Lítið að frétta af austurvígstöðvunum.

Jæja jæja gott fólk, nú kemur aðeins meira blogg. Það hefur verið heldur lítið að frétta af okkur upp á síðkastið, lítið fiskirí og rólegheit yfir mannskapnum. En það helsta er að það var landað á Neskaupsstað síðastliðin  þriðjudag samtals  300 T af síldarflökum og heilfrystum makríl. Fórum út seinnipartinn á miðvikudag áleiðis í síldarsmuguna. Erum núna staddir rétt utan við norsku lögsuguna og höfum ekki orðið varir við neitt og sömu sögu er víst að seigja af skipunum hér á svæðinu. Vonandi fer nú silfur hafsins að þétta sig svo hægt verði að fara að kasta á hana. 

En áhafnarfréttirnar eru að  Mr Peter Cook er kominn aftur um borð eftir 6 mánaða "hvíld" og hann lét ekki sitt eftir liggja heldur reiddi fram lambahrygg og bernise á fyrsta degi. Velkominn aftur til starfa Mr Peter Cook!

Spakmæli dagsins er: "Sérhver maður hefur rétt á að velja sér sína eigin stjórn, dökkhærða, ljóshærða eða rauðhærða".

Og með þeim orðum kveður Múffi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband