Kolmunninn hvarf í brælunni.

Jæja gott fólk, nú virðast menn vera búnir að týna kolmunnanum því eftir að brælunni linnti þá var ekkert að sjá á tækjunum þeirra í brúnni. Er nú flotinn ósigrandi allur farinn að leita af lóðningum um allan sjó. Vonandi að það finnist eitthvað fljótt.

Kokkurinn klikkaði ekki á því í dag og fengu allir nóg af lambalæri í hádeginu.

Annars er það að frétta af körlunum um borð að þeir áttu náðuga kvöldstund í gærkvöldi  fyrir framan sjónvarpstækið og horfðu á "Desperate Housewifes".  Þegar sá alsvalasti hér um borð mætti svo einnig fyrir framan sjónvarpstækið með rafmagnssígarettuna í kjaftinum þá varð mönnum á orði: "Svo bregðast krosstré sem önnur tré."  Læt ég það standa sem gullkorn dagsins.

Múffi kveður að sinni.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband