Jólahittingur!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
22.12.2008 | 11:33
Góðan dag hér kemur smá færsla vegna jólahittingsins þann 27.12 á strikinu kl 20 en þannig er mál með vexti að hann Billi kom að máli við mig og bað mig að breyta símanúmerinu vegna óviðráðanlegra orsaka virkar gemsin hans eitthvað ílla þessa daganna en það er hægt að ná í hann í síma 46-33114 já ég endurtek 46-33114.
Golli jó segir yfir og út.
Gleðileg jól
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lengi lifir í gömlum glæðum
17.12.2008 | 19:25
Sælt veri fólkið og já þetta er nýtt blog hvort sem þið trúið því eða ekki en að máli málanna það mun vera stemmt að hittingi Hákonsáhafnar norður á Akureyri þann 27.12.08 kl:20:00 og staðurinn er strikið. Þetta er kallaður hittingur með mökum fyrir þá sem eiga svoleiðis. Skráning fyrir 22.12.08 hjá Billa Gunn síminn hjá honum er 896-4329.
Annars er það að frétta að við erum að fara að landa í kvöld á Neskaupstað í bræðslu og svo er bara jólfrí framundan allir vinir og allt í góðu en annars biður áhöfnin á Hákon ea um bestu jólakveðjur og gleði á komandi ári.
p.s. til hamingju með afmælið Gísli Árna en þess má geta að hann tók þúsundasta inniþrifið á ferlinum í nótt.
ritstjórn biður að heilsa gleðilega jól kv. Golli Jó, Marri og Múffi eleman jenssen.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Löndun fyrir austan
3.12.2008 | 08:00
Það er helst af okkur eftir hálfgert reiðuleysi síðustu daga að við fylltum allar lesta í gær, af síld til bræðslu. Hættum allri vinnslu á síld á laugardagsmorgni vegna sýkingar í síldinni. Óvíst er hvort það sem við frystum fram að því sé söluvara en við skoðun reyndist vera eitthvað um gölluð flök. Þetta þarf að skoðast betur og um að gera að vona það besta. Það verður að segjast eins og er að þessi pest í síldinni er stór skellur fyrir alla síldarvinnslu í landinu og förum við ekki varhluta af því. Eins og ég sagði áðan þá fylltum við í gær, inn á Kiðeyjarsundi. Kallinn var aðeins ríflegur á því og gáfum við félögum okkar á Ingunni AK restina úr nótinni uþb. 250 tonn. Settum á fulla ferð austur um land til löndunar í Neskaupstað eða á Seyðisfirði um sjöleitið í gærkvöldi og verðum næstu nótt í höfn. Svona í lokin vil ég benda á nýjar myndir sem sýna best að þrátt fyrir áföll þá eru menn tilbúnir til að slá á létta strengi. Marri kveður í bili og þar sem ég er að fara í jólafrí vil ég nota tækifærið og óska lesendum síðunnar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Spakmælið: Þolinmæðin hjálpar ekki alltaf,- óþolinmæðin aldrei.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Styttist í löndun
30.11.2008 | 07:13
Sælt veri fólkið.
Erum komnir með hálffermi og er talað um löndun um miðja viku. Erum að skipta um sjó undir skipinu og erum rétt í þessu að koma hérna í Jökulfirðina með von um að ná í stærri og betri síld. Annars alt við það sama hér um borð og frekar létt yfir mannskapnum þrátt fyrir allt. Ég á von á að kokkurinn fari að dusta rykið af jólaskrautinu og sjá til þess að það verði hengt upp. Þangað til næst segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Erfðir trúir maður bara á, ef maður á vel gefin börn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðji síldartúrinn hafinn.
26.11.2008 | 21:13
Komið þið sæl.
Af okkur er það helst að frétta að við lönduðum 550T af síldarafskurði á Akranesi síðastliðinn sunnudag. Héldum síðan til Reykjavíkur og léttum á okkur svo hægt var að klára að vinna þann afla sem enn var eftir í kælitönkum. Kláruðum svo að landa á mánudeginum, heildar magnið var þá um 760 T af síldarflökum. Talað var um að í þessari löndun hafi miljarðarnir tveir verið sigraðir.
Héldum aftur til veiða seint á mánudagskvöld og vorum komnir á miðin við Stykkishólm í birtingu daginn eftir. Illa viðraði til nótaveiða þann daginn en karlinn lúðraði því þó einu sinni með takmörkuðum árangri. Í dag var aftur á móti allt annað uppi á teningnum, blíðskaparveður og náðum við svo til að fylla í 2-3 og 4 lestarnar í þremur köstum. Fylltum síðan upp 1-lestarnar úr nótinni hjá Álsey og sendum við þeim hinar bestu þakkir.
Höfum núna nóg hráefni fyrir vinnsluna fram á laugardag.
Læt hér fylgja með nokkrar myndir sem teknar hafa verið núna síðustu daga.
Hér til hliðar er Brúnn á Hóli kampakátur yfir því að hafa losnað úr eldhúsinu og komist á dekkið.
Hér til hliðar er eini harðjaxlinn á Hákon EA
Hér til hliðar er Börkur NK að sigla inn á Kiðeyjarsund. Það getur oft orðið þröngt á þingi.
Gullkorn dagsins er:"Náttúran er góð móðir. Af því að hún hafði ekki ráð á að gera okkur fullkomna, gerði hún okkur blinda fyrir okkar eigin yfirsjónum. "
Múffi kveður að sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Farið að sjá fyrir endann á þessu hjá okkur.
21.11.2008 | 09:28
Góðan daginn gott fólk. Nú er farið að sjá fyrir endann á þessu hjá okkur. Okkur vantar ekki nema 150-200 T upp úr sjó og þá ættum við að vera komnir með nóg hráefni til að geta fyllt í frystinn hjá okkur. Fengum ágætis kast í gær þrátt fyrir slæmar aðstæður vagna veðurs, náðum að fylla í 2 og 3 lestarnar. Sennilega verður landað í Reykjavík mánudaginn 24-11 ef allt gengur að óskum.
Læt fylgja með nokkrar myndir af síldarmiðunum við Stykkishólm.
Gullkorn dagsins er:"Viska er betri en perlur og engir dýrgripir jafnast á við hana."
Gott í bili Múffi kveður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bræla á síldarmiðunum í Breiðafirði.
19.11.2008 | 09:34
Góðan daginn gott fólk. Af okkur er allt gott að frétta vinnslan gengur vel og erum við núna búnir að hálffylla frystinn hjá okkur. Engin veiði var í gær hjá okkur vegna brælu og var sá tími notaður til að vinna upp það sem fékkst í fyrradag og dugir það okkur eitthvað fram á daginn í dag. Vonir standa til að veðrið skáni þegar líða fer á daginn þannig að vonandi náum við einhverjum afla í dag.
Gullkorn dagsins er:"Lífið er dans á þyrnum en stöku sinnum rekst maður á rós."
Múffi kveður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Síldarævintýrið heldur áfram.
16.11.2008 | 11:27
Jæja gott fólk, lönduðum rúmum 700 T af síldarflökum í borg óttans síðastliðin föstudag og héldum strax aftur á veiðar um miðnættið. Köstuðum þrisvar í gær rétt vestan við Stykkishólm og fengum í 1 og 3 lestarnar þannig að vinnsla hófst strax seinnipartinn í gær. Erum núna í þessum rituðum orðum að dæla úr fyrsta kastinu og lítur ágætlega út með það.
Gullkorn dagsins er: "Enginn þolir ójöfnuð verr en ójafnaðarmaðurinn."
Og með þeim orðum kveður Múffi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Löndun fyrirhuguð í borg óttans.
13.11.2008 | 14:41
Jæja jæja gott fólk þá er nú farið að sjá fyrir endann á þessu hjá okkur, áætlað er að landa í Reykjavík í fyrramálið. Ættum að vera búnir að fylla frystinn seint í nótt.
Þessi veiðiferð hjá okkur hefur gengið svona upp og ofan, mikið þurft að hafa fyrir því að ná síldinni svona inn á milli skerjanna við Stykkishólm. Síðasta kastið reddaði þó túrnum rúm 600 T.
Gullkorn dagsins á vel við á þessum síðustu og verstu tímum en það er: "Þá fyrst verður vel stjórnað þegar þeir komast til valda, sem hafa enga löngun til þess."
Nú er Marri að fara í frí og Múffi tekinn við og óskum við Marra velfarnaðar í fríinu og með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hálfnaðir
10.11.2008 | 20:04
Það hefur gengið svona upp og ofan hjá okkur síðustu daga. Fengum á fimmtahundrað tonn í fyrir helgi sem var bara helv. gott hjá kallinum. Aftur á móti hefur helgin og dagurinn í dag ekki boðið upp á neitt krafta fiskirí en það er nóg í vinnsluna og það er fyrir mestu. Þetta gengur nú þannig fyrir sig að vinnslan hefur verið stöðvuð þegar farið er inn á milli skerja til veiða, svona um níu á morgnanna. Svo fer það nú eftir aflabrögðum hvenær vinnslan fer aftur í gang. Það hefur þurft að nota allan birtutímann til veiða og síldarleitar fram að þessu. Eða réttara sagt að finna síld á stöðum sem hægt er að ná henni. Mér skilst að það sé nóg af síld hér inn á milli skerja.
Þeir eru alvarlegir þeir félagar hér á myndinni til hliðar. Ómögulegt að segja til um hvað þeir eru að hugsa um, kannski að einhver geti getið sér til um það, þá endilega setja það í athugasemdir. Ég sé að það er ennþá líf í rjúpnalandsmálinu, greinilegt að það voru bornar miklar væntingar til að um semdist. Nú læt ég staðar numið að sinni og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Leitaðu að einhverju fögru og þú munt finna það. Það er aldrei langt undan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)