrið ágætt og góður andi í hópnum.
Gullkorn dagsins er: "Vitringurinn lærir meira af heimskingjanum en heimskinginn af vitringnum."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Komnir á fullt sving.
4.6.2008 | 07:37
Sælt veri fólkið! Mér sýnist allir sem komu um borð eftir sjómannadag hafi verið sælir og glaðir. Undirritaður gerði sér ferð í vöggu útgerðarinnar, Grenivík, um sjómannadagshelgina til að halda daginn hátíðlegan. Var það ánægjuleg ferð og margt fallegt og skemmtilegt að sjá. Vil ég þakka skipsfélögum mínum fyrir móttökurnar. Fórum til veiða frá Neskaupstað kl. 17:00 á mánudaginn var og var stefnan tekin á síldarmið norð norð austur af landinu. Létum trollið fara uppúr hádegi í gær og hífðum 300 tonn af fallegri síld í gærkvöldi og er vinnslan þegar komin á fullt sving. Bkv. Marri.
Spakmælið: Gerðu sjálfan þig ómissandi, og þá muntu þokast upp á við. Láttu eins og þú sért ómissandi, og þá muntu þokast í burtu.
Es. Hvar er fitumælirinn?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)