Síldarvertíðinni lokað með style.
9.2.2009 | 10:47
Jæja gott fólk þá er nú farið að hylla undir lokinn á þessari síldarvertíð hjá okkur. Tókum síðasta kastið í gær og reyndist það vera nóg til að fylla hjá okkur 1-2-og 4 lestarnar og svo dældum við um 500 T í Margrétina.
Lögðum af stað norður fyrir í gærkvöldi og er ætlunin að landa á Neskaupstað seinnipart vikunnar.
Nú hlýtur loðnan að fara að láta á sér kræla svo hægt verður að gefa út einhvern byrjunarkvóta, ekki er mikill áhugi á því hér um borð að fara að veiða þetta kreppukóð (Gulldeplu) sem meiri hlutinn af flotanum virðist vera kominn á.
Gullkorn dagsins er:"Þeir sem elska heitt eldast aldrei. Þeir deyja ef til vill úr elli, en þeir deyja samt ungir."
Og með þeim orðum kveður Múffi
Athugasemdir
Sælir allir saman, ég er bara forvitin en hver í ósköpunum er höfundur að gullkornunum þau eru nefnilega ótrúlega flott og vekja oft lukku. Það væri gaman að sjá fleiri myndir en þið hafið auðvitað allt annað að gera en að vera taka myndir til að setja á heimasíðuna. Gangi ykkur áfram vel í veiðinni, kveðja Odda.
Odda Jó (IP-tala skráð) 10.2.2009 kl. 13:02
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.