Túrinn fer vel af stað.

Sælt veri fólkið. 

Aflabrögð voru góð í blíðunni við Stykkishólm í gær. Köstuðum nótinni einu sinni og fylltum nánast í alla kælitanka skipsins þannig að við komum til með að hafa nóg hráefni til að flaka næstu daga.

Svo er óvíst hvað tekur við eftir þennan túr, vonandi verða þeir búnir að finna loðnuna félagar okkar á Árna Friðrikssyni svo nýi sjávarútvegsráðherrann okkar geti gefið út loðnukvóta. Vona bara að hann sé ekki mengaður af þeirri hugsun að við séum að veiða matinn frá hvölunum!

Gullkorn dagsins er: "Gef þeim ráð sem æskir þess, en lát hann sjálfan um að hlýða".

Múffi segir yfir og út og farið á Guðs vegum.


Síðasti síldartúrinn á þessari vertíð.

Jæja gott fólk, þá er það síðasti síldartúrinn í Breiðafjörðinn á þessari vertíð, höfum heimild til að  taka um 1000 t upp úr sjó í þessum túr. Það ætti að skila okkur u.þ.b. 500 t af flökum.

Fórum frá Neskaupsstað á þriðjudagskvöldið eftir að hafa landað þar rúmum 700t af flökum og um 500t af afskurði.  

Siglt var norður fyrir landið að þessu sinni í fimbulkulda og frostþoku, var við öðru að búast?

Í dag viðrar vel til veiða og má reikna með að nótinni verði kastað í birtingu.  Vonandi verður það með góðum árangri svo vinnslan geti hafist sem fyrst.

Spakmæli dagsins er: "Berðu þig ekki saman við þá, sem lifa við betri og álitlegri kjör en þú, svo að þú spillir ekki  ánægju þinni. Sættu þig  við þín eigin kjör."

Og með þeim orðum kveður Múffi


Löndun fyrir austan.

Já gangafréttir höfðu rétt fyrir sér einn ganginn enn. Það verður landað fyrir austan:). Fylltum á hráefnislestar í gær og héldum svo af stað austur um land til löndunar í Neskaupstað. Verðum væntanlega næstu nótt á flóanum fagra eins og stýrimaðurinn orðaði það svo snilldarlega:).  Löndun verður þó ekki fyrr en á þriðjudag þar sem enn á eftir að frysta rúm 200 tonn til að fylla frystilestina. Annars er allt gott og flensan er á hröðu undanhaldi og vonandi að hóstaköst, snýtingar og nefsog heyri brátt sögunni til. Gangið til góðra verka og Marri segir yfir og út.

Spakmælið:Baðfötin eru orðin svo lítil að aðeins mölur í megrun gæti lifað á þeim.


Góður gangur

Þá erum við hálfnaðir með frystinn og bara ágætis gangur á þessu mv. að við erum bara að keyra á 70% afköstum.  Fórum inn á Kiðeyjarsund og fengum þetta fína kast sem dugði til að fylla á allar lausar lestar eða rúm 500 tonn. Annars allt gott að frétta af okkur. Flensan sem hefur verið að herja á mannskapinn er í rénum. En hún hefur lagst einna verst á þá sem eru lélegir í lýsinu:).  Gangafréttir segja að það verði löndun í Neskaupstað eftir helgi en það á allt eftir að koma í ljós. Og með því segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Haninn galar hæst, en litla hænan gefur afurðirnar.


Fjölgun á bleiðunni.

Jæja gott fólk þá verður þögnin rofin. Erum komnir með félagsskap hérna á síldarmiðunum, Margrét og Súlan birtust hérna í fyrrakvöld, þeir eru að fiska fyrir landvinnslu Síldarvinnslunnar í Nesk. Af okkur er það helst að það hefur bara gengið vel að fiska eftir að við fórum frá Grundarfirði eftir bræluna á laugardagsmorgni. Erum komnir með á þriðja hundrað í frystinn og er meiningin að ná í meiri síld núna seinnipartinn svona til að hafa í handraðanum.  Þakka Kalla fyrir athugasemdina, persónulega er ég sammála honum, þurfum ekkert á því að halda að fá svía jöfnuðinn. Jæja þá er maður kominn á brautir sem ég var eiginleg búinn að lofa mér að fara ekki inná þannig að Marri segir nú yfir og út og gangið friðarins veg.

Spakmælið:Það sem er mikilvægt í lífinu er þess virði að vinna fyrir því.


Bræla

Gerðum góða ferð austur á land og lönduðum í Neskaupstað 660 tonnum af afurðum og svipuðu magni í bræðslu. Erum bara ánægðir með þann afrakstur á tæpum tíu sólarhringum. Komum til baka hingað á Breiðafjörðinn í gærmorgun, passlega í brælu og ágjöf. Lögðumst að bryggju hér á Grundarfirði síðdegis í gær vegna brælu og er búið að blása til brottferðar kl. 8:30 í fyrramálið.  Hið árlega þorrablót Hákons EA var haldið í kvöld og aldrei þessu vant fór það mjög vel fram. Pétur á heiður skilið fyrir trakteringarnar og rófustappan maður, sló öllu út. Og að því sögðu segir Marri yfir og út.

Spakmælið:Sá veit ekki mikið, sem segir konu sinni allt, sem hann veit.


Á leiðinni austur

Það fór svo að gangafréttir höfðu rétt fyrir sér:). Fengum þetta fína kast seinnipartinn í gær sem dugir langleiðina til að fylla okkur. Stefnan sett austur á land og áætlaður ákvörðunarstaður er Neskaupstaður, reiknum með að verða þar á mánudagsmorgni. Annars allt gott héðan, kokkurinn bauð upp á egg og beikon í morgunmat í tilefni dagsins og verður maður illa svikinn ef það verður ekki millikassi eða afturdrif af lambi í hádeginu. Marri kveður og segir yfir og út.

Spakmælið: Langt erfiði gerir stutta nótt.


Umhleypingar

Það eru engar stórfréttir af okkur. Erum komnir með á fimmta hundrað tonn í frystinn og farið að hilla undir lok túrsins. Enn vantar okkur þó 500 tonn um borð til að geta fyllt. Gangafréttir segja að við komum til með að landa fyrir austan um miðja viku og tel ég að það sé ekki fjarri lagi. Smá uppbrot var á deginum hjá þeim Jolly og Jóni Gunnari. En þeir voru sendir í land á léttabátnum eftir varahlut í annan radarinn. Það kom undirrituðum mikið á óvart hvað einn vettlingaþurrkari (sem ekki er í gangi) getur valdið miklum titring. Þar sannaðist hvað lítil samfélög eru viðkvæm fyrir breytingum en á móti ætti að koma að þau væru fljót að aðlagast. Að því sögðu segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Jörðinni verður aðeins breytt af fólki sem lætur hana ekki breyta sér.


Nóg af Síld!!!!

Það gengur bara nokkuð vel þrátt fyrir sýkingu í síldinni. Fengum á fjórða hundrað tonn á mánudaginn og fengum svo gefins rúm tvöhundruð tonn hjá Kap VE. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Byrjuðum túrinn á að vinna síldina í flapsa og frystum á annaðhundrað tonn af þeim en í gærkvöldi var byrjað á að heilfrysta síldina. Enn er töluvert um sýkta síld í aflanum og er reynt að tína frá eins og hægt er. Með því hefur tekist að halda hlutfalli sýktrar síldar innan leyfilegra marka í afurðinni. Engar stórfréttir af göngunum að svo stöddu þannig að Marri segir yfir og út.

Spakmælið:Af foreldrum sínum lærir maður venjulega ekki annað en það, hvernig á ekki að fara með börnin.


Komnir á veiðar:)

Góðan dag gott fólk og gleðilegt árSmile. Þá erum við komnir af stað eitt árið enn. Fórum frá borg óttans seinnipart laugardags til síldveiða á breiðafirði. Fengum á þriðjahundrað tonn í gær og var þegar hafin vinnsla á síldinni. Eitthvað virðist bera minna á sýktri síld núna miða við þá síld sem veiddist fyrir jól. Annars allt gott af okkur og virðast menn hafa komið vel út úr jólafríinu. Og með því segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Allir hafa galla og engin galli er öðrum betri.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband