Veiðin að glæðast
14.9.2008 | 11:31
Jæja loksins fékkst afli. Fórum í gær inn í norsku lögsuguna, köstuðum í gærmorgun og hífðum um 150 T af síld seinnipartinn. Síldin hér í Noregi er minni en það sem við höfum verið að sjá þegar við erum að veiða íslensk/norsku síldina, aðeins um 250-270 g. Annars fínn skammtur til að hefja vinnslu , erum í þessum skrifuðum orðum að hífa svipað magn og í gær. Vonandi verður bara áframhald á þessu.
"Poolararnir " hér um borð eru allavega mjög kátir þessa dagana, varla að þeir snerti gólfið.
Spakmæli dagsins er:"Þolinmæði hefur maður mesta þörf fyrir, þegar hún er að verða búin."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.