Það lætur okkur ekki vel að bíða....

Góðan dag gott fólk. Þegar þetta er skrifað  erum við búnir að landa rúmum 700 tonnum af frystum afurðum í Sortland í Noregi.  Og komum hingað til Bodö seinnipartinn í gær til að landa u.þ.b. 500 tonnum í bræðslu. En eitthvað stendur á að sú löndun getur hafist. Huginn VE landaði hér í nótt og er okkur tjáð að þróarrými sé fullt og bræðslan biluð. Þannig að við þurfum að bíða eitthvað enn. Menn eru að sjálfsögðu ekki glaðir með þessa bið eftir löndun og sýnist sitt hverjum um ástæður hennar. Bestu kveðjur frá Norge og Marri segir yfir og út.

Spakmælið: Það er seint að fara að grafa brunnin, þegar maður er orðinn þyrstur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband