Nú fer hún að koma
5.9.2008 | 01:51
Í stuttu máli sagt þá hefur lítið gerst í síldveiðum hjá okkur þennan túrinn. Menn eru þó brattir og fullir bjartsýni, enda vel aldnir eftir eftir veislur sumarsins, hungurverkir eru því vel þolanlegir. Helgin framundan sem kætir boltabullunar, annars finna flestir sér eitthvað að gera.
Draumfarir skipverja hafa þó ekki skilað neinum árangri, flestir muna ekki drauminn eða neita að segja frá. Hef þó reynt að spyrja legubekkinn fregna úr draumaheimi en aðeins fengið svarið "Láttu mig í friði" Hef því ákveðið að hætta þessu draumarugli og hella mér í stjörnuspána. Trúi ekki öðru en síldin fari núna að láta sjá sig.
Spakmæli dagsins: Gættu hóglætis bæði í gleði og harmi og hafðu ætíð fulla stjórn á sjálfum þér.
Kveðja Matti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hver er fiskifælan
30.8.2008 | 01:50
Langar til að skrifa nokkrar línur þó svo fréttir séu litlar. Við héldum til veiða að kvöldi þriðjudags í samfloti með Aðalsteini Jóns. Veiðar hafa verið dræmar og verið að leita eins og stendur.
Sumir hafa reynt að finna út hver sé fiskifælan um borð reyndar án árangurs, svo ég held að næsta skref sé að koma með líklegan draum. Ég mun að sjálfsögðu skýra frá slíkum ef einhver er nógu gáfaður til að muna drauminn sinn þegar hann vaknar, það væri svo gott að fá góðar draumaráðningar frá ykkur.
Spakmæli: Ef ræturnar eru látnar standa, vex grasið upp stöðugt aftur.
Kveðja Matti
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Landstím.
25.8.2008 | 21:53
Gott kvöld! Bara láta vit að við verðum í landi í fyrramálið . Náum því ekki að vera með hálffermi í frystinum og erum svo með tæp 200 tonn í bræðslu.(Frákast+afskurður). Sæla að sinni og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Margur maðurinn notar úrið sitt til að drepa tímann en ekki til að mæla hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áfram Ísland!!!!
24.8.2008 | 08:00
Góðan dag gott fólk! Nú bíða allir spenntir, hér um borð, eftir gullleiknum. Heyrst hafa raddir um að það eigi bara að drepa á og láta reka meðan á leik stendur. En það verður væntanlega ekki gert en það verður fullsetin setustofa meðan á leik stendur.
Annars er það helst að frétta að við erum hálf vængbrotnir eftir að stóra trollið okkar varð ónothæft og þarf að komast á land til viðgerðar. Það gaf sig leiðari frá þeim á Allanum, sem notaður er til að taka vænginn á okkar trolli á milli skipa. Það er bræla í kortunum og erum við búnir að grynnka á okkur. Erum komnir í Seyðisfjarðardýpi í von um einhvern afla hér. Það var farið að velta svo helv...... mikið á djúpmiðunum. Erum u.þ.b. hálfnaðir með miðgatið og þar af eru rúm 100 tonn makríll. Það kæmi ekki á óvart að við yrðum í landi fljótlega eftir helgina með tilliti til bræluspár og veiðarfæratjóns. En það kemur bara í ljós. Marri kveður og segir yfir og út.
Spakmælið: Þegar konur elska, eru þær harðstjórar: Þegar karlmenn elska, eru þeir þrælar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Alltaf eitthvað um að vera til sjós.
22.8.2008 | 08:10
Góðan dag! Jæja þá er komið að bloggi. Inniveran í Neskaupstað varð sólarhring lengri en sem nemur venjulegu löndunarstoppi. Sem kom til af því að sinna þurfti viðhaldi á vélbúnaði skipsins. Flestir áhafnarmeðlimir notuðu tækifærið og fóru til síns heima þennan auka sólarhring og voru tilbreytingunni fegnir.
Hófum þessa veiðiferð kl. 01 að morgni þess 20. ágúst. Nýr makker beið okkar þegar við komum á miðin en þó ekki alveg ókunnugur. Það voru félagar okkar á Aðalsteini Jónssyni sem við áttum svo glimrandi gott samstarf í fyrrasumar. Það eru engin rífandi aflabrögð eins og er. Hátt hlutfall af Makríl í hverju holi og höfum við verið að frysta hann eftir að búið er að renna síldinni í gegn. Verðum væntanlega búnir að sigra fyrsta lag núna fyrir hádegi. Myndirnar hér með eru frá því í síðasta túr. Kokkurinn kominn út að grilla á nýja grillinu okkar. Aðalréttur dagsins: skötuselur með baconvafning m.ö.. Kokkurinn er fyrirmynd margra hér um borð þegar kemur að öryggismálum enda gott mál þegar þau eru annarsvegar. Og af því sögðu segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Þjófur kallast sá sem hefur verið svo bráðfíkinn í annarra eigur, að hann hefur ekki gefið sér tíma til að stofna hlutafélag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í landi í fyrramálið.
18.8.2008 | 00:11
Góða kvöldið! Hef þetta bara stutt núna. Verðum í Landi í Neskaupstað í núna með morgninum. Erum með fullan frysti og eitthvað um 650 tonn í bræðslu, þar af 150 tonn afskurð. Samstarfið við makkerinn gekk alveg ljómandi vel. Skildist mér á stýrimanninum að skipin hafi aflað mjög svipað á þessari rúmu viku sem þessi túr er búinn að taka okkur. Bjarni Ólafs millilandaði sl. miðvikudag. Vil ég þakka áhöfninni á Bjarna Ó fyrir samstarfið. Læt hér fylgja eina mynd af Magna sæta. Og aðra sem sýnir hvað skipin eru nálægt hvoru öðru á partrollinu þegar þarf að beygja eða snúa. Og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Enginn getur breytt sér, allir geta bætt sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Makríll alstaðar.
15.8.2008 | 18:56
Góða kvöldið! Makkerinn okkar hann Bjarni Ó kom til okkar ertir löndun í Neskaupstað aðfaranótt fimmtudags. Ég var nánast búinn að afskrifa hann um daginn en þeir hafa fengið einhverja viðbót á kvótann sinn. Aflabrögðin hafa verið þokkaleg en hátt hlutfall af Makríl í hverju holi. Erum búnir að lyfta í efsta gat og var það gert um síðasta miðnætti. Höfum verið að fylla upp í vinnsluna með því að heilfrysta Makrílinn, en mun meira fæst fyrir hann hausaðan og slógdreginn. Læt hér fylgja sólarlagsmynd af Bjarna Ólafssyni AK.
Gangafréttir segja að við verðum inni á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun. En sjáum hvað setur. Verið þið sæl og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Kona sem aldrei hefur horft á manninn sinn veiða, veit ekki þvílíkum þolinmæðismanni hún er gift.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til hamingju Tobbi og Fanney!
13.8.2008 | 07:32
Góðan dag! Það er bara búið að ganga bærilega hjá okkur. Erum komnir með rúm tvöhundruð í frystinn og slatta í bræðslu. Annars hefur hlutfall Makríls í aflanum hækkað töluvert sl. sólarhring. Bjarni Ólafsson AK, makkerinn okkar, fór í land til löndunar í nótt með nánast fullt skip, vantaði eitthvað um 150 tonn. Hann fær víst einhverja ábót á kvótann þannig að við trollum eitthvað með honum áfram.
Þessi myndarlegi snáði kom í heiminn 30 júlí síðastliðinn, hann er sonur Tobba háseta og Fanneyjar. Innilegar hamingjuóskir frá áhöfninni á Hákoni. Og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Miðaldra maður, þegar hann slekkur ljós af fjárhagsástæðum, fremur en rómantík.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Allt í góðu hjá okkur.
11.8.2008 | 08:09
Góðan dag gott fólk! Fórum frá Neskaupstað aðfaranótt sunnudags að lokinni löndun til móts við nýja makkerinn okkar. Já, kallar komnir með nýjan makker, og er það Bjarni Ólafsson AK. Verð að drífa í því að ná mynd af honum því þetta verður freka stutt samband þar sem þeir á Bjarna eru að klára kvótann sinn og eru í síðustu veiðiferð.
Við viljum þakka Vilhelmsmönnum enn og aftur fyrir samstarfið, sl. júlímánuður sá besti frá upphafi. Vilhelm togar nú á móti Margréti EA. Bæði skipin frá sömu útgerð og sömu áherslur í veiðunum. Óska ég þeim góðs gengis.
Læt hér fylgja með mynd af Andra okkar VMK-manni með þökkum fyrir góðar kveðjur frá hans ekta spúsu. Andri kom með einhverja sögu um að hann ætli ekki að skerða hár sitt né skegg fyrr en hann er búinn með einhvern vegg fyrir norðan. Eins og það sé ekki nóg af veggjum norður á Akureyri. Ég held að hann sé að safna fyrir atvinnuviðtal sem verður í byrjun vetrar. Það hringir kannski klukkum hjá einhverjum. Marri kveður að sinni og segir yfir og út.
Spakmælið: Ef konan þín veitir þér réttláta meðferð......þá þakkaðu guði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Löndun?
8.8.2008 | 08:44
Góðan dag. Litlar fréttir af okkur hér. Það er komin einhver þreyta í sambandið við makkerinn. Það er kannski með þetta samband eins og önnur að þegar illa gengur þá reynir á samlyndið. En kærar þakkir fyrir samvinnuna Vilhelmsmenn.
Gangafréttir herma að stefnt sé á löndun í bræðslu með kvöldinu. Ekki var hægt að fá þetta staðfest en meiri lýkur en minni. Sæl að sinni og hafið það gott, Marri.
Spakmælið: Konur óska sér meðalmanna og mennirnir gera það sem þeir geta til þess að mæta þeim kröfum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)