Hákons-fréttir.
16.3.2009 | 11:54
Jæja gott fólk við vorum komnir á miðin norðvestur af Írlandi í fyrri nótt og köstuðum veiðarfærinu út strax. Afrakstur úr fyrsta holinu var nú eitthvað rýr því híft var fljótlega eftir að morgunvaktin hófst vegna bilunar í höfuðlínukapli. Kastað aftur rétt fyrir hádegi í gær og dregið fram að kvöldmat og dugði það hol til að fylla í 3-lestarnar og er nú verið að frysta úr því. Nú þegar þetta er ritað þá erum við búnir að draga síðan kl. 8 og erum komnir með 3-punga inn. Ættum að vera komnir með um 100 t í frost um hádegisbilið.
Bloggritari var beðinn fyrir sérstakar kveðjur til Davíðs Gígju, Ragnars Guðjónssonar og Jóhanns Adolfs frá æstum Liverpool aðdáendum hér um borð. "Poolararnir" hér um borð eru sko langt frá því að vera jarðtengdir þessa dagana. Veit eiginlega ekki hvers vegna "Poolararnir" eru svona kátir liðið þeirra er í 3ja sæti í deildinni??
Annars allt gott að frétta af okkur, Pétur kokkur græjaði lambahrygg og bernise í gær af sinni alkunnu snilld og bætti þar fyrir grjónalausa grjónagrautinn á laugardaginn. Stundum mikið um að vera í eldhúsinu.
Spakmæli dagsins er: "Kauptu ekki hluti, þótt ódýrir séu, sem þú ekki þarft."
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Athugasemdir
halló hákon :-) spakmæli dagsins er snild:-) og eruð þið komnir á fésið :-) farið þið varlega og komið fullir heim :-)
rakel (IP-tala skráð) 16.3.2009 kl. 12:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.