Annar kolmunnatúrinn hafinn.
14.3.2009 | 09:18
Jæja gott fólk komið þið sæl.
Af okkur er allt þokkalegt að frétta. Fórum frá Neskaupsstað um kl 20:00 þann 12-03 eftir að hafa landað þar um 700 t af heilfrystum kolmunna. Er ferðinni heitið á kolmunnamiðin vestur af Írlandi, rétt utan við írsku lögsuguna. Erum núna þegar þetta er ritað rétt vestur af Rockall-klettinum í leiðinda brælu og miðar okkur frekar hægt áleiðis. Ættum að vera komnir á miðin eftir um 20 klst miðað við ganginn á okkur núna. Fréttir af miðunum eru að þar sé aftaka veður og litlar veiðifréttir þess vegna.
Spakmæli dagsins er:"Af mönnum sem engan sjóndeildarhring hafa, er ekki hægt að heimta rétta skoðun á heiminum."
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Athugasemdir
Flott hjá Liverpool, til hamingju. Vonandi að fleiri taki þetta sér til fyrirmyndar og rúlli man-ónýtu upp! Sérstaklega á Old T.
Siggi (IP-tala skráð) 15.3.2009 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.