Hákonsfréttir
30.3.2009 | 15:21
Jæja gott fólk lítið að frétta af miðunum, lítil veiði undanfarna daga. Fengum þó í gær í 3-lestarnar þannig að við höfum verið að frysta síðasta sólahringinn. Ættum að vera komnir með um 300T þegar búið er að vinna þann afla. Í þessum rituðu orðum erum við nýbúnir að kasta og útlitið er ekkert sérstakt, vonandi bara að úr rætist.
Annars bara allt þokkalegt að frétta af mannskapnum, Jói T byrjaður að safna hári og kemur það mjög vel út miðað við það að maðurinn var algjörlega hárlaus - á höfðinu. Ætti að vera kominn með fallegan prestakraga um páskana.
Gullkorn dagsins eftirfarandi: "Skynsamleg spakmæli eru andlegir fjarsjóðir."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kolmunninn hvarf í brælunni.
27.3.2009 | 15:25
Jæja gott fólk, nú virðast menn vera búnir að týna kolmunnanum því eftir að brælunni linnti þá var ekkert að sjá á tækjunum þeirra í brúnni. Er nú flotinn ósigrandi allur farinn að leita af lóðningum um allan sjó. Vonandi að það finnist eitthvað fljótt.
Kokkurinn klikkaði ekki á því í dag og fengu allir nóg af lambalæri í hádeginu.
Annars er það að frétta af körlunum um borð að þeir áttu náðuga kvöldstund í gærkvöldi fyrir framan sjónvarpstækið og horfðu á "Desperate Housewifes". Þegar sá alsvalasti hér um borð mætti svo einnig fyrir framan sjónvarpstækið með rafmagnssígarettuna í kjaftinum þá varð mönnum á orði: "Svo bregðast krosstré sem önnur tré." Læt ég það standa sem gullkorn dagsins.
Múffi kveður að sinni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rockall-bræla..
26.3.2009 | 10:02
Sælt veri fólkið.
Vorum komnir á miðin á fyrra fallinu og köstuðum trollinu rétt eftir hádegi í gær. Dregið fram að kvöldmat, en þá var farið að blása á karlanna og var þá veiðarfærið tekið innfyrir, afraksturinn um 130 m3. Ágætis skammtur til að hefja vinnslu. Spáð er áframhaldandi brælu a.m.k. fram á morgun.
Annars allt gott að frétta af körlunum, vinnslan fór ágætlega af stað, aðeins smá hnökrar í frystilestinni. Ekkert sem hinir indælu vélstjórar gátu ekki leyst.
Gullkorn dagsins er:"Þú getur hlaupið frá öllu, sem þú vilt, nema samvisku sjálfs þíns."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hákonsfréttir
24.3.2009 | 09:43
Jæja sælt veri fólkið.
Við lönduðum í Neskaupsstað í gær tæpum 800T af gúanói og um 700T af frystum kolmunna. Fórum út aftur um kl: 20:00 áleiðis á miðin við Rockall. Væntanlegir á miðin annað kvöld ef veður leyfir, veðurspáin ekkert sérlega góð.
Gullkorn dagsins er: "Enginn skyldi spyrja fiskinn um það sem gerist á landi".
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Túrinn senn á enda.
20.3.2009 | 08:43
Jæja gott fólk nú er farið að sjá fyrir endann á þessum túr hjá okkur, vorum komnir með rúm 500 T í frystinn síðast á miðnætti. Erum nú að toga, væntanlega síðasta holið og er útlitið alveg ágætt okkur vantar aðeins í 3-lestarnar.
Gangafréttir segja að löndun sé fyrirhuguð í Neskaupsstað mánudaginn 23 mars og hafa þær sjaldan brugðist okkur, gangafréttirnar. Hermt er af göngunum að matsveinninn okkar sé búinn að vera svo duglegur við baksturinn þennann túrinn að hann veit ekki hvað hann á af sér að gera á milli mála, ef hann sleppir því að baka.
Spakmæli dagsins er:"Ötular og öflugar sálir geta hvorki né mega halda kyrru fyrir, meðan æskufjörið varir."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Smáfréttir
18.3.2009 | 09:22
Jæja gott fólk, komið þið sæl.
Af okkur er allt fínt að frétta, ágætis veiði í gær og veðrið alveg ágætt, frekar heitt þessa dagana. Fengum í 1 og 2 lestarnar í gær og vorum komnir með um 300 T í frystinn síðast á miðnætti og bara ágætis gangur í vinnslunni hjá okkur, 7-9-13!!
"Poolararnir" hér um borð eru farnir að jafna sig eftir leiki síðustu helgar en spurningin hjá þeim er sú hvort "United" - karlarnir séu ennþá í áfalli því menn furða sig á þögninni. Engar afsakanir eða skýringar heyrast á því hvers vegna "United" spilaði eins og lið úr neðri deildum. Kannski hefur meðferðin hjá áfallateyminu dregist eitthvað.
Spakmæli dagsins er: " Þegar sápubólan hefur náð sínum fegurstu litum, þá springur hún."
Múffi segir yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hákons-fréttir.
16.3.2009 | 11:54
Jæja gott fólk við vorum komnir á miðin norðvestur af Írlandi í fyrri nótt og köstuðum veiðarfærinu út strax. Afrakstur úr fyrsta holinu var nú eitthvað rýr því híft var fljótlega eftir að morgunvaktin hófst vegna bilunar í höfuðlínukapli. Kastað aftur rétt fyrir hádegi í gær og dregið fram að kvöldmat og dugði það hol til að fylla í 3-lestarnar og er nú verið að frysta úr því. Nú þegar þetta er ritað þá erum við búnir að draga síðan kl. 8 og erum komnir með 3-punga inn. Ættum að vera komnir með um 100 t í frost um hádegisbilið.
Bloggritari var beðinn fyrir sérstakar kveðjur til Davíðs Gígju, Ragnars Guðjónssonar og Jóhanns Adolfs frá æstum Liverpool aðdáendum hér um borð. "Poolararnir" hér um borð eru sko langt frá því að vera jarðtengdir þessa dagana. Veit eiginlega ekki hvers vegna "Poolararnir" eru svona kátir liðið þeirra er í 3ja sæti í deildinni??
Annars allt gott að frétta af okkur, Pétur kokkur græjaði lambahrygg og bernise í gær af sinni alkunnu snilld og bætti þar fyrir grjónalausa grjónagrautinn á laugardaginn. Stundum mikið um að vera í eldhúsinu.
Spakmæli dagsins er: "Kauptu ekki hluti, þótt ódýrir séu, sem þú ekki þarft."
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Annar kolmunnatúrinn hafinn.
14.3.2009 | 09:18
Jæja gott fólk komið þið sæl.
Af okkur er allt þokkalegt að frétta. Fórum frá Neskaupsstað um kl 20:00 þann 12-03 eftir að hafa landað þar um 700 t af heilfrystum kolmunna. Er ferðinni heitið á kolmunnamiðin vestur af Írlandi, rétt utan við írsku lögsuguna. Erum núna þegar þetta er ritað rétt vestur af Rockall-klettinum í leiðinda brælu og miðar okkur frekar hægt áleiðis. Ættum að vera komnir á miðin eftir um 20 klst miðað við ganginn á okkur núna. Fréttir af miðunum eru að þar sé aftaka veður og litlar veiðifréttir þess vegna.
Spakmæli dagsins er:"Af mönnum sem engan sjóndeildarhring hafa, er ekki hægt að heimta rétta skoðun á heiminum."
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Alltaf kemur blíðviðrið aftur*****
10.3.2009 | 22:18
°Sæl enn og aftur, Stýrimaðurinn brást ekki fremur venju í þessari veiðiferð hann var fljótur að ná 200 tonnum fyrir birtingu í gærmorgun, spurning hvort kallinn þarf ekki smá frískamín til að ná fyrri leikni við Svartkjaftinn* þ.e. kolmunnann , en hann fann þó torfuna!! Við reiknum með að verða á Neskaupstað um hádegi þann 11, mars, ef gengur sem horfir núna, 700 tonn af frosnu og 500 + í bræðslu. Fengum meðal anarra orða renniblíðu í dag,en nú er runnin á austan -suðaustan allhvass vindur. Læt þetta nægja aða sinni.
Kv / Seán,
Sá sem er hygginn í smámunum, reynist ekki heimskur í meiri efnum.
Sem verður vonandi er kreppunni léttir!!**
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Höfum þokað okkur Norður á bóginn.
8.3.2009 | 21:51
Gott kvöld þið sem lesið fréttaskotin. Við fengum 120 tonn í gærmorgun eftir næturlangt tog, smá hnökrar síðdegis þann dag að koma trollinu kláru í hafið, en tókst loks um 23,00. Um hádegi í gær voru komnir þessir frísku 15 - 20 m/sek sem við erum orðnir nokkuð vanir að blási á okkur þessa dagana og talsvert þung undiralda með. Semsagt bræla í gærdag og í dag, færðum okkur um 30 sm norðar í dag og bíðum eftir að slái á vind og sjó, vonandi kastfært fyrir birtingu í fyrramálið. Lukum vinnslu 04,00 í morgun og vantar 50 tonn í frystilestina. Eitthvað hefur kallinn séð fiskilegt hér í dag, kemur líklega í hlut stýrimannsins að fanga gripina með morgninum!!??
kv/ Seán.
Aldrei ríður þér á að fara eins varlega og þegar þú ert að öllu leyti sjálfráður gerða þinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)