Farnir frá Noregi, loksins:)

Þeir gerðu það ekki endasleppt frændur vorir norðmenn. Þeir ætluðu nú loksins að landa úr okkur gúanóinu eftir hádegi í dag. Og byrjuðu á að taka ferskleikaprufu af aflanum og dæmdu hann óhæfan til bræðslu. Þannig að öll biðin var til einskis. Fórum frá Bodö á 14da tímanum í dag áleiðis til síldarmiða. Vonum að það verði bara mok á miðunum þegar við komum. Bestu kveðjur til allra sem vilja þekkja okkur og Marri segir yfir og út.

Spakmæli:Framkvæmdu að eigin frumkvæði, en vertu reiðubúinn að taka fulla ábyrgð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband