Síðasta blogg fyrir slipp.

Jæja þá erum við búnir með kolmunnakvótann okkar og eitthvað aðeins meir. Lönduðum rúmum 700 tonnum frosnum í gær og tæpum 600 í bræðslu. Héldum til Eskifjarðar eftir löndun í Neskaupstað til að losa okkur við veiðarfærin og héldum svo áleiðis til Aey kl. 10 í morgun. Meiningin er að fara í slipp og taka skipið í skveringu þannig að allt verði klárt fyrir síldina í sumar. Verðum væntanlega komnir á eyjafjörðinn, fegursta fjörð landsins að mati heimamanna, með morgnionum. Takk fyrir að sinni og Marri segir yfir og út.

Spakmælið: Maðurinn skipuleggur en Guð ræður.


Bara vel.........

Hæ hæ:). Það hefur bara gengið vel hjá okkur síðustu daga. Reyndar var ekkert sérstakt fiskirí á fiskiskiljuslóðum en hafðist þó að fiska nóg fyrir vinnsluna. Færðum okkur sunnar í gærdag og erum nú komnir þar sem flest skipin eru. Erum komnir með frystinn hálfann og vorum að enda við að dæla 300 tonnum ++. (30 tonn í plúsnum).  Vinnslan hefur gengið vel enda búin að vera rjómablíða á okkur síðan við héldum úr höfn. Bindivélarnar hafa verið með óþægð og er helst kennt um að við fengum öðruvísi borða í þær síðast en vonandi gerist það ekki aftur. Segjum þetta gott í bili og þangað til næst segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Ef þú getur haldið ró þinni þegar allir aðrir eru að fara á taugum er það vegna þess að þú skilur ekki hvað er um að vera.


Í tilefni kosninganna:)

Sælt veri fólkið! Fórum frá Neskaupstað undir miðnætti í gærkvöldi áleiðis til veiða suður af Færeyjum. Áætlað er að kasta trollinu núna með kvöldinu nokkuð norðar en skipin hafa haldið sig fram að þessu á svæði þar sem verður að notast við fiskiskilju á trollbelgnum. Fyrir þá sem ekki vita þá er fiskiskilja í kolmunna trolli til þess ætluð að koma í veg fyrir að góðfiskur (þorskur, ýsa osfrv.) fari aftur í trollpokann.

 Mikil gróska er í framsóknarfélaginu hér um borð, gjaldkeri félagsins var búinn að flagga fána flokksins straks kl. átta í morgunn. (Reyni að koma inn mynd, ef hægt er). Formaðurinn hann Guðjón skipstjóri var vongóður um niðurstöður kosninganna. Í spjalli við undirritaðan hafði hann á orði að hér um borð ætti framsókn vís atkvæði frá allri áhöfninni og tel ég það ekki fjarri lægi. Gjaldkeri félagsins er vel að starfinu kominn enda kominn af framsóknarmönnum langt aftur í ættir  og á ættir sínar að rekja til vöggu framsóknar á norðurlandi sem er Lómatjörn. Þá ætti öllum að vera ljóst hver maðurinn er, jú það er Ingólfur Jó.  Þeir félagar segja að ekkert annað komi til greina en að setja X við B. Nú er bara að sjá hvað setur í því sambandi.

Með þeim orðum segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Ekki er gagn af gestagangi.


GLEÐILEGT SUMAR**********

Sæl öll og til lukku á og með sumardaginn fyrsta! og vissulega allt framhaldið.  Við lukum veiðum þennan túrinn í gærkvöldi, fengum þá 200 tonn ++ og um miðnætti s.l. voru komin 600 frosin tonn í frystilestina, reiknum með að ljúka frystingu, ekki seinna en um miðnætti n.k.   Erum sem sagt á landleið og eigum eftir ca 160,  til Norðfjarðar, verðum þar í fyrramálið á vinnutíma vonandi!!  Sunnan 12 - 15 m/sek eru hjá okkur þessa stundina og smá veltingur sem er óheppilegur fyrir vinnsluna og förum við því hægar í bili. Reiknað er með að einn túr verði farin til viðbótar og svo er áætlað viðgerðastopp á Akureyri, ekki mjög lengi þó!! fréttaþurrð að sinni !!!

                                                                      Kv / Seán,

Vísan sú í gær var um Smjörvatnsheiði:          þessi er af öðrum toga!!

                                               Gróðinn fór í skálkaskjól

                                               skattinn til að flýja.

                                               Andskotinn þar á sér ból

                                               svo eflaust þar er hlýja!???       eftir Davíð þór og Kristínu Guðjónsd.


60°Nb og 6°40mín,V-lengd.

Sæl öll enn og aftur! hér gengur okkur flest í hag, aflabrögðin hæfileg fyrir vinnsluna og veður og sjólag hefur verið hagstætt, þó er stinningskaldi í dag og kvikutrítla  sem angrar okkur ekki að neinu marki, spáin eitthvað í svipaða veru næstu daga. Hífðum upp úr hádegi í dag 100 tonn og erum að draga núna, hífum væntanlega fyrir myrkur því lítið sem ekkert fæst yfir dimma tíman. Í frystilestina eru komin ca 470 tonn  svo ef gengur sem horfir gætum við landað  síðdegis á föstudag! en nokkur atriði geta tekið  aðra stefnu þangað til!!? . Aðeins úr boltanum nú er man-utd talið af sumum, besta lið í heimi!!! komið í annað sætið á eftir Everton,  ef til vill ná þeir að halda haus þar um tíma??? en ekki er á vísan að sparka þar frekar en að róa til fiskjar frá Íslandi, Vonandi að Grétar Mar ( sem vill taka kvótan af útgerðum landsins ) snúi sér að því að veiða murtu í litlu vatni þegar hann hættir á þinginu innan skamms, bara grunnu!!!!! svo hann geti vaðið um það!!! 

                                                            Kv / Seán.

Sums staðaradrýpur smjör af hverju strái !?  ekki þó alsstaðar eins og eftirfarandi ber með sér,

eftir  Steindór Steindórsson frá Hlöðum.

                                               Enn sá heiðarandskoti!

                                               ekkert strá né kvikindi, 

                                               hundrað milljón helvíti

                                               af hnullungum og stórgrýti. 


Milli Færeyja og Skotlands

Blessuð og sæl gott fólk, engar fréttir eru stundum sagðar góðar fréttir!? Af okkur er allt gott að frétta, fórum frá Neskaupstað síðdegis þann 16 apríl, í logni og sléttum sjó og hefur það haldist síðan, rjómablíða en  sólarlítið. fengum fljótlega 140 tonn og svo aftur 180  t í gærkvöldi, og telst okkur til að frosin séu 200 tonn ++ búið að færa upp í miðjuop við  lyftuna sem flytur frystivöruna niður í lest. Smá hremmingar á herðum vélalliðsins í gær, þá brotnaði eitt stk vökvamótor við BB togvinduna  og tóku þeir 4 tíma í að skipta honum út fyrir nýjan, togað með bremsur á spilunum á meðan og gekk eins og í sögu.  Svo kom gæslan um borð í dag og áttu tal við mennina í brúnni um ýmis mál, m.a. fluttu þeir þær fregnir að á rússnesku skipunum, sem allmörg eru hér, væru í flestum tilfellum kvenkokkar, ég held að koksi okkar vilji halda starfinu en gæti sætt sig við aðstoðar-!!!??

                                                      Kv / Seán

Vinur er sá sem stendur líka með þér þegar þú gerir vitleysur.


Landstím.

Jæja gott fólk þá er þessum túr að verða lokið. Fengum í 2-lestarnar í morgun og erum við þá komnir með nægt hráefni til að fylla í frystilestina hjá okkur. Ættum að vera komnir á Norðfjörð um hádegisbilið á morgun.

Af körlunum er allt gott að frétta þó er smá kvíði í loftinu hjá "Poolurunum" um borð enda erfiður leikur í kvöld gegn hinu geysi-sterka Chelsea liði. En eins og menn vita þá þarf Liverpool að sigra leikinn með þriggja marka mun til þess að eiga möguleika á að halda sér inni í Meistaradeildinni þetta árið. En "Poolararnir" eru seigir og þeir hafa reyndar áður staðið frammi fyrir svipuðum aðstæðum og náð að knýja fram sigur á síðustu metrunum. "Poolararnir" þurfa þó ekkert að vera kvíðnir því áfallateymið sem sett var á fót eftir síðasta leik liðanna verður í startholunum ef illa fer fyrir þeirra mönnum. Megi betra liðið sigra!

Gullkorn dagsins verður: "Heilbrigt hjónaband er ekki  fyrst og fremst byggt á hreinskilni, heldur miklu fremur á skynsamlegri þögn."

Með þeim orðum kveður Múffi að sinni.


Hákonsfréttir.

Gleðilega páska gott fólk.

Af okkur er allt gott að frétta erum komnir með um 400t í frystinn og nægt hráefni næsta sólahringinn.  Híft var um hádegisbilið eftir um 6klst tog og fengum við í 2-lestarnar. Veðrið er eins og best verður kosið, sól og sumarblíða í dag eftir brælu gærdagsins.

Karlarnir um borð alsælir eftir að hafa belgt sig út af lambahrygg í hádeginu og páskaeggi nr.5 í desert.  Færum við matsveininum hinar bestu þakkir fyrir trakteringarnar.

Gullkorn dagsins er: "Það er ekkert til sem kallast getur óhjákvæmilegt stríð. Ef stríð skellur á , stafar það af fávísi mannanna."

Múffi kveður.

 


Áfallahjálp fyrir "Poolarana".

Sælt veri fólkið. 

Af okkur er allt þokkalegt að frétta fengum í 3-lestarnar eftir fyrsta holið og kláruðum að frysta það í gærkvöldi. Híft var um miðjan dag í gær og fengum við þá í 1-lestarnar og erum við að vinna það núna þegar þetta er ritað. Trolli var kastað um vaktaskiptin í morgun og eru nú komnir inn tveir pungar og útlitið bara gott.

"Poolararnir" hér um borð hafa verið frekar niðurdregnir eftir síðasta leik í meistaradeildinni. Svo niðurdregnir hafa þeir verið að talað hefur verið um að það sé þörf á að setja á fót áfallateymi til að ná þeim til baka úr Svörtuloftum!! Gangafréttir herma að "aðalpoolarinn" sé jafnvel að spá í að ganga úr Liverpool-klúbbnum og sækja um í Chelsea-klúbbnum. Býður bloggritari Árna velkominn í þann ágæta klúbb.

Annars allt gott að frétta af körlunum, brytinn bar á borð fyrir okkur lambalæri og bernise í gær og var tilefnið afmælisdagur skipstjórans. Óskar ritnefnd bloggsíðunnar skipstjóranum til hamingju með gærdaginn.

Gullkorn dagsins er tileinkað harðjaxlinum um borð hjá okkur en það hljómar svo: "Stundum þurfa hlutirnir bara að versna áður en þeir skána".

Og með þeim orðum kveður Múffi.


Út aftur eftir gott helgarfrí.

Jæja gott fólk, loksins kemur nýtt blogg. Ástæðan fyrir bloggþögninni er sú að í síðustu viku var ákveðið að sigla í land með hálft skip og taka gott helgarfrí á þessu.  Við lönduðum í Neskaupsstað miðvikudaginn 1. apríl  350 t af frystum kolmunna. Fórum svo út aftur mánudaginn 6. apríl með viðkomu í Reyðarfirði til að taka umbúðir.  Nú þegar þetta er skrifað þá erum við nýbúnir að kasta trolli á gráa svæðinu á milli færeysku og skosku lögsugunnar.

Annars allt gott að frétta af mannskapnum, þeir sem voru í síðasta túr og komu aftur voru vel hvíldir og endurnærðir á sál og líkama.

Gullkorn dagsins verður: "Fáir vita hversu mikið menn þurfa að vita, til þess að vita hversu lítið þeir vita."

Og með þeim orðum kveður Múffi.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband