Löndun á Neskaupsstað

Jæja sælt veri fólkið.

Löndun fyrirhuguð á Neskaupsstað á morgun og svo verður væntanlega haldið til loðnuveiða á föstudaginn. Fórum reyndar í smá loðnuleitar-leiðangur á austurleiðinni, leituðum að loðnu norður og austur af Langanesi án árangurs.

Þökkum Oddu fyrir kveðjurnar, ástæða þess að sjaldan koma myndir inn á bloggið er einfaldlega sú að það tekur óratíma að hlaða þeim inn einhverra hluta vegna, þrátt fyrir að þær séu minnkaðar. Nú og Gullkornin þau eru eiginlega algjört hernaðarleyndamál.

 

Gullkorn dagsins er "Ef bros gerir andlitið vingjarnlegra, er það góður maður sem á í hlut. Ef bros óprýðir frítt andlit, skaltu vara þig."

Og með þeim orðum kveður Múffi og fer í frí.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband