21.10.2008

Góðan dag! Erum nú komnir langleiðina á ætluð síldarmið og byrjaðir að leita.  Erum einskipa eins og stendur en von er á fleiri skipum næstu daga.  Annars ekki mikið að frétta af okkur nema kannski að það var mikill hugur í mönnum um að leigja rjúpnaland.  Það var kominn upp nafnalisti og menn beðnir um að skrá sig ef þeir hefðu áhuga á að ver með. Forvígismenn rjúpnaveiða höfðu augastað á landi í "uppsveitum" Grenivíkur og ekkert sparað á að lýsa ágæti veiðisvæðisins. Listinn lengdist með hverjum deginum og hafist var handa við að rukka inn svo allt yrði nú klárt þegar kæmi að tilboðsgjöf í landið. Mikil bjartsýni og tilhlökkun ríkti meðal tilvonandi veiðimanna, nú skildu allir eiga nóg í jólamatinn.  En viti menn það gerðist ekkert, síðast þegar fréttist þá var búið að leigja landið einhverjum öðrum. Það gleymdist að bjóða í landið!!!!! Jæja þetta reddast. Og eins og í bankakreppunni þá verður væntanlega enginn dreginn til ábyrgðar.  Skora á forvígismennina að skýra sitt mál. Og með því segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þarna sannast máltækið "kapp er best með forsjá" en broslegt er klúðrið. Himmi, er staðan ekki góð í ræktinni ? Gangi ykkur vel baráttan strákar. Kv. Hemmi

H.G. (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 13:23

2 Smámynd:  Áhöfnin á Hákon EA-148

Jú takk fyrir Hemmi, ræktunin er samkvæmt áætlun:).

Bkv. Marri

Áhöfnin á Hákon EA-148, 21.10.2008 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband