Haldið til hafs á ný.
29.10.2008 | 08:58
Góðan dag! Þá erum við lausir allra mála í Noregi. Það fór svo að gerð var dómssátt í málinu og sektargreiðslur fyrir að hafa verið að veiðum inná friðuðuðu svæði. Sektargreiðslur voru í samræmi við þann afla sem hvert skip aflaði í hinu lokaða svæði þannig að í þessu tilfelli hefði verið best ef það hefði verið tregfiskirí, sem var ekki í okkar tilfelli. En nú er þessum kapítula lokið og vonandi verður hann til þess að menn dragi lærdóm af honum.
Fórum frá Fugleyjarfirði upp úr átta í gærkvöldi áleiðis til síldarmiða. Okkur vantar rúm 100 tonn í frystinn og standa vonir til að afli til að fylla það skarð náist í dag. Marri kveður og segir yfir og út.
Spakmælið: Oft eru það smælingjarnir, sem leggja til efni í blómsveig mikilmennisins.
Athugasemdir
Sælir,
Síðustu tvö spakmæli sérlega vel valin!!
gott að þið eruð lausir, gangi ykkur vel með afganginn
kv. Halla andra kella
halla húsfrú (IP-tala skráð) 29.10.2008 kl. 14:43
hvenær er heimkoman ca. áætluð?
kv. Halla J.
halla húsfrú (IP-tala skráð) 30.10.2008 kl. 18:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.