Steingrímur ertu ekki að grínast!!!!!!!!
23.2.2009 | 00:58
Já Golli Jó er sestur við lyklaborðið eftir langa fjarveru, ég sá mig knúinn til að henda einni færslu inn áður er ég fer í fríið. Annars er það að frétta að við erum að landa í dag á Neskaupsstað og er það loðna og síld sem um ræðir en við erum að tala um eitthvað um 750 tonn + og ekki veitir af að skaffa gjaldeyristekjur á þessum síðustu og verstu. En ég var að koma af vakt nú um miðnættið þá hitti ég skipstjórann og ekki var sá maður ánægður með kvikindið af sléttunni (Steingrím J) svo ég vitni nú beint í samtalið "hvað helduru að þíði að hafa kjarklausan bóndason að norðan í þessu ráðneyti" ég læt nú ekki meira fylgja vegna þess að það er ekkert aldurstakmark inn á þessa síðu. En þess má geta að framhaldið er óráðið en við vonum að Steingrímur sjái að sér og gefi út kvóta eða er hann bara á móti öllu. En við Hákons menn biðjum að heilsa.
Golli Jó segir yfir og út.
Vitnað var í Guðjón Jóhannsson skipstjóra
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.