Áfram Ísland!!!!

Góðan dag gott fólk! Nú bíða allir spenntir, hér um borð, eftir gullleiknum. Heyrst hafa raddir um að það eigi bara að drepa á og láta reka meðan á leik stendur. En það verður væntanlega ekki gert en það verður fullsetin setustofa meðan á leik stendur.

 Annars er það helst að frétta að við erum hálf vængbrotnir eftir að stóra trollið okkar varð ónothæft og þarf að komast á land til viðgerðar.  Það gaf sig leiðari frá þeim á Allanum, sem notaður er til að taka vænginn á okkar trolli á milli skipa. Það er bræla í kortunum og erum við búnir að grynnka á okkur. Erum komnir í Seyðisfjarðardýpi í von um einhvern afla hér. Það var farið að velta svo helv...... mikið á djúpmiðunum. Erum u.þ.b. hálfnaðir með miðgatið og þar af eru rúm 100 tonn makríll.  Það kæmi ekki á óvart að við yrðum í landi fljótlega eftir helgina með tilliti til bræluspár og veiðarfæratjóns. En það kemur bara í ljós.  Marri kveður og segir yfir og út.

Spakmælið: Þegar konur elska, eru þær harðstjórar: Þegar karlmenn elska, eru þeir þrælar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að það þurfi að reka þennan þjálfara íslenska landsliðsins

Tobbi FH (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 10:24

2 Smámynd:  Áhöfnin á Hákon EA-148

Tobbi! Ertu að grínast?

Áhöfnin á Hákon EA-148, 24.8.2008 kl. 20:57

3 identicon

Þeir vinna silfrið á ólympíuleikunum og þú segir að það þurfi að reka þjálfarann?? Þú ert nú meira gáfnaljósið.....

ókunnugur (IP-tala skráð) 24.8.2008 kl. 21:41

4 identicon

Auðvitað er ég að grínast strákar..  Og já ég er gáfnaljós...........

Tobbi FH (IP-tala skráð) 25.8.2008 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband