Senn fer að sjást fyrir endann á þessum túr
25.10.2008 | 19:19
Sælt veri fólkið! Það hefur gengið bærilega hér hjá okkur í norðurhöfum eða á maður að segja í Noregshöfum. Hækkuðum upp í efsta gat í morgun og ganga veiðar vel. Síldin sem við fengum í gær er nokkuð blönduð en það sem við tókum í dag er jafnari og stærri síld. Á morgun ættu að vera komnar einhverjar línur í hvenær við verðum í landi en reiknað er meið þriggja sólarhringa landstími.
Heitar umræður eru á göngunum út af rjúpnalandinu og sýnist sitt hverjum. Upp er komin athyglisverð samsæriskenning um orsakir þess hvernig fór. það hefur verið gefið í skin ákveðin tengsl milli þess sem fékk landið og eins forvígismannanna hér um borð. Látið er liggja að fjölskyldutengslum og ef svo er þá er þetta háalvarlegt. Ég mun fylgjast með málinu og flytja fréttir um leið og þær gerast.
Marri kveður og segir yfir og út.
Spakmælið:Það þarf sterk bein til að standast góða daga.
Athugasemdir
Sæll Marri minn.
Á þessum síðustu og verstu tímum fær maður ekki neitt nema borga fyrir það. Þegar menn eru á svona döprum launum og tíma ekki að bjóða nema rétt rúm 60 þús. þá liggur það í augum uppi að sá sem býður rúm 80 þús fær rjúpnalandið!!!! Við verðum bara að vona að "gengið" verði ykkur hagstæðara á næstu rjúpnavertíð !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Heiða (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:39
Heiða. Ég held að þú ættir að kynna þér málið betur áður en þú ferð að rífa þig niður í rassgat.
Við buðum aldrei í þetta land, það er málið.
Góðar stundir.
Guðni (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 14:25
Rólegur gæðingur af hverju kaupið þið ekki helv landið
Davíð (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 17:12
glæpamenn !!! :)
Loftur (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 18:25
Takk Heiða! Þessu var maður að bíða eftir að menn opnuðu sig og jafnvel alveg niðurúr
. Þetta er þörf umræða. Bkv. Marri.
Áhöfnin á Hákon EA-148, 27.10.2008 kl. 18:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.