Löndun á morgun.

Jæja gott fólk. Nú er útlit fyrir að það verði landað í Neskaupstað á morgun föstudag. Erum komnir með um 370 T í frystinn og erum með hráefni í vinnslu fram að hádegi á morgun. Hífðum í morgun rétt fyrir vaktaskipti um  70 T og erum nú að draga með makkernum. Væntanlega landar hann á sama tíma og við.

Frést hefur að víkingarnir að sunnan hafi fengið flugsæti hingað austur þannig að Oddgeirsmótið í golfi ætti að verða haldið í þessu löndunarstoppi.

Spakmæli dagsins verður:"Láttu ekki augað hlaupa yfir eyrað né tunguna eins langt og fæturna."

Múffi kveður að sinni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband