Síldveiðar á nýju ári.

Jæja gott fólk gleðilegt ár og takk fyrir þau gömlu. Við byrjuðum árið á að fara á síldveiðar vestur í Breiðafjörð. Fengum í einu kasti um 700 m3 þann 3. Jan. Erum búnir að vera að heilfrysta síðan þá. Verðum að sæta lagi á milli bræla að kasta nótinni.  Erum komnir með um 300 t í frystinn hjá okkur.  Reiknum með að landa í borg óttans næstkomandi mánudag ef allt gengur upp hjá okkur. 

Væntanlega verður farinn annar túr í Breiðafjörðinn  á síld og eftir það verður  vonandi  komin bullandi loðnuveiði. Vonandi verður þá snarfarinn í sjávarútvegsráðuneytinu búinn að auka við loðnukvótann.

Karlarnir um borð bara nokkuð brattir þrátt fyrir rysjótta tíð. United karlarnir frekar roggnir þessa dagana og böggast sem betur fer meira   í Liverpool körlunum heldur en Chelsea körlunum.

Gullkorn dagsins verður:"Mánudagurinn er oft slæmur, því hann kemur svo snögglega eftir sunnudaginn."

Múffi kveður að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband