Smugan skilar af sér.
14.10.2008 | 07:11
Smá fréttir af okkur. Það hefur gengið ágætlega síðan við fórum frá Noregi. Köstuðum hér í smugunni seinnipartinn á laugardag og fengum u.þ.b. 100 tonn af stórri og góðri síld sem við heilfrystum að þessu sinni. Erum búnir að færa upp um gat í frystinum og allt heilfryst. Fram að þessu hafa veiðarnar verið í takt við frystigetuna þannig að við erum með besta hráefni hverju sinni. Eitthvað megum við veiða meira hérna í smugunni og Norsku landhelginni þannig að við verðum hér eitthvað fram eftir hausti. Menn hafa á orði að hér ríki hálfgerð kreppa, það er allt að verða uppurið í sjoppunni. En það kemur ekki að sök þar sem stærstu viðskiptavinirnir eru í fríi. Lifið heil og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Líf hvers manns er ævintýri sem fingur Guðs skrifar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Farnir frá Noregi, loksins:)
10.10.2008 | 23:44
Þeir gerðu það ekki endasleppt frændur vorir norðmenn. Þeir ætluðu nú loksins að landa úr okkur gúanóinu eftir hádegi í dag. Og byrjuðu á að taka ferskleikaprufu af aflanum og dæmdu hann óhæfan til bræðslu. Þannig að öll biðin var til einskis. Fórum frá Bodö á 14da tímanum í dag áleiðis til síldarmiða. Vonum að það verði bara mok á miðunum þegar við komum. Bestu kveðjur til allra sem vilja þekkja okkur og Marri segir yfir og út.
Spakmæli:Framkvæmdu að eigin frumkvæði, en vertu reiðubúinn að taka fulla ábyrgð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það lætur okkur ekki vel að bíða....
9.10.2008 | 09:16
Góðan dag gott fólk. Þegar þetta er skrifað erum við búnir að landa rúmum 700 tonnum af frystum afurðum í Sortland í Noregi. Og komum hingað til Bodö seinnipartinn í gær til að landa u.þ.b. 500 tonnum í bræðslu. En eitthvað stendur á að sú löndun getur hafist. Huginn VE landaði hér í nótt og er okkur tjáð að þróarrými sé fullt og bræðslan biluð. Þannig að við þurfum að bíða eitthvað enn. Menn eru að sjálfsögðu ekki glaðir með þessa bið eftir löndun og sýnist sitt hverjum um ástæður hennar. Bestu kveðjur frá Norge og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Það er seint að fara að grafa brunnin, þegar maður er orðinn þyrstur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Austurvígstöðvarnar gefa vel af sér.
3.10.2008 | 15:17
Jæja smá fréttir hérna, biðst afsökunar á því hversu langt er síðan síðasta bloggfærsla birtist. Við lönduðum 670 t af frystum flökum í Sortland síðastliðin mánudag og héldum aftur til veiða þá strax um kvöldið. Fengum fljótlega afla og erum nú þegar þetta er ritað búnir að hálffylla frystilestina hjá okkur. Stærðin á síldinni hefur verið mjög góð allt að 340g meðalvigt.
Reiknum með að landa aftur í Noregi á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku ef allt gengur að óskum.
Gullkorn dagsins er:"Í lífi karlmanns er ástin kapítuli, í lífi konu sagan öll."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Önnur löndun í Sortland fyrirhuguð.
26.9.2008 | 12:04
Jæja sælt veri fólkið.
Túrinn búinn að ganga svona þokkalega hjá okkur, höfum haft nóg af fiski fyrir vinnsluna en það hafa bara verið að koma upp hinar ýmsu bilanir bæði í vinnslu og í vélarrúmi. hefur það tafið töluvert í vinnslunni fyrir okkur. Ættum þó að sigra aftari frystilestina í nótt.
Eigum pantaðan löndunardag í Sortland á mánudaginn 29-09. Vonandi náum við nægum afla í dag svo við getum klárað þetta því það spáir brælu á miðunum alla helgina.
Gullkorn dagsins er: "Trúr vinur er öruggt athvarf og auðugur er sá, sem finnur hann."
Jæja nóg í bili Múffi kveður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jazz Jazz
21.9.2008 | 15:48
Jæja gott fólk, eins og sjá má á blogginu hér á undan að þá hefur Golli Jó komist í tölvu eftir miðnættið inni á hóteli í Sortland. En hann er á heimleið í frí ásamt fleirum og óskum við þeim góðrar ferðar og hlýrrar heimkomu.
Af okkur er það helst að frétta að við fórum út frá Sortland í Noregi um kl:20:00 í gærkvöldi eftir að hafa landað rúmum 630 T af frosnum flökum þar. Í Sortland, sem er um tíuþúsund manna bær, í svipaðri stærð og Akureyri, stóð yfir Jazzhátíð þessa helgina, sem við sem farnir vorum á sjó, rétt misstum af. En vonandi hafa þeir sem á heimleið voru notið góðs af þeirri hátíð. Nema að þeir hafi sofnað yfir bloggskrifum fram eftir nóttu!!
Gullkorn dagsins er:"Vanþakklátt fólk líkist óáreiðanlegum viðskiptamönnum, sem bóka það sem aðrir skulda þeim, en ekki það sem þeir skulda öðrum."
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kallarnir kl'arir i pakkann
21.9.2008 | 02:06
londun i norge 632 tonn upp a bryggju, bestu mennirnir foru fra bordi . Hakon for ut kl 20:30 og allir mjog ferskir og veit eg ad helgi hefur tekid til hendinni i mottokunni . Allir pungar raudir fra hotel sortland
bidst afsokunar a stafsetningarvillum vegna norsks lyklabords
Golli segir yfir og ut ja ja ja ja ja eg kann tad.........................................einn dans vid mig..............
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hálffullir!!
17.9.2008 | 10:32
Jæja gott fólk af okkur er það helst að frétta að við erum búnir að hálffylla frystilestina og væntanlega verður landað í Noregi um eða eftir helgi. Þá er verið að tala um Sortland sem löndunarstað. Vonandi taka frændur okkar í Noregi vel á móti okkur þó þeir líti á okkur sem hálfgerða sjóræningja inni í bakgarðinum hjá sér.
Spakmæli dagsins er: "Eigi skyldi boga of langt toga."
Múffi biður að heilsa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Veiðin að glæðast
14.9.2008 | 11:31
Jæja loksins fékkst afli. Fórum í gær inn í norsku lögsuguna, köstuðum í gærmorgun og hífðum um 150 T af síld seinnipartinn. Síldin hér í Noregi er minni en það sem við höfum verið að sjá þegar við erum að veiða íslensk/norsku síldina, aðeins um 250-270 g. Annars fínn skammtur til að hefja vinnslu , erum í þessum skrifuðum orðum að hífa svipað magn og í gær. Vonandi verður bara áframhald á þessu.
"Poolararnir " hér um borð eru allavega mjög kátir þessa dagana, varla að þeir snerti gólfið.
Spakmæli dagsins er:"Þolinmæði hefur maður mesta þörf fyrir, þegar hún er að verða búin."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Lítið að frétta af austurvígstöðvunum.
12.9.2008 | 17:46
Jæja jæja gott fólk, nú kemur aðeins meira blogg. Það hefur verið heldur lítið að frétta af okkur upp á síðkastið, lítið fiskirí og rólegheit yfir mannskapnum. En það helsta er að það var landað á Neskaupsstað síðastliðin þriðjudag samtals 300 T af síldarflökum og heilfrystum makríl. Fórum út seinnipartinn á miðvikudag áleiðis í síldarsmuguna. Erum núna staddir rétt utan við norsku lögsuguna og höfum ekki orðið varir við neitt og sömu sögu er víst að seigja af skipunum hér á svæðinu. Vonandi fer nú silfur hafsins að þétta sig svo hægt verði að fara að kasta á hana.
En áhafnarfréttirnar eru að Mr Peter Cook er kominn aftur um borð eftir 6 mánaða "hvíld" og hann lét ekki sitt eftir liggja heldur reiddi fram lambahrygg og bernise á fyrsta degi. Velkominn aftur til starfa Mr Peter Cook!
Spakmæli dagsins er: "Sérhver maður hefur rétt á að velja sér sína eigin stjórn, dökkhærða, ljóshærða eða rauðhærða".
Og með þeim orðum kveður Múffi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)