Önnur löndun í Sortland fyrirhuguð.
26.9.2008 | 12:04
Jæja sælt veri fólkið.
Túrinn búinn að ganga svona þokkalega hjá okkur, höfum haft nóg af fiski fyrir vinnsluna en það hafa bara verið að koma upp hinar ýmsu bilanir bæði í vinnslu og í vélarrúmi. hefur það tafið töluvert í vinnslunni fyrir okkur. Ættum þó að sigra aftari frystilestina í nótt.
Eigum pantaðan löndunardag í Sortland á mánudaginn 29-09. Vonandi náum við nægum afla í dag svo við getum klárað þetta því það spáir brælu á miðunum alla helgina.
Gullkorn dagsins er: "Trúr vinur er öruggt athvarf og auðugur er sá, sem finnur hann."
Jæja nóg í bili Múffi kveður.
Athugasemdir
maggi þú stendur þig ekki nógu vel að blogga.. !!! þú verður að hugsa betur um þetta ,, ekki vera alltaf ða hugsa um mat !! eða að borða.........
jói
joi (IP-tala skráð) 3.10.2008 kl. 12:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.