Hákonsfréttir.
12.4.2009 | 16:22
Gleðilega páska gott fólk.
Af okkur er allt gott að frétta erum komnir með um 400t í frystinn og nægt hráefni næsta sólahringinn. Híft var um hádegisbilið eftir um 6klst tog og fengum við í 2-lestarnar. Veðrið er eins og best verður kosið, sól og sumarblíða í dag eftir brælu gærdagsins.
Karlarnir um borð alsælir eftir að hafa belgt sig út af lambahrygg í hádeginu og páskaeggi nr.5 í desert. Færum við matsveininum hinar bestu þakkir fyrir trakteringarnar.
Gullkorn dagsins er: "Það er ekkert til sem kallast getur óhjákvæmilegt stríð. Ef stríð skellur á , stafar það af fávísi mannanna."
Múffi kveður.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.