Áfallahjálp fyrir "Poolarana".
10.4.2009 | 10:59
Sælt veri fólkið.
Af okkur er allt þokkalegt að frétta fengum í 3-lestarnar eftir fyrsta holið og kláruðum að frysta það í gærkvöldi. Híft var um miðjan dag í gær og fengum við þá í 1-lestarnar og erum við að vinna það núna þegar þetta er ritað. Trolli var kastað um vaktaskiptin í morgun og eru nú komnir inn tveir pungar og útlitið bara gott.
"Poolararnir" hér um borð hafa verið frekar niðurdregnir eftir síðasta leik í meistaradeildinni. Svo niðurdregnir hafa þeir verið að talað hefur verið um að það sé þörf á að setja á fót áfallateymi til að ná þeim til baka úr Svörtuloftum!! Gangafréttir herma að "aðalpoolarinn" sé jafnvel að spá í að ganga úr Liverpool-klúbbnum og sækja um í Chelsea-klúbbnum. Býður bloggritari Árna velkominn í þann ágæta klúbb.
Annars allt gott að frétta af körlunum, brytinn bar á borð fyrir okkur lambalæri og bernise í gær og var tilefnið afmælisdagur skipstjórans. Óskar ritnefnd bloggsíðunnar skipstjóranum til hamingju með gærdaginn.
Gullkorn dagsins er tileinkað harðjaxlinum um borð hjá okkur en það hljómar svo: "Stundum þurfa hlutirnir bara að versna áður en þeir skána".
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.