Aftur inn á Eskifjörð.

Jæja gott fólk.  Vorum búnir að taka eitt hol með nýja trollinu og vorum að draga hol nr. tvö þegar við lentum í því að höfuðlínukapall slitnaði hjá okkur og við það flæktist nýja trollið sem við náðum í inn á Eskifjörð í  fyrradag.

Eftir að reynt var að greiða úr flækjunni í heila vakt án árangurs var ákveðið að fara með þetta í land á Eskifirði og greiða úr þessu þar. Þeir eiga víst nýrri útgáfu af flækjubókinni þar  en til er hér um borð. Þökkum við Stebba og félögum á netaverkstæðinu á Eskifirði kærlega fyrir hjálpina. Þeir eiga heiður skilið. Voru búnir að greiða úr þessu um kl 3 í nótt og héldum þá aftur strax á miðin og erum nú þegar þetta er ritað að gera okkur klára til að láta það fara.

Illar tungur um borð kenna þessar ófarir við að stýrimaðurinn okkar átti afmæli í gær en við blásum bara á svoleiðis hjátrú og óskum honum innilega til hamingju með fertugs-afmælið. (Væntanlega verður honum færð nýjasta útgáfan af flækjubókinni í afmælisgjöf.)

Erum komnir með um 300 T  af makríl í frystinn og hefur vinnslan gengið alveg með ágætum.

Gullkorn dagsins er: "Það er mjög mikilvægt að umgangast sérhvern mann eftir eðli hans og skapferli."

Múffi kveður að sinni.


Endurnýjun á veiðarfæri.

Sælt veri fólkið - af okkur er bara allt gott að frétta, skruppum inn á Eskifjörð til að endurnýja veiðarfærið. Verðum væntanlega komnir með réttu græjurnar í makrílinn eftir þau veiðarfæraskipti! Fengum ágætis hol áður en lagt var af stað til Eskifjarðar og erum að vinna það núna ,þegar þetta er ritað, úti á Reyðarfirðinum á meðan verið er að gera trollið klárt í landi.  Erum komnir með um 160 T í frystinn. Annars bara allt gott bongóblíða á miðunum en samt leiðinda þoka.

Gullkorn dagsins verður: "Ef þú elskar lífið, þá eyddu ekki tímanum, því hann er það, sem myndar lífið."

Múffi kveður að sinni.


Komnir út aftur eftir löndun.

Jæja gott fólk lönduðum á Seyðisfirði aðfaranótt mánudags u.þ.b. 500 T í bræðslu og síðan færðum við okkur yfir á Neskaupsstað og  kláruðum að landa þar öðrum  500 T í bræðslu og um 700 T af frosnum síldarflökum og hausskornum makríl. Þetta reyndist svo bara ver alveg ágætis túr hjá körlunum.

Löndun var lokið um 3:30 síðastliðna nótt og var þá haldið á miðin á nýjan leik. Köstuðum trolli um kl 14.00. Skilst núna þegar þetta er ritað að útlitið sé ekkert sérstakt, 2-pungar inni.

Gullkorn dagsins er: " Afbrýðisemin vaknar um leið og ástin, en hverfur ekki alltaf með henni."

Múffi kveður að sinni.


Aftur á heimamið.

Sælt veri fólkið. Nú er veiðum lokið í færeysku lögsugunni og við komnir aftur á heimamiðin. Leyfilegum kvóta í færeysku lögsugunni er náð.  Köstuðum seinnipartinn í gær í íslensku lögsugunni og hífðum um miðnættið u.þ.b. 40-50 T.

Komnir með rúm 500 T í frystinn og gangafréttir herma að löndun sé fyrirhuguð  á mánudaginn.

Gullkorn dagsins er: "Í rauninni er hjálpsemi sú, sem fátæklingarnir veita hvor öðrum, miklu meiri en sú hjálp, sem auðmennirnir sína þeim."

Múffi kveður í bili.


Komnir í færeysku lögsuguna.

Jæja gott fólk af okkur er frekar lítið að frétta færðum okkur yfir í færeysku lögsuguna í fyrradag eftir frekar slagt gengi í þeirri íslensku. Verðum væntanlega komnir með tæp 300 T í frystinn um miðnættið.

Gullkorn dagsins er: "Sannleikurinn særir ekki nema hann ætti með réttu að gera það."

Með þeim orðum kveður Múffi.


Lítið að frétta af bleyðunni.

Jæja sælt veri fólkið. Fórum frá Neskaupsstað seinni hluta dags þann 19-6 eftir að hafa landað um 500 t af frosnu og um 250 T af gúanói þar. Vorum komnir á miðin um miðja nótt þann 20-6 og var afrakstur fyrstu tveggja holana frekar rýr og hækkar rólega í frystinum hjá okkur. Útlitið núna er frekar lélegt og herma fréttir af stjórnpalli að svo sé almennt á bleyðunni.

Annars er allt þokkalegt að frétta af mannskapnum allir heilir heilsu og þeir sem komu úr fríi virðast koma nokkuð ferskir til starfa. Óskum þeim er í frí fóru góðrar heimkomu og meigi fríið þeirra nýtast sem best.

Gullkorn dagsins verður: "Ástæðan til þess að foreldrarnir leiða börnin sín ekki í rétta átt er sú, að þangað eru þeir alls ekki að fara."

Með þeim orðum kveður Múffi.


Gáfum guði dýrðina, fiskuðum varla uppá hund!!!

Sæl enn og aftur, verðum í landi í fyrramálið og löndum upp undir 500 tonnum af frosnu og einnig slatta í bræðslu. Gáfumst upp á makrílslóðinni erum víst ekki með réttu veiðarfærin fyrir veiðar á gullfiskum og síld í yfirborðinu. Tökum troll við hæfi annað kvöld og höfum þá ekki þá afsökun í næstu ferð !!!!           Lítið annað markvert, en ekki nein uppgrip hjá öðrum skipum, bara óttalegt sarg.

                                                             Kv / Seán.

 Haraldur gamli frá héraði                                                                                                                     

hreppstjóra spúsuna þéraði

í einskærri hrellingu

við þá ástleitnu kellingu,

er hún æxlunarfæri sín beraði.

                                   


Á suðurleið í renniblíðu.

Sælt veri fólkið og takk fyrir athugasemdirnar.. Það varð all snöggt um síldveiðina við Jan-Mayen, fundum ekkert eftir hádegi í gær og héldum af stað á blönduð síldar og makríl mið s.l. nótt, hífðum síðast 50 tonn um hádegisbil í gær. Norska gæslan heiðraði okkur með heimsókn í gær og dvaldist tveimur offiserum um borð hjá okkur í 8 tíma, héldu líklega að við værum viðsjárgripir  síðan við borguðum þeim svo vel í fyrrahaust, þeir fengu nú samt að snæða sunnudags-steik  með okkur en enga fyrirframgreiðslu. Vorum eina íslenska skipið á svæðinu, Nordborgin og norski Garðar voru þar einnig, aðrir voru farnir suðurum á makrílslóðina. Makrílveiðin er talsvert gloppótt eftir fréttum þaðan að dæma, svo við áætlum engin uppgrip næstu daga, kallinn er að hressast, kom niður á dekk í kvöld, einhver lumbra í honum síðustu daga, en vonandi færist fjör í gamminn  þegar gullfiskarnir fara að dælast um borð.   Frosin eru um 340 tonn.          Gott að sinni,

                                                                  Kv / Seán.

Ekki fer ætíð betur þá breytt er!!!!!          vonandi fáum við samt makríl og síld !!!??? 


20 - 30 sm austur af Jan-Mayen.

Sæl nú enn! Aflinn úr holinu í fyrrakvöld var ca 200 tonn og svo í gærmorgun 230 tonn , í dag komu svo 170 t innfyrir, erum á dólinu síðan í hægviðri og  sléttum sjó. Vinnslan gengur vel og frosin um 230 tonn, Vilhelm og Nordborg, sú nýja færeyska, nýsmíðuð komin frá Chile,  eru á svipuðu róli og við og hafa reitt þokkalega að sögn þeirra sem fara með talstöðvar-fjarskipti hér.  Læt þetta dug að sinni.  

                                                    Kv / Seán.

Þegar þú lokar huganum fyrir neikvæðum hugsunum, þá opnast dyr tækifaranna. 


Slippnum lokið og sjómannadeginum einnig.

Sæl öll og afsakið að fréttir af okkur hafa ekki ratað inná þessa síðu í nokkrar vikur. Við lukum slippnum á ca 3 vikum, margt var gert en nokkur atriði lentu á geymslulistann eins og verða vill á stóru heimili, allavega stóðu fáein verk eftir hjá vélstjórunum, en þeir eru þekktir fyrir að vinna á hlutunum þótt ekki sé legið í höfn. Við gerðum góðan túr fyrir sjómannadag  fórum frá Akureyri 24 maí og fiskuðum ágætlega, lönduðum 3 og 4 júní  700t + af frosnu og afskurði til samræmis ,að magni til.  Þessi túr hófst svo síðdegis á mánudag 8 júní og höfum við -rassskellt  hafflötin Fyrst norður- um og svo suður aftur og svo í gær og s.l. nótt norður til Jan Mayen  sem er í sjónmáli í dag  20 til 30 sm, undan.  Settum trollið út um hádegisbil í dag og drögum enn, talað er um að ekki færri en tvö ljós séu komin hjá karlinum í brúnni, en sá verður að gera gott betur en það, þótt mjór sé mikils vísir!!!??ekki kallinn!!!!! Fengum  35 tonn í fyrrinótt.  Veðrið er rjómalogn en í svalari kantinum.  Verð að óska Marra.is til hamingju með nýja Marlandið sem hann er komin í, það er  að vísu ekki við sjó en hann fer jú á sjó af og til, læt þetta gott vera að sinni, erum reyndar að hífa í þessum skrifuðum orðum.

                                                                   Kv / Seán,

Flestu fólki er reynslan eins og afturljós á skipi, hún bregður  einungis ljóma yfir farna leið.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband