Austurvígstöðvarnar gefa vel af sér.

Jæja smá fréttir hérna, biðst afsökunar á því hversu langt er síðan síðasta bloggfærsla birtist.  Við lönduðum 670 t af frystum flökum í Sortland síðastliðin mánudag og héldum aftur til veiða þá strax um kvöldið. Fengum fljótlega afla og erum nú þegar þetta er ritað búnir að hálffylla frystilestina hjá okkur. Stærðin á síldinni hefur verið mjög góð allt að 340g meðalvigt.

Reiknum með að landa aftur í Noregi á þriðjudag eða miðvikudag í næstu viku ef allt gengur að óskum.

Gullkorn dagsins er:"Í lífi karlmanns er ástin kapítuli, í lífi konu sagan öll."

Með þeim orðum kveður Múffi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband