Nú fer hún að koma
5.9.2008 | 01:51
Í stuttu máli sagt þá hefur lítið gerst í síldveiðum hjá okkur þennan túrinn. Menn eru þó brattir og fullir bjartsýni, enda vel aldnir eftir eftir veislur sumarsins, hungurverkir eru því vel þolanlegir. Helgin framundan sem kætir boltabullunar, annars finna flestir sér eitthvað að gera.
Draumfarir skipverja hafa þó ekki skilað neinum árangri, flestir muna ekki drauminn eða neita að segja frá. Hef þó reynt að spyrja legubekkinn fregna úr draumaheimi en aðeins fengið svarið "Láttu mig í friði" Hef því ákveðið að hætta þessu draumarugli og hella mér í stjörnuspána. Trúi ekki öðru en síldin fari núna að láta sjá sig.
Spakmæli dagsins: Gættu hóglætis bæði í gleði og harmi og hafðu ætíð fulla stjórn á sjálfum þér.
Kveðja Matti
Athugasemdir
Hef á tilfinningunni að það fari nú að fiskast fljótlega, eða ekki
. Allir túrar taka einhverntíma endi. Kveðjur úr svíaríki. Hilmar
Áhöfnin á Hákon EA-148, 5.9.2008 kl. 15:19
Þeð væri óskandi að það færi að sjá í silfrið á ný.
Guðmundur St. Valdimarsson, 6.9.2008 kl. 18:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.