Nethremmingar!!

Jæja gott fólk þá kemur aftur smá - blogg.

Það er helst af okkur að frétta að við byrjuðum að toga á móti félögum okkar á Vilhelm Þorsteinssyni EA  í fyrradag og fengum við í gær rúmlega í 2-lestarnar og dældum svo restinni af því holi yfir til makkersins. Ætti það hráefni að duga okkur eitthvað fram á kvöldið. Síldin sem fékkst í gær er stór og falleg og er verið að heilfrysta hana og erum við komnir með um 200 T í frystinn hjá okkur. Í augnablikinu erum við að leita ásamt makkernum okkar því síldin virðist vera horfin á önnur mið.

Af göngunum er það helst að frétta að við urðum tímabundið sambandslausir við umheiminn í nótt vegna bilunar í netbúnaði sem orsakaðist vegna þess að einn áhafnarmeðlimur komst ekki á netið úr sinni einkatölvu og hélt þá að gott væri að slá út símstöðinni. Menn velta því fyrir sér hér um borð hvort símstöðin á Ólafsfirði verði reglulega sambandslaus þegar ákveðnir aðilar komast ekki á netið þar í bæ! En allt fór þó vel að lokum og menn hafa þá eitthvað til að skemmta sér yfir.

Annars er allt gott að frétta af körlunum smá flensuskítur hér og þar  en menn bera alveg af sér að um sé að ræða margumrædda svínaflensu.

Gullkorn dagsins verður:"Það er einkenni snillingsins, að hann starfar aldrei árangurslaust, enda þó árangurinn verði allur annar en hann óskaði eftir."

Og með þeim orðum kveður Múffi.


Smáfréttir

Sælt veri fólkið.

Fórum út frá Neskaupsstað um hálftólf - leytið í gærkvöldi eftir að hafa landað þar um 600 T af frosnu og um 300 T í bræðslu.

Köstuðum um hádegið í dag á miðunum 100 sm austur af Gerpi. 

Gullkorn dagsins verður: "Fyrirhyggjan hindrar margan höfuðverkinn".

Nóg í bili - Múffi kveður.


Löndun 6 -7 ágúst, 68°Nb og 15-16° V lengd.

Sæl öll!! ef hægt er að skrifa alla um þá sem lesa þessar færslur!!  Þessi túr sem nú er í gangi hófst að morgni 7 ágúst, eftir löndun í bræðslu og frost þar á undan.  Leitað norður af Langanesi og Melrakkasléttu og hófum þar veiðar í samtogi með Vilhelm Þorsteinss, veiðiðn hefur gengið ágætlega með smá undantekningum þó, erum í tvígang búnir  að fá 300 tonn, s.l. nótt og í fyrrakvöld  minni hol þar áður, Vilhelm hefur fengið  svipað enda stendur ekki til að halla á þá fremur en á hinn veginn. Í morgun var talsvert að sjá og var talsvert gleypi-hljóð í brúarmönnum og allt að því formsatriði að hremma þá silfruðu, en hún hefur ætíð verið brellin og fór svo að við toguðum Vilhelms troll í ca 7 tíma og afraksturinn  langt innan við væntingar sem menn drógu af útlitinu í morgun, það sannast með kálið að það er ekki sopið þótt ausunni sé brugðið, og trollinu í þessu tilfellli á síldina!!!.  Veðrið er blíða hér norður frá  en þokusælt síðustu daga, þó heldur léttara í dag.   Erum líklega langt komnir með að frysta 400 tonn svo þetta hefst vonandi fyrir helgi, mögulega löndun á föstudag eða laugardag, einhverjir stefna á bæjarhátíð á Grenivík á laugardag, en lakara útlit fyrir þá sem eru heima og ætla að ná hátíðinni áður en þeir halda til sjós, öllum verður víst aldrei til hæfis! gert!!!        Hef þetta gott að sinni.

                                                         Kv/ Seán

Hrein samviska er stundum seld fyrir peninga, en verður aldri keypt fyrir þá.


Skipt um troll á Eskifirði

Sælt veri fólkið! Veiðarnar hafa gengið brösött síðustu daga,20 tonn/ 100 t / 30 t,  og 100 tonn síðasta hol í gærmorgun, trollið ekki auðvelt í meðförum með þeim aukahlutum sem hengt er á það, svo sem stórir pilsulaga belgir til að auðvelda að toga með það upp undir yfirborði þegar síldin er upp við yfirborð, leggir í möskvum slitna og svo endaði með því að ekki gekk að koma þessum slitrum í hafið svo vel færi og  ryflingnum spólað inn á tromlu og sett á fulla ferð til Eskifjarðar,  fengum þar annað troll s.l. nótt. Erum svo á útleið aftur, ca 12 tíma stím hvora leið,  vorum nálægt miðlínu við Færeyjar, þar var ágæt veiði síðustu dægrin. Búið að frysta milli 2 og 300 tonn, semsagt verulegt frystipláss enn þar. Veðrið er hvítalogn í gær og dag og fremur súrt að geta ekki nýtt þennan hægviðristíma í veiðar fremur en ferðalög milli lands og miða, en vonandi sýna gosarnir uppi takta núna ella lækka þeir kanske í áliti og tign ef nýja trollið fiskar ekki!!!!??  Vantar lukkukokkinn sem var með okkur í síðasta túr þá var allur annar bragur á gangi mála í veiðunum.  nema þetta sé lukkutrollið okkar sem við fengum í nótt, fleiri hljóta að eiga lukkutroll en Ljótu hálfvitarnir, rétt að spila lagið fyrir kallana í brúnni** ef næst í það?**Hef þetta nóg að sinni.

                                              Kv / Seán,

Það gengur ekkert það að unglingi, sem ágerist ekki við að rökræða það við hann, þó ekki algilt!!!**

 


Löndun lokið // Ný veiðiferð hafin.

Sæl enn á ný!! Lönduðum  s.l. sunnudag úr fullri frystilest síld og makríl, einnig 350 tonnum ca í bræðslu.  Þessi veiðiferð hófst út af austfjörðum og höfum við þokast norðar og erum austur af Langanesi, gæti heitið Bakkaflói eða Héraðsflói, ekki fjarri,66°Nb og 12° V-lengdar, fengum s.l. nótt 25 tonn og í dag 120 tonn, svo betur má ef duga skal, vinnslan höktir með þessu áframhaldi. Bjarni Ólafss er farin til síns heima og karlarnir þar verða ekki á sjónum fyrr en eftir versl-m-helgi, af fréttum að dæma,en þær eru ekki alltaf staðfestar, oft ágiskanir!!!. Þannig að nú verða brúargosarnir okkar að finna og fiska uppá eigin spýtur!! sem þeir gera nú efalaust !!!?   Aðstoðar kokkurinn sem var með okkur í síðustu veiðiferð tók sér frí og því hefur Grýtubakka-kokkurinn talsvert meira að gera, því Rúnar var vel liðtækur í eldhúsi og borðsal, enda E-Möllers ættar og þaðan koma  ekki letiblóð.     Hann ætlar helst að koma fljótt aftur, sem væri  ágætt því við höfum ekki verið sneggri að ljúka fullum frystitúr á þessu ári, svo fiskifæla verður hann ekki nefndur****** Læt gott vera á sinni.

Eftir Hallmund Kristinsson,          Nokkuð drjúgur í djammi                                                    

                                                   var doktor Pálmi frá Hvammi

                                                   Hann konum var kær

                                                   og kláraði þær

                                                    meðan bændurnir biðu frammi.

 

                                                         Kv / Seán,


Á hægri ferð suður með austfjörðum

Góðan og blessan daginn og síðdegið gott fólk! Okkur hefur gengið allt í haginn síðustu daga, og sannast ef til vill með  því að engar fréttir eru góðar fréttir, þ.e. fáar færslur á þessari síðu.  Fengum í gærmorgun 100 tonn af blönduðum afla, megnið síld,  fáeinar loðnur, rauðmaga í matinn leyfilegt makríl-bland og eina vogmær að minnsta kosti, nokkuð fjölskrúðugt, svo tókum við síðdegishol sem við hífðum um kl, 20 og fengum úr því 300 tonn+. síldarhol... Bjarni Ólafss fór svo í land og landar væntanlega í dag, en við færðum okkur suður á bóginn þar eð kaldi var runninn á, á norðurmiðum, þess utan vantar okkur ekki mjög mikið og vonumst til að ná því hér austur af, líklega þegar Bjarni kemur aftur, hann er vissulega betri en sumir ónefndir sem við  höfum partrollað með!! Holið í gærkvöldi var 25-35 sm, þ.e. sjómílur norður af Langanesi. Vinnslan gengur liðugt og verða með svipuðum gangi nálægt 500 tonn frosin á komandi miðnætti. Hér austan við er nú logn og sól, semsagt rjómablíða!! ekkert lakara en það.    Skiptiblaðið er komið á töfluna og frímenn ættu jafnvel að huga að vinnulistanum fyrir brottför.

                                                               Kv / Seán.

 Það þarf sterk bein til að standast góða daga!   Allavega eftir sóða-sukk útrásargemlinganna.

Það eru jú góðir dagar líka þrátt fyrir afleita lands-skuldaspá fyrir skattborgara. Ekki virðast sukkararnir ætla að borga sinn skerf!!!


68°Nb 14° W-lengd, um það bil.

Sæl öll sem lesið veiðifréttir þótt snubbóttar séu í bland!!  Við tókum hol í gærmorgun stutt austur af landinu og uppskárum 200 tonn ca, síðan fluttum við okkur NNV á 68°Nb og 14°Wl  fengum 100 tonn úr holi sem Bjarni Óla- átti og fékk að mestu, síðan komu 320 tonn úr  síðdegisholinu okkar, og hráefnisstaðan ágæt næstu 30 tíma a.m.k.  Erum að toga núna Bjarna-hol, vonandi með góðum árangri!!!.           

                                            Læt þetta duga að sinni,   

                                                             Kv / Seán,

Fljúg ei svo hátt þú fallir.!!


Ekki lengur "single"!!

Jæja gott fólk loksins meira blogg. 

Veiðin hefur gengið svona frekar treglega hjá okkur síðustu daga, erfitt að vera svona "single" í þessu tregfiskiríi. Drógum eitt hol í gær ásamt Birtingi NK og afraksturinn úr því var um 100 m3. Erum nú í "sambandi" með Bjarna Ólafssyni Ak og vorum að hífa núna síðan um miðnættið u.þ.b. 200 m3  sem ætti að nægja vinnslunni í sólahring. Við  erum  komnir með um 300T í frystinn.

Annars er allt gott af okkur að frétta, karlarnir vel haldnir  með nýjan og frumlegan kokk sem reiðir fram nýstárlega rétti í hverjum matartíma.

Gullkorn dagsins verður: "Þegar yfirmaður minn vill heyra mína meiningu, segir hann mér hver hún er."

Múffi kveður að sinni.


"Snilldar fiskveiðistjórnun" !!

Jæja gott fólk, víð lönduðum síðastliðin miðvikudag á Neskaupsstað um 900 T í bræðslu og tæp 550 T af frosnum makríl.

Við vorum heldur fljótir á okkur að fara að landa því veiðisvæðinu var lokað fyrir frekari veiðum á makríl að kvöldi löndunardags. Engin veiði leyfð fyrir sunnan 66° .

 Fimmtudeginum eyddum við í að bíða eftir eftirlitsmanni frá fiskistofu sem kom með okkur í túrinn og með hann um borð fengum við leyfi til að stunda hafrannsóknir í einn og hálfan sólahring fyrir sunnan 66°.  Þær rannsóknir hafa skilað okkur u.þ.b. 90 T í frystinn. Erum nú að leita norðan við 66°, vonandi stendur sú leit ekki lengi.

Annars erum við hálffúlir hér um borð  vegna þess hvernig fiskveiðistjórnunin á þessum makrílveiðum fór fram.  Gefin var út heildarkvóti og kepptust menn við að veiða upp sem mest magn á sem stystum tíma og sigla svo með þetta  í land í bræðslu. Fyrir þetta fengu menn 25-35 kr pr. kíló. Sumar útgerðir voru meira að seigja svo "öflugar" að senda á sjó aflagðar fleytur til að geta flutt meira af gúanói í land.

Nær hefði verið að reyna að vinna sem mest af þessum makríl til manneldis og fá fyrir það allavega   200 kr pr kíló. Ég hélt satt að segja að þetta þjóðfélag þyrfti á gjaldeyri að halda. Í fyrra veiddum við stærsta og verðmætasta makrílinn í júlí en nú verður ekkert af því, því búið er að veiða upp allan útgefinn kvóta. Eins gott að sjávarútvegsráðherra gefi ekki út heildarkvóta á þorski með sama hætti og makrílkvótinn var gefinn út.  

Gullkorn dagsins verður:"Við erum öll á sama báti - þó við stýrum ekki öll."

Með þeim orðum kveður Múffi


Löndun fyrirhuguð á morgun ?

Jæja sælt veri fólkið.

Af okkur er bara allt gott að frétta flestir frískir og kátir.

Vorum reyndar að frétta það af fésbókinni að við eigum að landa á morgun, miðvikudag. Magnaður fréttamiðill þessi fésbók hún er orðinn ábyggilegri heldur en gangafréttirnar!

Erum komnir með um 480 t í frystinn og höfum enn nokkuð pláss fyrir bræðslufisk.  Fengum ágætt í síðasta holi , nóg fyrir vinnsluna. Vonandi verður gott í í næsta holi svo við náum að fylla skipið.

Gullkorn dagsins er:" Getuleysi fyrirgefst en viljaleysi ekki".

Múffi kveður að sinni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband