Landstím.
14.4.2009 | 09:13
Jæja gott fólk þá er þessum túr að verða lokið. Fengum í 2-lestarnar í morgun og erum við þá komnir með nægt hráefni til að fylla í frystilestina hjá okkur. Ættum að vera komnir á Norðfjörð um hádegisbilið á morgun.
Af körlunum er allt gott að frétta þó er smá kvíði í loftinu hjá "Poolurunum" um borð enda erfiður leikur í kvöld gegn hinu geysi-sterka Chelsea liði. En eins og menn vita þá þarf Liverpool að sigra leikinn með þriggja marka mun til þess að eiga möguleika á að halda sér inni í Meistaradeildinni þetta árið. En "Poolararnir" eru seigir og þeir hafa reyndar áður staðið frammi fyrir svipuðum aðstæðum og náð að knýja fram sigur á síðustu metrunum. "Poolararnir" þurfa þó ekkert að vera kvíðnir því áfallateymið sem sett var á fót eftir síðasta leik liðanna verður í startholunum ef illa fer fyrir þeirra mönnum. Megi betra liðið sigra!
Gullkorn dagsins verður: "Heilbrigt hjónaband er ekki fyrst og fremst byggt á hreinskilni, heldur miklu fremur á skynsamlegri þögn."
Með þeim orðum kveður Múffi að sinni.
Athugasemdir
Klappið honum Andra nú fallega á öxlina eða kinnina og óskið honum til hamingju með daginn í gær.(18/4)
kveðjur frá fjölskyldunni hans
Halla Jóhannesdóttir (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 12:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.