"Makríl/síldarævintýri"??????

Jæja gott fólk þá koma aðeins meiri fréttir. 

Fórum út frá Neskaupsstað um 4-leitið í gærmorgun ásamt betri helmingnum.   Köstuðum eftir hádegi í gær og hífðum í gærkvöldi um 100 T af makríl/síld og dældum öðru eins um borð í betri helminginn.  Betri helmingurinn átti svo annað holið sem híft var í nótt og var talað um að það hefði verið um 70 T.  Erum í þessum skrifuðum orðum að færa okkur eitthvað austar á miðunum í von um meiri afla.

Spakmæli dagsins er:" Ekki fer ætíð betur, þá breytt er."

Og með þeim orðum segir Múffi yfir og út.


Í landi á morgun, með öngulinn á stað þar sem sólin skín ekki.

Jæja gott fólk. Nýjustu fréttir herma að það eigi að landa gúanói á morgun, óvíst með þetta frosna. Erum aðeins komnir með um 150T í frost og kannski 700 T í gúanó. Hlerinn okkar í partrollsveiðunum er víst kominn með eitthvað meira, allavega þurfa þeir að koma aflanum í land í viðunandi ástandi og við fylgjumst að eins og góðu pari sæmir. 

Einhver hafði á orði í vor, þegar að síldveiðarnar voru að hefjast og vel fiskaðist, að það væri eins lítið mál að ná kvótanum eins og að drekka kalt vatn. Eithvað virðist nú vatnið farið að volgna!

Spakmæli dagsins er: "Sennilega er varla til sá maður, sem ekki á blómsturgarð, læstan inni einhverstaðar í hjarta sínu". 

Múffi kveður og segir yfir og út.


Síldarævintýri verður "makrílævintýri"

Jæja gott fólk loksins kemur meira blogg, hefur reyndar verið lítið að frétta af okkur síðustu dagana. Búið að vera hálfgert reiðuleysi á okkur en vonandi fer það nú að lagast hjá okkur.

Fengum í gær um 200 t af  90% makrílblönduðum afla og reyndist það ekki vera vinnsluhæfur afli.

Seint í nótt fengum við síðan um 200 t og einnig var dælt um 150t um borð í Vilhelm Þorsteinsson. Reyndist þessi afli vera vinnsluhæfur þrátt fyrir 30-40% makrílblöndu.

Erum núna staddir á Þórsbanka  í svartaþoku og mikilli traffík. Erum komnir með um 100t af flökum í frystinn.

Spakmæli dagsins er:" Enginn lifir svo öllum líki, og ekki Guð í himnaríki."

Múffi kveður og segir yfir og út.


Síldarævintýrið heldur áfram.

Jæja jæja gott fólk, þá er enn á ný lagt af stað í veiðiferð og að þessu sinni ætlum við að partrolla með vinum okkar á Vilhelm Þorsteinssyni EA . Sendum við þeim okkar bestu kveðjur og væntum góðs samstarfs af þeim. Nú í þessum skrifuðum orðum eru þeir á Vilhelm að láta veiðarfærið í sjóinn og verðum við "hlerinn " þeirra fyrsta holið.

 Fórum út frá Neskaupsstað á tólfta tímanum í gærkvöldi áleiðis á miðin austur af landinu.

Spakmæli dagsins er:"Allir þurfa hjálpar við"

Múffi kveður og segir yfir og út.


Komnir í land.

Góðan dag! Lögðumst að bryggju um tvöleitið í nótt til að landa í bræðslu. Lönduðum samtals 317 tonnum af Makríl og síldarafskurði. Færðum svo undir frystilöndun sem hófst á slaginu sjö. Nú er ég að fara í frí og Múffi tekur við blogginu næsta mánuðinn. Hafið það sem best og Marri segir yfir og út.

Spakmælið: Ekki eru allar dyggðir í andliti fólgnar.


Löndun?

Góðan dag! Búið að vera frekar dauf aflabrögð undanfarið en ætli fjórða lagið sigrist ekki í dag.  Maður var næstum búinn að gleyma þeim veðurskilyrðum sem eru hjá okkur núna en þau eru víst kölluð bræla. Það spáir víst einhverjum kaldaskít fram á miðvikudag. Það er eitthvað verið að spá í að nota bræluna og landa því sem komið er og byrja upp á nýtt. Sjáum til hverju fram vindur og Marri kveður.

Spakmælið:Það besta sem faðir getur gefið börnum sínum er að elska móður þeirra.


Lítið að frétta

Góða kvöldið! Davíð minn þú verður nú að vera þolinmóður við undirritaðan, það bitnar á blogginu ef mikið er að geraW00t. Erum búnir að fylla þriðja lag, það mætti vera meira en það er nú ekki alslæmt. Lítið að hafa og sjá síðasta sólarhringinn en vonandi rætist nú úr. Hernando er í góðum gír og líkar vistin hér um borð vel. Mætti vera heitara veður sagði hann. (þýð. bloggara). Og Marri segir yfir og út.

Spakmælið: Hinn blindi kann lítið um lit að dæma. 

ES.Undirritaður tekur til sín allar kveðjur (góðar og slæmar) nema þær séu eyrnamerktar einhverjum. TAKK fyrir kveðjurnar.LoL 


Si si señor

Hernando SBuenos diasSmile.  Jæja loksins blogg. Af okkur er allt gott að frétta vorum komnir með 130 tonn í frystinn um miðnætti og vel á annaðhundrað tonn af Makríl. Heyrst hefur á göngunum að bræðsluverð fyrir Makrílinn sé allt að 30 kr fyrir kílóið, gott ef satt væri. Ástæður fyrir töfum á bloggskrifum eru meðal annars þær að mexikóinn okkar er búinn að vera sjóveikur og ekki var nú hægt að mynda hann í því ástandi. En hann sjóaðist furðu fljótt og náðum við þessari fínu mynd af honum í borðsalnum, að fá sér fyrstu máltíðina um borð. Senorinn heitir Hernando Sanches og kemur frá Tijuan, mesti sóma maður. Ótrúlegustu menn eru farnir að leggja fyrir sig spænskuna, meira að segja heyrðist Gísli tauta si si. 

Ég vil nota tækifærið og þakka Margrétarmönnum fyrir frábæra síðu, leiðinlegt að þeim hafi verið bannað að skrifa fleiri færslur. En ef þið sjáið þetta áhöfn Margrétar, var ykkur ekki bara bannað að blogga í  nafni skipsins, það er það eina sem hægt er að banna ykkur.  Og með þeim orðum segir Marri yfir og út.

Spakmælið:Hvernig á sá að kunna að hrósa, sem ekki kann að ávíta


Löndun

Hæ hæ! Verðum í landi í Neskaupstað um miðnætti í kvöld. Fengum ekki nema 40 tonn í síðasta holinu og ákveðið að setja afturendann í þetta í bili. Gangafréttir segja að von sé á Mexikóskum matsmanni með í næsta túr og verður tvímælalaust birt mynd af honum hér á síðunni. Stefnt er á bræðslulöndun í nótt og frystilöndun á morgun. Nú er mikill Makrílshugur í Kallinum eftir að fréttist af Huginn og tvílembingunum frá Eyjum að  moka honum upp. Næstu bloggfærslur væntanlega ekki fyrr en á þriðjud. eða miðvikud. og með því segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Sá sem gengur hægt, heldur lengi út og kemst lengst.


Ekkert að sjá

  Létum trollið fara í gærkvöldi norðan við Jan Maien og hífuðum seint í nótt uþb. 60 tonn. Nú er komið svo að bjartsýnustu mönnum lýst ekki á blikuna. Og þeim svartsýnu finnst að það hefði bara mátt sleppa þessum túr. Nú vantar okkur einungis 200 tonn upp úr sjó til að fylla frystinn, vonandi hefst það í dag. Sá að ég hafði gleymt spakmælinu í gær og læt því tvö fylgja í dag. Með þeim orðum segir Marri yfir og út.

Spakmæli: Ekki er jakki frakki nema síður sé.

Spakmælið: Gegnum tárin sér maður skýrar en gegnum gleraugu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband