Túrinn senn á enda.
20.3.2009 | 08:43
Jæja gott fólk nú er farið að sjá fyrir endann á þessum túr hjá okkur, vorum komnir með rúm 500 T í frystinn síðast á miðnætti. Erum nú að toga, væntanlega síðasta holið og er útlitið alveg ágætt okkur vantar aðeins í 3-lestarnar.
Gangafréttir segja að löndun sé fyrirhuguð í Neskaupsstað mánudaginn 23 mars og hafa þær sjaldan brugðist okkur, gangafréttirnar. Hermt er af göngunum að matsveinninn okkar sé búinn að vera svo duglegur við baksturinn þennann túrinn að hann veit ekki hvað hann á af sér að gera á milli mála, ef hann sleppir því að baka.
Spakmæli dagsins er:"Ötular og öflugar sálir geta hvorki né mega halda kyrru fyrir, meðan æskufjörið varir."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.