Löndun
22.6.2008 | 19:05
Hæ hæ! Verðum í landi í Neskaupstað um miðnætti í kvöld. Fengum ekki nema 40 tonn í síðasta holinu og ákveðið að setja afturendann í þetta í bili. Gangafréttir segja að von sé á Mexikóskum matsmanni með í næsta túr og verður tvímælalaust birt mynd af honum hér á síðunni. Stefnt er á bræðslulöndun í nótt og frystilöndun á morgun. Nú er mikill Makrílshugur í Kallinum eftir að fréttist af Huginn og tvílembingunum frá Eyjum að moka honum upp. Næstu bloggfærslur væntanlega ekki fyrr en á þriðjud. eða miðvikud. og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Sá sem gengur hægt, heldur lengi út og kemst lengst.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.