Þriðji síldartúrinn hafinn.
26.11.2008 | 21:13
Komið þið sæl.
Af okkur er það helst að frétta að við lönduðum 550T af síldarafskurði á Akranesi síðastliðinn sunnudag. Héldum síðan til Reykjavíkur og léttum á okkur svo hægt var að klára að vinna þann afla sem enn var eftir í kælitönkum. Kláruðum svo að landa á mánudeginum, heildar magnið var þá um 760 T af síldarflökum. Talað var um að í þessari löndun hafi miljarðarnir tveir verið sigraðir.
Héldum aftur til veiða seint á mánudagskvöld og vorum komnir á miðin við Stykkishólm í birtingu daginn eftir. Illa viðraði til nótaveiða þann daginn en karlinn lúðraði því þó einu sinni með takmörkuðum árangri. Í dag var aftur á móti allt annað uppi á teningnum, blíðskaparveður og náðum við svo til að fylla í 2-3 og 4 lestarnar í þremur köstum. Fylltum síðan upp 1-lestarnar úr nótinni hjá Álsey og sendum við þeim hinar bestu þakkir.
Höfum núna nóg hráefni fyrir vinnsluna fram á laugardag.
Læt hér fylgja með nokkrar myndir sem teknar hafa verið núna síðustu daga.
Hér til hliðar er Brúnn á Hóli kampakátur yfir því að hafa losnað úr eldhúsinu og komist á dekkið.
Hér til hliðar er eini harðjaxlinn á Hákon EA
Hér til hliðar er Börkur NK að sigla inn á Kiðeyjarsund. Það getur oft orðið þröngt á þingi.
Gullkorn dagsins er:"Náttúran er góð móðir. Af því að hún hafði ekki ráð á að gera okkur fullkomna, gerði hún okkur blinda fyrir okkar eigin yfirsjónum. "
Múffi kveður að sinni.
Athugasemdir
sælir drengir og til hamingju með að vera búnir að sigra milljarðana tvo :)
kv frá bátsmansvaktinni á Guðmundi VE
Haukur G (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 13:41
Þökkum bátsmannsvaktinni á Guðmundi VE fyrir hamingjuóskirnar. Sé á síðunni ykkar að það fer að styttast í að þið komið til landsins. Svona okkar á milli hvað eru þið búnir að fiska fyrir á árinu? :).
Bkv. Áhöfnin á Hákoni
Áhöfnin á Hákon EA-148, 27.11.2008 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.