Alltaf eitthvað um að vera til sjós.

lífið um borð 007Kokkurinn BrúnnGóðan dag! Jæja þá er komið að bloggi.  Inniveran í Neskaupstað varð sólarhring lengri en sem nemur venjulegu löndunarstoppi. Sem kom til af því að sinna þurfti viðhaldi á vélbúnaði skipsins. Flestir áhafnarmeðlimir notuðu tækifærið og fóru til síns heima þennan auka sólarhring og voru tilbreytingunni fegnir.

 Hófum þessa veiðiferð kl. 01 að morgni þess 20. ágúst. Nýr makker beið okkar þegar við komum á miðin en þó ekki alveg ókunnugur. Það voru félagar okkar á Aðalsteini Jónssyni sem við áttum svo glimrandi gott samstarf í fyrrasumar.  Það eru engin rífandi aflabrögð eins og er. Hátt hlutfall af Makríl í hverju holi og höfum við verið að frysta hann eftir að búið er að renna síldinni í gegn. Verðum væntanlega búnir að sigra fyrsta lag núna fyrir hádegi.  Myndirnar hér með eru frá því í síðasta túr. Kokkurinn kominn út að grilla á nýja grillinu okkar. Aðalréttur dagsins: skötuselur með baconvafning m.ö.. Kokkurinn er fyrirmynd margra hér um borð þegar kemur að öryggismálum enda gott mál þegar þau eru annarsvegar. Og af því sögðu segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Þjófur kallast sá sem hefur verið svo bráðfíkinn í annarra eigur, að hann hefur ekki gefið sér tíma til að stofna hlutafélag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband