Á landleið með fullt skip.

Jæja þá er þetta nú að hafast.  Settum á fulla ferð áleiðis til Neskaupstaðar um sjöleitið í dag. Fengum ágætis afla í gærkvöldi og svo var þetta klárað í morgun.  Verðum búnir að fylla frystinn upp úr miðnætti í kvöld þannig að það verður nægur tími til þrifa þar sem við verðum ekki í landi fyrr en á seinnipart laugardags. Veit ekki hvort maður bloggar nokkuð meira fyrr en í næsta túr. Það fer þó eftir því hvort það verða einhverjar fréttir.  En í bili segir Marri yfir og út.

Spakmælið:Tortryggna menn skortir aldrei hugarburð til að ala grunsemd sína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskasynir Síldarvinnslunnar

Svar við kommenti Jóns Gunnars,  Fyrst vil ég þakka Jóni Gunnari fyrir að hafa komið við á síðunni okkar!!!  Varðandi byssumálið mikla get ég ekki munað betur en að sjálfur Jón Gunnar hafi verið á fötunni og hringað spottan niður sem leiddi til þess að fatan fór í hafið!!!! hahahahahaha  Svo var ekki verið að skjóta yfir í Vilhelm heldur hið glæsta og afburða aflaskip Áskel EA (Birting) þar sem hárnet eru ekki í fyrirrúmi höfð

kv Gúanó

Óskasynir Síldarvinnslunnar, 30.10.2008 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband