Jazz Jazz

Jæja gott fólk, eins og sjá má á blogginu hér á undan að þá hefur Golli Jó komist í tölvu eftir miðnættið inni á hóteli í Sortland. En hann er á heimleið í frí ásamt fleirum  og óskum við þeim góðrar ferðar og hlýrrar  heimkomu.

Af okkur er það helst að frétta að við fórum út frá Sortland í Noregi um kl:20:00 í gærkvöldi eftir að hafa landað rúmum 630 T af frosnum flökum þar. Í Sortland, sem er um tíuþúsund manna bær, í svipaðri stærð og Akureyri, stóð yfir  Jazzhátíð þessa helgina, sem við sem farnir vorum á sjó,  rétt misstum af. En vonandi hafa þeir sem á heimleið voru notið góðs af þeirri hátíð. Nema að þeir hafi sofnað yfir bloggskrifum fram eftir nóttu!!SleepingBlush

Gullkorn dagsins er:"Vanþakklátt fólk líkist óáreiðanlegum viðskiptamönnum, sem bóka það sem aðrir skulda þeim, en ekki það sem  þeir skulda öðrum."

Og með þeim orðum kveður Múffi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband