Fer rólega af stað

Innan skerjaGóðan dag! Það viðraði loksins í gærmorgun til að kasta og voru kapparnir mættir gallvaskir inn á Kiðeyjarsund þegar birti. Náðum að kasta einu sinni og fengum rúm 100 tonn. Eftir það var síldin ekki í veiðanlegu ástandi, allavega ekki fyrir okkur.  Síldin virðist bara gefa kost á sér yfir birtutímann og lögðumst við á meltuna eftir að dimma tók í gær. Það bar þó helst til tíðinda í gær að það urðu mannaskipti í brúnni og kom Guðjón um borð en Björgvin þurfti að komast í land. Setti nokkrar myndir inn í gær, svona í tilefni fyrsta kastsins á þessari haustvertíð hjá okkur. Marri kveður og segir yfir og út.

Spakmælið: Illt er að hefta heimfúsan klár. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé allt miklu skýrar núna eftir að hafa andað að mér hreinu vestfirsku fjallalofti.
Hversu nálægt ég var að verða fórnarlamb norðlensku rjúpnamafiunnar, sem ætlaði að hafa saklausa, bláeyga sunnlendinga að féþúfu, til að fjármagna eigið rjúpnasukk.
Enda er það almenn vitneskja að fallþyngd vestfirskra rjúpna er meiri en norðlenskra og fitulag meira, hef ég jafnvel heyrt að norðlenskar rjúpur séu bæði seigar og bragðvondar.
Lít ég á það sem mikið happ að ekki hafi orðið af fyrirhugaðri leigu á rjúpnalandi og vera þar snaraður í hrísi og klofsokkinn í snjó. En í staðinn ganga vestfirskar heiðar og fjöll þar sem nóg er af rjúpu.
Með ósk um góða veiði, Kalli

Kalli (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 13:22

2 identicon

Hvernig væri nú að blogga einu sinni, það væri gaman að vita hvernig gengur

David (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 10:09

3 identicon

Kalli mér heyrist vestfirska fjallalofti alveg hafa farið með þig! þú ruglar bara.

kv. Guðni Rúnar

grt (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 16:45

4 identicon

Já, ég verð að kíkja aðeins norður til að ná mér niður.

Kalli

Kalli (IP-tala skráð) 10.11.2008 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband