Hafa svið þessi áhrif á aflabrögð?

Svið 001Góðan dag!  Búið að vera ágætis kropp hjá okkur við fengum 300 tonn, Vilhelm tók svo tvö hol í beit 700 tonn+ og svo 300 tonn. Við fengum svo 400 tonn+ og makkerinn 500 tonn og dældi einhverju af því í Súluna.  Makkerinn fór svo í land í gær til löndunar en Guðmundur VE hljóp  í skarðið fyrir hann. Erum að leita núna og lítið að sjá síðan í gær, toguðum á móti nýja makkernum frá níu í gærkvöldi og var lítið sem ekkert í þegar híft var. Við erum að nálgast 400 tonn í frystinn og fjögurlestarnar að fyllast af makríl til bræðslu.

Nú er spurningin hvort sviðin sem Brúnn var með í matinn í fyrrakvöld hafi þessi áhrif á aflabrögð. Allavega hefur maður heyrt að það vísi á brælu eða aflabrest þegar svið eru elduð til sjós. Þjóðtrú eða staðreynd dæmi hver fyrir sig.  Annars virðist þeim líða vel þarna í heita vatninu, gott ef maður sér ekki örla á glotti. Og með því segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Menn koma oft ekki auga á hamingjuna, vegna þess að hún kostar ekki neitt.


Að vera á réttum stað á réttum tíma.

Góðan dag! Já það er stundum erfitt að vera á réttum stað á réttum tíma. Lentum aðeins í því um helgina að vera ekki á réttum stað en hittum svo á þennan gullna veg með tímann og staðinn í gær. Makkerinn okkar byrjaði á að taka gott hol sem hífað var um kvöldmatarleitið og fengum við uþb. 170 tonn úr því. Við hífðum svo um miðnætti og dældum 300+ í okkur. Litlar fréttir af aflabrögðum fram að því, fengum einhver 150t af dræ makríl á laugard og var hluti af honum heilfrystur. Aftur á móti er uppistaðna í aflanum núna síld og er frystingin á fullum afköstum. Vonum að allir okkur viðkomandi hafi komið heilir undan verslunarmannahelginni. Takk fyrir fréttirnar Vilhelmsmenn og aflann í gær, erum að klára að renna honum í gegn. Marri kveður og segir yfir og út.

Spakmælið: Þú myndir sennilega ekki hafa áhyggjur af því hvað fólk hugsar, ef þú vissir hversu sjaldan það gerir það.


Litlar fréttir en þó einhverjar.

Góðan dag! Fórum frá Neskaupstað um áttaleitið í gærmorgun eftir löndun á 500 tonnum af frystum afurðum og 1250 tonnum í bræðslu. Aflaverðmæti ekki gefið upp hér á þessari síðu, þið eigið að vita betur strákar á Aðalsteini. Köstuðum í gærkvöldi þ.e.a.s. makkerinn okkar (Vilhelm) og til að gera langa sögu stutta þá var hífað lítið í nótt. Annars voru skipin að taka upp í 500 tonna hol eftir daginn en við misstum af sjensinum í gær. Það leiðinda atvik átti sér stað um borð í Vilhelm í gær að þar slasaðist maður þegar átti að kasta trollinu. Hann fékk þungt höfuðhögg og var fluttur með þyrlu í land, vonum að hann nái fullum bata.  Erum að leita núna en vonandi finnur stýrimaðurinn eitthvað fljótlega til að kasta á.  Gangið á guðs vegum og gætilega um gleðinnar dyr, góða verslunarmannahelgi. Og með þeim orðum segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Við ættum aldrei að tala til að þóknast sjálfum okkur, heldur þeim, sem hlusta á okkur. 


Endir

Þessi mánuður virðist ætla slá öll okkar fyrri met og má líklega þakka þeim röndótta fiski það. Þessum túr fer að ljúka, komnir með u.þ.b. 500T í frystinn og u.þ.b. fullar kælilestar. Reiknum því með að verða á Neskaupstað með kvöldinu. Allir sælir með góðan gang.

Spakmæli: Vertu ekki að forðast freistingarnar. Þegar þú eldist þá forðast þær þig.

Kveðja Matti


Hvar er heilinn

Já hann dæsir kokkurinn okkar þessa dagana því Þýska uppþvottar-djásnið hefur verið heilalaust í nokkurn tíma. Hann hefur þráðspurt menn hvort þeir viti ekki um heila á lausu fullviss um að það sé af nógu að taka.

Eitthvað hefur sá röndótti verið að flækast fyrir okkur síðustu daga þannig að norðmenn geta haldið áfram að vera súrir. Við og partnerinn deildum u.þ.b. 1000T af makríl og þessa stundina verið að frysta hann. Það er komið nálægt 300T í frystinn aðallega síld og menn bara bjartsýnir.

Tobba og frú  óskum við alls hins besta, vonandi kemur fæðingin til með að ganga vel. Eins er okkar einlaga von að þú látir nú af þessum hvimleiða vana að brjóta í þér bein.

Stakkageymslan segir löndun á miðviku- eða  fimmtudag, hvað sem það nú þýðir.

Spakmæli dagsins: Þeir sem vita, tala ekki, þeir sem tala, vita ekki.

Kveðja Matti


Bloggstíflan brostin

Eins og sjá má á skrifum þá eru allir atvinnubloggararnir hér um borð í fríi og varahjólið því hálflint sett undir.

Landað var á Neskaupstað síðastliðinn þriðjudag u.þ.b. 900T til bræðslu og 200T í frost. Þar var mikið blíðskaparveður og heldu menn þar hið árlega gólfmót Hákons-manna sem haldið er til minningar um fyrrverandi skipstjóra okkar hann Oddgeir Jóhannsson. Gaman er að segja frá því að mót þetta fer vaxandi ár frá ári og tóku nú ríflega 20 manns þátt í mótinu. Keppnin er orðin harðari og  Jón Gunnar ekki lengur með vinninginn í áskrift. Í ár sigraði Björgúlfur Jóhannsson bróðir Oddgeirs heitins og óskum við honum til hamingju með þann sigur. Spennandi verður að sjá hvort næsta ár toppi þetta mót.

Haldið var til veiða seinnipart þriðjudags, partrollað með Vilhelm og hefur veiði verið nokkuð góð. Spurningin bara hvort við séum að veiða rétta tegund, alla vegna eru norðmenn mjög sáttir með okkur þessa stundina.

Ekki verður skorast undan spakmæli dagsins: Karlmenn eiga við fleiri vandamál að etja en konur. Fyrst og fremst verða þeir að sætta sig við konur

Kveðja Matti


Línuskytturnar á Vilhelm.

Jæja gott fólk. Það er ýmislegt sem menn gera sé til gamans á sjó. T.d. sýndu línuskytturnar á betri helmingnum okkur hversu megnugir þeir eru í búningahönnun.

Línuskytturnar á Vilhelm

Það verður erfitt fyrir okkar skyttur að toppa þetta en það verður reynt.   Við verðum að treysta á frumlegheitin hjá okkar mönnum. Vænti ég þess að Jón Gunnar láti ekki sitt eftir liggja í þeim efnum.

Þetta eru alveg yndisleg uppátæki og lífga bara upp á tilveruna hérna á miðunum.

Annars viljum við bjóða félögum okkar á Vilhelm ,sem spila golf, að taka þátt í golfmóti með okkur, til minningar um Oddgeir Jóhannsson skipsstjóra, í næstu löndun á Neskaupsstað. Þeir sem ekki spila golf geta þá bara orðið kylfuberar.

Gullkornið er."Vitrastir eru þeir, sem best geta lagfært ókosti sína."

Múffi kveður.

 


Múffi, Marri og Golli Jó

Jæja sælt veri fólkið.

Bloggritari þakkar öllum sem hafa sýnt blogginu okkar viðbrögð. Einn spurði hvaða nöfn væru á bak við helstu bloggritara síðunnar. Það er skemmst frá því að segja að Magnús Þ Öfjörð vélstjóri hefur skáldanafnið Múffi, Hilmar Sigurðsson ber skáldanafnið Marri og einnig hefur vinnslustjórinn og framsóknarmaðurinn í fæðingarorlofi Ingólfur Jóhannsson ,Golli Jó, ritað hér góða og kjarnyrta pistla. En hver er Á.J ?

Annars er það af okkur að frétta að við fórum út frá Neskaupsstað í gær um kl:17:30 eftir að hafa landað um 1000T í bræðslu og 330 T af frosnum síldarflökum. Áfram verður haldið með partrollsveiðarnar á móti Vilhelm Þorsteinssyni EA og eiga þeir fyrsta dráttinn í þessari veiðiferð.

Gullkorn dagsins er:" Enginn er réttlátur á meðan hann er reiður."

Með þeim orðum kveður Múffi.

 


Löndun á miðvikudag.

Jæja gott fólk nú er víst farið að sjá fyrir endann á þessum túr, eigum að landa á miðvikudaginn á Neskaupsstað. Verðum þá væntanlega komnir með góð 300T í frystinn og 700 plús í gúanó. Veiðin hefur gengið ágætlega og samstarfið við betri helminginn með miklum ágætum. Erum við sammála félögum okkar á Vilhelm um hjónabandið, og sendum þeim þakkir fyrir kveðjurnar.  Jón Gunnar verður settur í að útbúa  skotskífu hið fyrsta, ef ekki þá verður hann bara að stilla sér upp sjálfur!

Annars eru þessir viku langir túrar bara alveg ágætir, held að það geti verið auðvelt að venjast þeim.

Við þökkum þeim sem hafa sýnt viðbrögð við blogginu okkar og sendum saknaðarkveðjur til fyrrum skipsfélaga, Högna Páls, og er hann ávallt velkominn um borð í heimsókn ef hann er á ferðinni.

Gullkorn dagsins er: "Vinalaus maður ferðast eins og útlendingur alla ævina."

Og með þeim orðum kveður Múffi.


Blogg af miðunum.

Jæja gott fólk, þá kemur smáblogg.

Af okkur er bara allt þokkalegt að frétta. Karlarnir allir heilir á sál og líkama.

Erum komnir með um 200 T í frystinn og eitthvað af gúanói.

Gluggahrossin eru eitthvað óhress með aflabrögðin segja allavega að við séum að fá eitthvað minna heldur en aðrir á bleyðunni. Er það ekki alltaf svoleiðis um borð í öllum fiskiskipum? Nú þurfa áhafnarmeðlimir að standa saman og hvetja okkar menn svo ekki glatist sjálfstraustið.

Læt hér fylgja með mynd af betri helmingnum.

IMG_2979[1]

Á henni erum við að byrja að dæla afla yfir í Vilhelm, búnir að taka okkar skammt og þeir  fá sinn.  Aflanum er skipt bróðurlega á milli skipa.

Sendum félögum okkar, á betri helmingnum, okkar bestu kveðjur og þökkum gott samstarf og vonandi verður framhald á því.

Gullkornið er eftirfarandi: "Hamingjan vex á okkar eigin akri og hana er ekki hægt að tína í annarra görðum".

Við sendum Marra og Golla Jó hlýjar kveðjur í rigninguna á Akureyri og vonum að það fari núa að stytta upp og hlýna á þessu landshorni.

Og með þeim orðum kveður Múffi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband